Vísir - 01.10.1968, Side 1
Spænsk í
septembersól
Spænsk senoríta nýtur íslenzkrar septembersólar við Brúar-
hlöð. Fleiri dísir voru með í hringferðalagi til Gullfoss og
, Geysis, sem sagt er frá á bls. 9 í dag Ferðamannastraumnum
í ár er nú að ljúka og má búast við því að eftirtekjurnar verði
nokkuð miklar. Island verður í vaxandi mæli ferðamannaland,
og hingað sækja margir úr suðri.
Sérstakt kvöldeftirlit |
víBa í borginni
— Útivistart'imi barna og unglinga breytist
5 írá og með deginum i dag — Afbrotum. barna
og unglinga fer iskyggilega fjólgandi
• Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hyggst í samstarfi við
lögregluna herða eftirlit með því, að reglum um útivistartíma
barna og unglinga verði framfylgt.
• Sérstakt kvöldeftirlit verður haft í hinum ýmsu hverfum
borgarinnar, en um Ieið er heitið á alla þá, sem hafa með hönd-
um forsjá bama og unglinga, að gera sitt til þess að koma f
veg fyrir slæping og göturáp þeirra að kvöldlagi.
Frá og með deginum í dag
breytist útivistartími barna og
unglinga, skv. reglum í lögreglu
samþykkt borgarinnar, þannig
að böm innan 12 ára mega ekki
vera á almannafæri eftir kl. 20,
og börn innan 15 ára ekki eftir
kl. 22, nema í fylgd með fullorðn
um.
Ýmsar tölur í skýrslum Barna
verndamefndar frá síðustu ár-
um sýna uggvænlega þróun 1
þá átt, að afbrotum unglinga,
einkum hinna alvarlegri, fer
fjölgandi — afbrotum, sem mörg
eru framin 1 skjóli náttmyrkurs
og reiðileysis götunnar, einmitt
eftir að leyfilegum útivistartfma
lýkur.
Niðurstaða athugunar, sem ís-
lenzkur skólam. gerði á svefn-
tíma allmargra reykvískra skóla
bama nýlega, sýndi, að þorri
skólabarnanna situr vansvefta
og sjálfum sér ónógur í kennslu
stundum. Þarf engan sérfræð-
ing til þess að sjá út, hvaða af
leiðingar svefnleysi hefur á
þroska bama.
Því miður hefur reynsla ár-
anna verið sú, að regfum um úti
vistartíma bama og unglinga
hefur ekki verið hlýtt sem
skyldi. Þvkir þar helzt skorta á
samstarfsvilja foreldra, sem
ekki hafa gefið því nægilegan
gaum, hversu mikið velferðar-
mál þetta er bömum þeirra.
,VA'
.V.V,
Nærrí tveggja metra skafl-
ar á Skaga
— Búið er að ryðja bjóðveginn norður i land,
en innanhéraðsvegir viða ennbá ófærir
• Vegheflar og ruðningstæki
frá Vegagerðinni hafa unnið síð-
an í gær við að ryðja snjó af
•vegum norður í landi. Eru nú
allar aðalleiðir færar allt aust-
ur að Möðrudalsöræfum, en þar
er ennþá verið að ryðja snjó af
veginum.
Snjólagið var víða þaö þykkt að
vegheflarnir komust ekki í gegn.
Snjórinn var hvað mestur í Skaga-
firðinum og úti á Skaga voru skafl-
amir allt upp í 1,80 metra á þykkt.
Fjöldi bíla sat fastur í gær á
leiðinni norður, ýmist höfðu þeir
drepið á sér í hríöarveðrinu, ellegar
festst ,í sköflum. Nokkrir bílar sátu
ennþá á Holtavörðuheiði seinni
partinn í gær. Meðal annars lá þar
einn Bronco-bíll hálfvegis á hlið-
inni, hafði hann runnið út af veg-
inum.
Mönnum mun ráðlegast að búa
sig og farartæki sín vel, áður en
þeir legggja upp í langferðir, því
að frost er talsvert á fjöllum og
mikil hálka á vegunum.
Ennþá er ófært yfir Vopnafjarð-
arheiði og Hólssand og innanhéraðs
vegir nyrðra éru víða þungfærir eða
ófærir ennþá, en unnið verður að
því í dag og næstu daga að ryðja
þá.
Búvörur hækka
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins hefur auglýst nýtt verð á
búvörum. Hækka þær flestar
um nær fimmtán af hundraði í
verzlunum, en verðlagsgrund-
völlur landbúnaðarafurða hækk-
ar um 7%. Verðlagsgrundvöllur-
inn gildir til tveggja ára.
