Vísir - 16.09.1968, Blaðsíða 16

Vísir - 16.09.1968, Blaðsíða 16
Mánudagur 16. september J968. Þjóðleikhússtjóri kvænfur Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleik- hússtjóri eyðir nú ásamt brúði sinni hveitibrauðsdögunum suður 1 lönd um. Kona hans er Sigurlaug Guð- mundsdóttir, dóttir Guðmundar L. Friðfinnssonar skálds. Guðlaugur og Sigurlaug voru gefin saman í fyrri viku, og héldu utan þegar í stað. I Eldhætta ( af rusli t og fyrirmyndarfólk i ÍFossvogshverfi Kæruleysi fólks í meðferð Ij spýtnabraks og annars rusls i skapar einhverja mestu eldhætt j Suna, sem slökkviliðiö glímir nú i við. Þrisvar var slökkviliðið kvatt 4 Íút um helgina vegna elda, sem i kviknað höfðu í rusli, og í tveim * tilfellunum voru hús í hættu. ^ Á Grensásvegi hafði kviknað ) í rusli í kjallara húss, sem er \ ekki lengur í notkun, en hafði» áður verið kyndistöð hverfisins. I Þama hafði safnazt saman mikill / \ eldsmatur í spýtnarusli og öðru i t drasli, en eldsins varð vart í» I tæka tíð, til þess að slökkvilið- i 7 ið réði niðurlögum hans, áður ) 1 en alvarleg hætta skapaðist af i Jhonum. 1 fljótu bragði virtist \ 10. síða t MÆLIR MED BIRGÐASÖFNUN Hafisnefnd skilar áliti HAFÍSNEFND mun skila áliti og tillögum í þessari viku. Hefur hún látið kanna útlit fyrir hafís hér við land næsta vor. Talið er, að marka megi að verulegu leyti eftir veður- fari á Jan Mayen og Sval- barða árið á undan, hverjar líkur séu á hafís hér. Óiafur Björnsson prófessor for- maður Hafísnefndar, skýrði blað inu svo frá í morgun, að kóln andi veðrátta undanfarin ár ylli því, aö telja mætti meiri lík- ur á hafís hér en í meðalári. Er athuganir á veðráttu á Jan May en og Svalbarða lægju fyrir í haust, væri sennilega unnt að spá nokkru um hafís hér við ströndina á vori komanda. Nefndin mun mæla með birgðasöfnun á þeim stöðum, er ísinn hefur gert erfiðast fyrir síðastliöin vor. Hins vegar eru ekki uppi neinar sérstakar til- lögur til þeirra svæða. í Haflsnefnd eiga sæti: Pró- fessor Öiafur Björnsson, for- maður, Pálmi Jónsson á Akri, Stefán Valgeirsson, Bragi Sig- urjónsson og Jóhannes Stefáns- son. Bróðabirgða- lausn á hús- næðisvanda Heyrnleys- ingjaskólans • Bráðabirgðaiausn hefur nú fengizt á húsnæðisvandamáli Heymleysingjaskólans, en forráða- mönnum hans hefur verið mikill vandi á höndum vegna fyrirsjáan- legra þrengsla. Húsnæði hefur nú verið tekið á leigu á Laugavegi 128, þar sem kennsla mun fara fram, en einnig verður þar svefnrými fyrir nem- endur. sem eru í heimavist skóians. Nokkrir erfiðieikar eru vegna þess, að starfsemi skólans fer fram á tveimur stöðum, eða í hinu nýja húsnæði á Laugavegi 128 og í Stakkholti 3, þar sem skólinn hef- ur verið til húsa til þessa. í ráði er nú, að fá skólabíl til að flytja börnin, en ekki mun þó endanlega hafa verið gengið frá þeirri ráðagerð. Kringlumýrarbrautin malbikuö á næstunni Á næstunni hefjast malbikunar- framkvæmdir við Kringlumýrar- braut, aö því er gatnamálastjóri, Ingi Ú. Magnússon, tjáði Vísi í morgun. Að undanförnu hafa mal- bikunnrflokkar unniö í Straumsvík við aö malbika götur til aö greið- færara sé þar milli bygginga. Á morgun lýkur starfi þeirra og þá verður tekið til viö að malbika inni í Sundum. Því næst veröur ráðizt í fram- kvæmdir við Kringlumýrarbraut, og malbikuð önnur akbrautin yfir 1 háhæðina á leiöinni til Kópavogs. Þegar þvf lýkur, verður