Vísir - 23.09.1968, Side 16
Mánuðagur 23. sept. 1U68.
Fjallkóngurinn
sóttur í sjúkrubíl
§nn n Landmannu-
afrétt
Það óhapp varð i leituin Rangæ-
' ’ga á Landmannaafrétti að fjall-
':ðngur þeirra, Karl bóndi Péturs
son frá Skammbeinsstööurr datt af
hestbaki og viðbeinsbrotnaði. —
‘riúkrabíli var sendur frá Hvolsvelli
inn í Landmannalaugar til þess aö
cækia Karl. Atvikið varð með þeim
hætti, að hesturinn lenti i vilpu og
fataðist eitthvað, en við það féll
Karl af baki.
Veitti þjófí með tösku eftirför og
heyrði síðan á tai félaga hans
— Lögregian komin á spor Sigtúns-þjófanna
Athugull lögregluþjónn og
skarpskyggn hefur leitt rann-
sóknarlögregluna á sporið í
rannsókn þjófnaðarins, sem
framinn var í Sigtúni aðfara-
nótt föstudagsins s.l., en þar
var stolið 20 flöskum af á-
fengi og tóbaki, auk matvæla.
Lögregluþjónninn var sendur
seint á föstudagskvöld í Aðal-
stræti vegna kæru, sem borizt
hafði um mikinn hávaða og ó-
næði, en þegar lögreglan kom
á staðinn voru hávaðaseggirnir
á bak og burt. Bar síðan ekkert
meira á hávaða, með lögreglu-
þjónninn var við gæzlu í hverf-
inu.
Hins vegar kom hann auga á
mann, sem hann kannaðist við,
og var sá á gangi með tösku
mikla. Það var komið fram yfir
miðnætti og vakti þetta grun-
semdir lögregluþjónsins, sem
veitti manninum eftirför í íbúðar
hús eitt. Heyröi hann manninn
tala við einhverja inni i húsinu
og það, sem barst til hans af
samtalinu, styrkti enn grun lög-
regluþjónsins um, að ekki mundi
allt með felldu.
Var rannsóknarlögreglunni
gert viðvart og fór hún inn í hús
ið. Þar voru fyrir þrír menn
og við yfirheyrslur viöurkenndu
tveir þeirra að hafa brotizt inn
í vélbátinn Ásrúnu þá um nótt-
ina og stolið úr bátnum útvarps-
tæki og matvælum.
Rannsóknarlögreglan fann 1
ibúöinni kjúkling og gæs í plast-
umbúðum, en svo vildi til, að úr
Sigtúni hafði verið stolið kjúkl-
ing og gæs nóttina áður. Féll
grunur á einn þremenninganna
um, að hann mundi luma á upp-
lýsingum um það innbrot.
Áður hafði lögreglan fundið
töluvert magn áfengisins sem
stolið var, og var það geymt
annars staðar í bænum.
Mennirnir voru allir settnr í
varðhald.
Víðir Sveinsson, hinn kunni afla-
skipstjóri, sem lét lífið á síldarmið-
unum. var að ganga niður stiga úr
brúnni, er honum varð fótaskort-
ur og datt niður. — Er komið var >
að honum var hann þegar látinn.
Víðir var skipstjóri á m.b. Jóni 1
Garðari og átii báturinn eftir um
tveggja stunda siglingu á miðin er
Víðir lézt. Var haldlð strax áleið-
is til iands og kom báturinn um
klukkan 10 í morgun til Sandgerð-
is. Sjópróf munu hefiast í dag.
Viðir Sveinsson var 38 ára gamall. I
Hann lætur eftir sig konu og fjög-
ur böm.
Víðir Sveinsson
Rakst ó bróar-
handrið
Tvö umferðarslys urðu austur í j
Holtum um helgina. Auk bílvelt- j
unnar við Steinslæk rákust tveir
fólksbílar saman seint á laugardags
kvöldið á brúnni yfir Steinslæk. j
Fóru þeir fyrst utan í brúarhandrið- j (
ið og lentu síðan saman. Fólk sak ,
aði ekki við þennan árekstur.
Sorg i«t af hvarfi
tveggja reiðhjóla ,
C Mikil sorg ríkir nú hjá smá-
fólki á tveimur heimilum við ;
Grettisgötu, en tveimur reiöhjólum
f eigu þeirra var stolið á laugar-
dagskvöld. Húsmóðirin á öðru heim ,
illnu haföi samband við Vísi í morg :
um on bað blaðið að birta áskorun
tll piltanna, sem tóku hjólin að
skila þeim.