Mjólkin hækkar í 10,50 hver
lítri úr 9,15, rjómi í kvarthym-
um verður 26,65, en var 24,10,
akyr 26,00 hvert kíló, áður
23,65, gæðasmjör kostar 138,45
kr. hvert kg., en var 115,75. Þá
kostar 45% ostur 159,25 kr.
hvert kg. en áður 144,65. Súpu-
kjöt 97,90 kr., en áður 84,75,
heil læri kosta 111,55 en áður
97,00, kótelettur 127,15 kr„ áö-
ur 110,95 og slátur með sviðnum
haus kostar 98,59. en kostaði
áður 87,00 krónur.
Verð til bænda veröur kr.
10,61 per lítra mjólkur, og verð
á 1. flokks dilkakjöti til bænda
.erður 77,53 krónur.
Sex skip rifu nætur sínar í nótt
Örfirisey fékk i gær eitthvert stærsta
kast sem sézt hefur á sildarmiðum
Fimm eða sex skip eru
á leið til lands af síldar-
miðunum með rifnar
nætur ef tir nóttina. Mik-
ill straumur var á mið-
unum og ókyrrð.
Síldveiðiskipin byrjuðu að
kasta í fyrrakvöld eftir að
storminn lægði. Fengu allmörg
skip sæmileg köst þá um nótt-
ina og undir morgun. Vélskipið
Örfirisey var með gríðarlega
stórt kast á síðunni í gærmorg-
un og náðist ekki nema litill
hluti af síldinni úr nótinni um
borð i skinið Sagði skipstiórinn
að hann hefði aldrei séð svo
stórt kast á síðu. — Skipið
kemur til lands í dag með síld-
Nokkur skip eru nú á landleið
með slatta, en þessi tilkynntu
um afla frá þvi klukkan sjö í
gærmorgun þar til f morgun:
Örfirisey 260 tonn, Börkur
120. Gísli Árni 130 Helga 110.
Vörður 60. Tálknfirðingur 70,
Hoffell 20, Kristián Valgeir 19.
Guðbjörg tS 40. Gígia 150, Jör-
undur III. 60 og Gissur hvíti 25.
Vildu aðeins
sprengiefnið en
litu ekki við
tækjunum
Stálu 55 kg> af sprengi-
efni og 550 hvellhettum
- Það er engu Iíkara en þjóf-
arnir hafi gagngert verið á hött-
unum eftir sprengiefni, sagði
Páll Hannesson, verkfræðingur
hjá Hlaðbæ h.f. í Kópavogi, en
úr vinnuskúr verktakans var stol
ið 55 ke af sprengiefni um helg-
ina.
„I skúrnum voru geymd mæling-
artæki ýnrss konar, sem eru hundr-
uð þúsund króna virði, en við þeim
höfðu þjófarnir ekki hróflað."
Hins vegar höfðu þjófamir lagt
á sig nokkra fyrirhöfn - til þess að
brjóta upp kistu, sem sérstaklega
var höfð til þess að geyma í hvell-
hettur. 550 hvellhettum hafði verið
stolið, auk tveggja sprengjuhnalla
og þar tilheyrandi leiðslum. Hvell-
hetturnar, springa ekki nema hleypt
sé rafstraumi á þær.
Sprengiefnið, sem starfsmenn
verktakans söknuðu, þegar þeir
mættu til vinnu í gærmorgun, er af
veikari tegundunum. Önnur tegund-
in heitir ,,SIagbjörn“, en hin „Geo-
mit“. Þótt vægt sé. nægir þó svona
mikið magn af sprengiefninu til
þess að valda miklum skaða, ef
ranglega er með farið.
> 10. sfðs
Gamla konun enn
ú sjúkruhúsi
Líðan uömlu konunnar, sem á
fimmtudagskvöld varð fyrir blfreið
á Reykianesbraut á móts við Þór-
oddsstaði, er talin vera eftir von-
um sæmileg, en hún hlaut mikil
meiösli, meðal annars opið brot á
hægra fæti, handleggsbrot og á-
verka á höfði.
Ekki er með öllu Ijóst, hvernig
slysið hefur villað til. .Sjónarvottar.
sem voru nærstaddir (akandi eða
gangandi), hafa ekki gefið sig fram
ennþá, en lögregiunni bykir mikið
við liggja, að ná tali af beim. Þeir,
sem sáu atvikið, sem varð á ní-
unda timanum, eru þvi beðnir um
að snúa sér til lögreglunnar með
unnK'sinRar sfnar.