Vísir - 16.09.1968, Side 1
i
VISIR
r 16. september 1968. - 207. tbl.
Heyhkiða og 300 kinda f jór-
hús brunnu ú Hvanneyri
— Tjónið nemur hundruðum þúsunda
9 Þúsund hestar af heyi hlaöa
og fjárhús brunnu í nótt á Hvann
eyri. — Eldurinn kom upp um
kvöldmatarleytið í gær og kvikn
aði út frá mótor, sem notaður
er til kyndingar. Brann allt timb-
urverk bæði í hlöðunni og fjár-
húsinu, sem er um 300 kinda
hús og eina fjárhúsið á staðnum.
í hlöðunni voru þúsund hestar
af heyi og skemmdist það mik-
ið, en ef til vill mun vera hægt
að nýta eitthvað af því.
— Við lendum óneitanlega í dá-
litlum vandræðum vegna þessa
skaða, sagði Guðmundur Jónsson,
skólastjóri á Hvanneyri, þegar Vísir
ræddi við hann í morgun. Húsin
eru mikils virði og eitthvað verður
að koma í þeirra stað.
Guðmundur kvaðst ekki geta
gizkað á hversu mikið tjónið væri,
en vfsast næmi það hundruðum
þúsunda. — Heyið sem var f hlöð
unni er um það bil l/5 af heyfeng
10. sfða.
Benfica kemur / dag:
Einknviðtal Vísis
við Eusébio
d bls. 9
0 Knattspyrnusnillingarnir
frá Portúgal koma til íslands
f dag. Birtir Vísir af því til-
efni heilsíðuviðtal við skær-
ustu stjörnu liðsins, Eusébio,
sem talinn er vera bezti knatt
spyrnumaður heims í dag.
Hann kemur með liði sínu
hingað og munu þeir dvelja
á Loftleiðum. Áhugi fólks
virðist vera mjög mikill á
Ieik þeirra við Valsmenn, en
hann er á miðvikudag. Til
marks um væntanlega aðsókn
hafa nú þegar selzt í forsölu
rúmlega 8000 aðgöngumiðar
og eru menn farnir að tala
um metaðsókn á Laugardals-
völlinn.
Þá hefur verið ákveðið að
selja nú í fyrsta skipti stólsæti
og veröur stólunum komið fyrir
andspænis stúkunni. Verða sæt
in um 300 og hefst sala miða í
10. sfðu.
<\AAAAAAAAAAAAAAAAAA/
Fallegustu stúlkur Evrópu á
leið inn í svörtustu Kongó
— Fegurðarsamkeppni hefst f>ar á miðvikudag
■ Hópur stúlkna, sem hver er talin vera frfðust í sínu heima-
Iandi, er nú á leið inn í svörtustu Kongó. Þar hefst á
miðvikudaginn fegurðarsamkeppnin Ungfrú Evrópa í rikinu
Kinshasa. Þátttakandinn frá Islandi er Helen Knútsdóttir, 18
ára gömul þokkadís, og hélt hún utan f gærmorgun. Munu
allar stúlkurnar hittast í Briissel og dvelja þar í tvo daga í
boði Sabena-flugfélagsins.
Helen Knútsdóttir tók í sumar
þátt í fegurðarsamkeppni á
Miami í Bandarikjunum og stóð
sig mjög vel, þrátt fyrir að hún
kæmist ekki f úrslit. Átti hún
siðan að taka þátt í keppninni
sem árlega hefur farið fram í
borginni Nizza í Frakklandi. En
vegna verkfallanna og óeirðanna
þar í landi var keppninni frest-
að. Var þá framkvæmdaraðilum
boðið að halda keppnina í Kongó
og var þaö boð þegið með þökk-
um, að sögn Einars Jónssonar,
sem haft hefur veg og vanda
þátttöku íslenzkra stúlkna i
þessum keppnum.