unnið að | undirbúningi fyrir malbikun binnar I akbrautarinnar, en jafnframt er starfað að því að leggja brautina úr Kópavogi til móts við Kringkunýr- arbrautina. íVafsfíi ðingar láta smíBa skuttogara á Akranesi — Á að kosta 24 milljónir — Búinn bæði fiskitrolli og sildartrolli Ólafsfirðingar hafa stofnað hlutafélag til togarakaupa og hafa nú samið við Skipasmíða- stöð Þorgeirs og Ellerts á Akra- nesi um smíði á 350 lesta skut- togara. Vísir hafði í morgun tal af Þor steini Jónssyni, vélsmið á Ól- "■fsfirði, sem er ásamt Jóni Guð- 5önssyni skipstjóra aðalhvata- maður að þessum togarakaup- um. Sagði Þorsteinn, að ekki væri endanlega gengið frá samning- um varðandi smíði skipsins, en hann kvaðst fastlega búast við að af þessu yrði. Hlutafélag hins nýja útgerðarfé- lags nemur 2 milljónum króna, en áætlað verð skipsins er um 24 millj ónir. — Og er áætlað að smíði þess verði lokið á tíu mánuðum. Sagöi Þorsteinn að skip þetta yrði eingöngu bvggt til togveiöa bæði með venjulegri botnvörpu og ennfremur með síldarvörpu. — Sagði Þorsteinn að Þjóðverjar hefðu veitt síld í flotvörpu með góðum ár angri hér við land á sumrin og hygðust þeir nota sér reynslu þeirra, þegar til kastanna kæmi. Það er Þorsteinn E. Guömunds- son, skipaverkfræðingur hjá Skipa smíðastöðinni á Akranesi, sem teiknað hefur skipið. En teikningar hans hafa verið ,,módelprufaðar“ í Hollandi og sagði Þorsteinn að smíð in hefði veriö undirbúin svo vel sem kostur væri. Skipið verður mjög nýstárlegt, frambyggt, tvöfalt þilfar. Verður varpan tekin upp á efra þilfarið, en á hinu neðra verður gert að aflan- um. Týndist í berjamó, en kom fram aftur Skipulagðir leitarflokkar voru kallaðir út f gærkvöldi til þess aö hefja leit að konu, sem óttazt var um f Heiömörk. Hafði konan veriö í berjamó ásamt ööru fólki í hraun Inu í gærdag, en lét sig vanta, þeg ar hitt fólkið mætti á umsömdum tíma viö bifreiðar sfnar rétt fyrir myrkur. Hjálparsveit skáta og aðrir leitar menn voru í skyndi kvaddir af stað til þess að hefja leit, áður en myrk ur skylli á, en þégar leitarflokkarn- ir komu up í Heiðmörk, var konan komin fram. I áhuganum við berjatínsluna hafði hún gleymt því, í hvaða átt hún skyidi leita bílanna og hafði þvf tafizt við að leita þeirra. Þjófur stöðvaður um jmiðja nótt með sjón- varpstæki í fanginu • Það vakti grunsemdir leigu- bílstjóra í nótt, að farþegi, sem hafði stöövað hann og beðið hann að aka sér spottakom, skyldi burðast með sjónvarps- tæki um hánótt. Gerði hann lögreglunnl við- vart og kannaöi hún máiið. Kom þá líka á daginn, að sjónvarps- tækið var stoliö. Viðurkenndi maðurinn yfir heyrslu, að hann hefði stolið tækinu úr húsi einu við Leifs- götu, enda var stuttu seinna hringt frá húsinu nr. 6 við Leifs- götu og lögreglunni tilkynnt um þjófnað, sem þar hefði verið j framinn um nóttina. Sjónvarpstækið hafði staðið innsiglað og innpakkað inni í stofu tilbúið til flutnings, þvf eigandinn var hættur aö nota það, enda átti hann nýrra og fullkomnara sjónvarpstæki. Stóð þannig á hjá eigandanum, að hann ætlaði að flytja í önnur húsakynni næstu daga. En stofuglugginn hafði verið skilinn eftir opinn og þá var ekki að sökum að spyrja. Slíka freist- ingu gat þjófurinn ekki st'aðizt og inn um gluggann skreið hann. Engu stal hann öðru en tækinu, sem var honum ærið nóg byrði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.