Tveir leigubílstjórar sáu til þeirra
þar sem þeir voru á leið inn í Lang
holtshverfi og segjast geta borið
kennsl á piltanna.
Það er þó engin löngun til þess ,
að láta lögregluna komast í spil-,
ið og verður málið látið niöur falla,,
,ef þeir skila hjólunum. eða hringja ,
í síma 36362. Fólk, sem kynni aö ;
hafa orðiö vart viö ókunnug hjól
er sömuleiðis beðiö um að hringja. I
Hundur beit
skottið af
ketti
Hundur nokkur austur á Eyrar-
bakka gerðist nokkuð djarftækur
fyrir nokkr.um dögum. Kött sem
hann hitti á förnum vegi hljóp
hann uppi og glefsaði í skottið á
honum. Náði hann að bíta ofantil
við mitt skottið og klippti þar í
sundur. Kattarkvikindið hljóp ýlfr-
andi heim að húsdyrum sínum.
Var hann þeear fluttur niður á Sel-
foss til dýralæknisins þar. Varð
læknirinn að stytta rófuna enn
meira til þess að komast fyrir mein
semdina og gengur kötturinn nú
um Bakkann með skottið í reifum,
eða það sem eftir er af því og það
er ekki nema sáralítill stúfur.
Finnst mörgum nóg um hunda-
eign Eyrbekkinga, sem mun vera
talsverð og hnlda margir hitnda þar
I leyfisleysi. Valsa þeir þar um
götur og eiga það til að glefsa til
vegfarenda.
Þessi mynd er af Góðtemplarahúsinu um helgina, en næstu daga veröur húsið horfið.
„Gúttó" hverfur:
A Iþingismenn leggja bílum sín-
um á grunni merkilegs húss
• Alþingismenn munu í vet-
ur leggja gljáfægðum bíl-
um sínum á grunni eins
merkasta húss Reykjavíkur,
Góðtemplarahússins, eða
Gúttó, eins og allir Reykvík-
ingar þekkja þetta hús, sem
nú er verið að rífa.
í þessu húsi hafa Reykvíking-
ar víst flestir skemmt sér, sótt
þar dansleiki, fundi, leiksýning-
ar og sitthvað fleira. Og um
árabil sóttu höfuðborgarbúar
skömmtunarseðja sína í þetta
hús, en það er sem betur fer
liðin tíð.
í ársbyrjun 1887 var stúk-
unni Einingunni leyft að gera
uppfyllingu á þessum stað. Efni
var ekið vestan af Melum um
veturinn og var mikið sjálfboöa-
starf unnið við þetta. Þá var
mikil vinna unnin við smíði húss
ins, sem tekiö var í notkup þá
þegar um haustið.
Síðan hefur þetta hús, sem
á sínum tíma þótti veglegasta
bygging, fóstrað ýmiss konar fé-
lagsstarfsemi og fram á síðustu
ár hefur húsið verið notað til
þessara hluta, m. a. hafa gömlu
dansarnir í Gúttó veriö lands-
frægir.
Allan þennan tíma, eða í 81
ár hefur Alþingi haft rétt á lóð-
inni, ef það teldi þörf á, — og
nú loks hefur Alþingi notað
þennan rétt sinn, — og enn eitt
sögufrægt hús hverfur af svið-
Fimm manns slösuðust illa i um j skurði og var ferðin það mikil á hon bílnum. Sumt hafði þeytzt út úr
ferðaróhappi, sem varð við Hár-1 um að hann þeyttist hálfvegis upp honum við veltuna. Fólkiö var
laugsstaði austur í Holtum á laug- úr skurðinum aftur og hékk þannig meira og minna slasað og var flutt
ardaginn. Sendiferðabíll af Fiatgerð í skuröbakkanum, þegar að var til Reykjavíkur. — Bíllinn er gjör-
fór þar út af veginum og lenti út í • komið. Fólkið var þá komiö út úr samlega ónýtur.
• Slátrun sauðfjár er nú hafir. af fullum gangi. Búizt er við, að
íún verði meiri en í fyrra, þótt ú< hafi rætzt um heyskap, er á leið
sumarið. Jónmundur Ólafsson hjá Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins skýrði blaðinu svo frá í morgun, að reikna mætti með, að
slátrað yrði nærri 900 þúsund fjár, í morgun hófst slátrun til
dæmis á Selfossi, í Biskupstungum, Kirkjubæjarklaustri og Vík
Mýrdal, og er hún raunar i þann veg að hefjast um land allt.
DATT ÚR STIGA
OG BEIÐ BANA
Nær 900 þús. slátrað