Upphaflega átti Jónína Kon-
ráðsdóttir að taka þátt f þessari
keppni, en hún fyrirgerði rétti
sínum vegna þess að hún gifti
sig. Var þá Helen valin, en
hún hafnaði í öðru sæti í keppn-
inni hér heima.
Stúlkurnar sem taka þátt í
keppninni að þessu sinni eru 21
og eru flestar álitnar mjög
fagrar, aö sögn þeirra sem um
keppnina sjá. Einari Jónssyni
var boðið að koma og vera dóm-
ari f keppninni, sem hann hefur
•verið undanfarin ár, en hann
gat ekki farið vegna anna heima-
fyrir. Þess má einnig geta, aö
það eina sem svertingjamir i
Kongó gera í sambandi við þessa
keppni er að borga brúsann.
Fulltrúi íslands f fegurðarsamkeppninni í Kongó, Helen Knútsdóttir.
Jafnaðarmenn sigruðu íSvíþjóð
fengu hreinan meirihlutu
Fylgi kommúnista minnkaði um helming — og orsókin: Hernám Tékkó-
slóvakiu. — Stjórnmálaleiðtogar segja kosningaúrslitin mikinn persónu-
legan sigur fyrir Erlander.
Tage Erlander.
Jafnaðarmannaflokkurinn í Svíþjóð, sem hefur verið
við völd í landinu í 36 ár, bar sigur úr býtum í kosn-
ingunum til neðri deildar þjóðþingsins, og náði alger-
um meirihluta.
Hann bætti við sig 11 þingsætum og voru fimm þeirra
unnin frá kommúnistum. Glötuðu kommúnistar helm-
ingnum af sínu fyrra fylgi, og vekur athygli í þessu
sambandi, að þetta eru fyrstu þingkosningar, sem fram
fara eftir innrásina í Tékkóslóvakíu.
Fylgi borgaraflokkanna breyttist ekki verulega, en
almennt hafði verið búizt við sigri þeirra í kosning-
unum.
Kjörsókn mátti heita daufari en
búizt var við fram eftir degi, en
er á daginn leiö var hún orðin
allmikil og jókst æ meira og var
orðin fádæma mikil um klukkan
20. Kjörið var til annarrar deildar
þingsins, þar sem jafnaðarmenn
höfðu 113 þingsæti, borgaraflokkarn
ir samanlagt 112 og kommúnistar
átta.
Eins og áður hefir verið getið f
fréttum verða báðar deildir þings-
ins sameinaðar 1970 og eru þing-
menn neðri deildar því aðeins
kjömir til tveggja ára nú.
í NTB-fréttum frá Stokkhólmi
segir, að leiðtogum allra flokka beri
saman um, að úrslit þingkosning-
persónulegur sigur fyrir Erlander
forsætisráðherra.
I NTB-framhaldsfrétt segir:
1 kosningabaráttunni var deilt.
harðlega milli stjómarflokksins og <
stjórnarandstöðuflokkanna hins
vegar hvort rikisstjóminni bæri að
i biðjast lausnar, ef hún missti 6
j þingsæti, eða hvort hún þyrfti að
! vinna 10 til þess að vera áfram
! við völd, en hún vann raunverulega
ekki færri en 12 þingsæti (Lund-
únaútvarpið í morgun sagði 11) og
fékk þannig algeran meirihluta.
— Þingæti eru 233.
Jens Otto Krag fyrrverandi for-.
sætisráðherra Danmerkur var með-
al hinna fyrstu erlendu stjómmála-
manna, sem hafa vakið feikna at-.
; hygli víða um heim.
| „Það er afmælisdagurinn minn í-
dag“, sagði Krag „og þetta var góð
afmælisgjöf".
! Hann lýsti kosningaúrslitunum
sem miklum persónulegum sigri
| Erlanders forsætisráðherra og Olof
Palme menntamálaráðherra og kvað
hina „nýju framsókn jafnaðar-
1 manna hafa orðið á kostnað komm-
I »-»■ 10. síða.