Vísir - 25.09.1968, Page 2
V1S IR . Miðvikudagur 25. september 1968.
Islenzkir Ólympiufarar — Jón Þ. Ólafsson
Keppir öðru sinni á OL
• Þegar Jón Þ. Ólafsson reynir
við sína byrjunarhæð á Olym-
píuleikunum i Mexíkó laugardags-
morguninn hinn 19. október n.k.
eru liðnir 2 mánuðir frá því hann
tók þátt í opinberu kappmóti í
grein sinni. Þannig er þaö að vera
frjálsíþróttamaður norðan frá ís-
landi. Að vísu tók Jón þátt í inn-
anféiagsmóti á dögunum, og stökk*
2.05 metra.
Jón er einn bezt þekkti frjáls-
íþróttamaður okkar, enda á hann
að baki 11 ár í frjálsum íþróttum
og hefur margan góðan sigur að
baki. Einu sinni áöur hefur Jón
verið með Ólympíuiiði okkar, það
var í Tókíó 1964. Þá var hann ó-
heppinn og meiddist, stökk aðeins
2 metra, sem ekkl nægði til að
komast í úrslitakeppnina.
— Þessi keppni er allt annað en
það sem viö erum vanir hér heima.
Undankeppnin hefst á morgnana.
Þetta þýðir það að við verðum að
fara á fætur kl. 4 — 5 um nóttina,
því venjulega erum við búnir að
vera vakandi í 8—10 tíma, þegar
keppni hefst. Þá er keppnin mjög
langdregin og einnig það veldur
erfiðleikum. Oft getur undankeppn
in tekið 4—6 tíma.
— Ég hef æft þokkalega að und-
anförnu, ekki of mikið, ég hef
brennt mig á því áður, en ekki of
lítið, bara haldið mínu striki, reynt
að vera frískur og léttur og með á-
huga á minni grein.
— Ég hef heyrt að lágmarkshæð
in til að komast í lokakeppnina
verði 2.09 og jafnvel 2.14, en veit
ekki sönnur á því. Allavega fara
þeir 12 beztu í úrslitakeppnina,
hvort stm þeir stökkva þessar
hæöir eða ekki. Það verður gaman
að komast í þessa miklu keppni
Byggingaverkamenn
Nokkrir vanir byggingaverkamenn geta
fengið atvinnu hjá okkur. Upplýsingar veitt-
ar milli kl. 4 og 5 miðvikudaginn 25. og
fimmtudaginn 26. september 1968. Uppl. ekki
svarað í síma.
BREIÐHOLT H.F.
Lágmúla 9. 3. hæð.
Frd
Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur
Danskennslan hefst um næstu mánaðamót.
Kenndir verða gömlu dansarnir og léttir þjóð-
dansar.
Flokkar fyrir fullorðna verða á mánudögum
og miðvikudögum í Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu.
Barnaflokkar á þriðjudögum og fimmtudög-
um að Fríkirkjuvegi 11.
Æfingar hjá sýningarflokki hefjast 3. október.
Innritun í alla flokka að Fríkirkjuvegi 11,
laugard. 28. sept. kl. 2.
Upplýsingai í símum 15937 og 12507.
Atvinna óskast
Ungur maðun um tvítugt óskar eftir atvinnu.
Talar ens’:u og hefur bílpróf.
Uppl. í síma 40810.
og vitaskuld reyni ég mitt bezta. I þótt hann sé ungur að árum, eða
Jón Þ. Ólafsson er skrifstofu- 27 ára. Hann er kvæntur Brynju
stjóri hjá Fiskimati ríkisins, enda Ingimundardóttur. Ólafur Örn, að-
eins 2 ára gamall sonur þeirra er
þó án efa „sá efnilegasti" og hver
veit nema þar sé á ferðinni maður,
sem á eftir að bæta met föður síns
einhvem tíma í framtíðinni.
Árangur Jóns frá ári til árs byrj-
aði á árinu 1957, h'tur þannig út:
1.73 — 1.80 - j.88 - 2.03 (fs-
landsmet 1961) - 2.05 - 2.06 —
2.06 — 2.10 — 2.08 — 2.05 og í ár
hefur Jón stokkið 2.06, „fram til
þessa“. segir Jón, og vonandi tekst
honum vel upp í Mexíkóborg.
—jbp—
Jón Þ. ásamt eiginkonu og ungum syni.
JOHANN EYJÓLFSSON
VARÐ SIGURVEGARI
• Jóhanni Eyjólfssyni skaut aft-
ur upp á golfmótum um síð-
ustu helgi. Jóhann hefur lengi ver-
ið einn af beztu golfmönnum lands-
ins, en hefur lítið tekið þátt í mót-
um undanfarið. Hann sigraði i opnu
móti i Grafarholti á sunnudag, lék
18 holumar á 78 höggum, Einar
Guðnason varð annar á 79 höggum
og Tómas Árnason á 80 höggum.
Vel gerð
knattspyrnu-
mynd í
sjónvarpi
VALUR—BENFICA í sjónvarpinu í
gær var meistarastykki myndatöku-
manna við stofnunina. Þetta var i
fyrsta skipti, sem þeir tóku heilan
leik upp, — og í fyrsta skipti, sem
þeir tóku virkilega góða kvikmynd
af knattspymukappleik. Því er á-
stæða til að óska þeim til hamingju
með unnið afrek.
Greinilegt er. að „aðstaða" sjón-
varpsins á þaki útvarpsstúkunnar.
svo frumleg sem hún er, er betri
en áður var, sn þá kúldruöust sjón-
varpsmenn ( stúku fréttamanna, —
en daginn sem leikurinn fór fram
sauð upp úr og fréttamenn neituðu
að láta þrjú sæti undir vélar sjón-
varpsmanna en bentu á þennan
möguleika.
f framtíðinni hlýtur sjónvarpið
að fá góða aðstöðu til að mynda,
og einhvern ríma verða eflaust lagð-
ir kaplar beint í íþróttamannvirkin
í Laugardal og þá verður e. t. v. sýnt
beint frá ýmsum merkum kappleik-
um þar. En auðvitað verður slíkt
að bíða, það kostar drjúgan skild-
ing og önnur stærri verkefni eru
framundan.
I 1. flokki í höggkeppni þessari
vann Þorvarður Ámason á 84
höggum. Sigurvegari í 2. flokki
varð Ásmundur Sigurðsson Golf-
klúbbi Suðumesja á 89 höggum,
Sveinn Gislason, GR, á 90 höggum
Á laugardaginn stendur til að
félagar Golfklúbbs Reykjavíkur
fjölmenni á opið mót í Leiru, þar
sem tvfliðakeppni fer fram. Hefst
hún ld. 13.30 og hefur blaðið verlð
beðið að hvetja félaga til að mæta
vel.
Stúlka óskast
Stúlka vön afgreiðslustörfum óskast. Uppl. á
skrifstofunni (ekki í síma)
Sælakaffi Brautarholti 22.
Zodiac '58
Til sölu nú þegar, skipti koma til greina.
Bílasalinn við Vitatorg
Sími 12500 og 12600.
Gluggahreinsun
Húsmæður — Fyriríæki — Verzlanir.
Framkvæmi gluggahreinsun, svo að glerið
verður spegilfagurt. Skipti einnig um gler. —
Reynið viðskiptin. Sími 10459 eftir kl. 5 e. h.
casa