Vísir - 01.10.1968, Page 6
I*
VISIR . Þriðjudagur 1. október 1968.
TONABIO
I SKUGGA
Ét RISANS
j— Listir -Bækur -Mermingarmál
(Cast a Giant Shadow)
Heimsfræg og snilldar vel gerð
og leikin, ný, amerísk stór-
,nynd f litum og Panavision
Myndin er bvggö á sannsögu
legum atburöum.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
íwmn':
41985
Þrumubraut
(Thunder Alley)
Hörkuspennandi og mjög vel
gerð ný, amerísk mynd í litum
og Panavision. — íslenzkur
texti.
Fabian
Annette Funicello
Sýnd kl. 5.15 og 9.
Bönnuö bömum innan 12 ára.
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Puntila og Matti
eftir Bertolt Brecht
Þýðendur: Þorsteinn Þorsteins-
son, Þorgeir Þorgeirson, Guð-
mundur Sigurðsson.
Leikstjóri: Wolfgang Pintzka
Leiktjöld og búningar: Manfred
Grund
Frumsýning föstudag 4. okt.
kl. 20
Önnur sýning sunnúdag 6. okt.
kl. 20
Fastir frumsýningargestir vitji
aðgöngumiða fyrir miðviku-
dagskvöld.
Aðgöngumiðasaian opin frá kl.
13.15 til kl. 20. Sími 11200.
MMm
XXYWSrtNJK
Hedda Gabler
Sýning miðvikudag kl. 20.30
Maður og kona
Sýning fimmtudag kl. 20.30.
Leynimelur 13
Sýning föstudag ki. 20.30.
Aðgöngumiöasalan i lönó er op
in frá kl. 14. Sími 13191.
Loftur Guðmundsson skrifar:
„Kátir vegfarendur" / Þjóðleikhúsinu:
Barnakórinn í
Obernkirchen
Stjórnandi: Edith M'óller
jjarnakórinn í Obernkirchen
hefur að vissu leyti verið
kunnur hér á landi um árabil
fyrir flutning á kynningar og
kveðjulagi sínu, léttum og
skemmtilegum göngusöng og
prýðiiega viö hæfi bamakóra,
sem nefnist „Káti vegfarandinn“
og barst hingað á hljómplötu.
Þeir sem þekktu enn betur til,
munu og hafa vitað að þetta var
frægur barnakór, ekki einungis
í sínu heimalandi og ýmsum
borgt^m á meginiandinu, heldur
og vestan bafs, f Bandaríkjun-
um, þar sem hann hafði gert
víöreist og viö mikinn orðstlr.
Sfðast liðið sunnudagskvöld
gafst okkur svo kostur á að
heyra og sjá þennan barnakór
og stjórnanda hans á sviöi ÞjóÖ
leikhússins og mun óhætt aö
fullyröa, að í það skipti hafi
auglýst frægð ekki valdið nein-
um vonbrigöum.
Bamakórsöngur hefur öldum
saman verið mikið iðkaöur í
kaþólskum Iöndum sem snar
þáttur í sambandi við guðsþjón-
ustur og ýmsar helgiathafnir.
Þar hefur skapazt viss söng-
hefö — „englasöngurinn", ef
svo mætti að orði komast — og
fegurstu kirkjutónverk verið
samin, þar sem bamaröddum er
ætlaður veigamikill þáttur í
flutningi, eða jafnvel fyrir
barnaraddir eingöngu. Þaðan
hefur svo bamakórsöngurinn
breiðzt út og náð fótfestu, og
ekki fyrst og fremst innan kirkj
unnar, eftir að fullkomnara
skólakerfi ’ er víðast hvar komið
til sögunnar, og þar með kerfis-
bundin söngkennsla í bama-
skólum.
Það gefur auga leið hve barna
kórastjórnendur hljóta að eiga
erfiðara með að ná listrænum
árangri í meöferð og flutningi
viðfangsefna en þeir, sem ráða
yfir fullþroska söngfólki. Barn-
ið heldur ekki rödd sinni ó-
breyttri til söngs nema í fáein
ár, fyrir þaö er stjórnandan-
um ókleift að byggja upp nokk-
um fastan og þjálfaöan kjarna
— lengsti hugsanlegi „kóraldur“
þátttakendanna er sex ár, og
þó tæplega svo langur í einni
og sömu rödd. í samræmi viö
það reynir mun meira á þjálf-
unarhæfni og stjórnlagni þeirra,
sem barnakórum stjóma, en
nokkurra annarra, jafnvel þótt
tekið sé tillit til veigaminni við-
fangsefna, eöa að þau séu færö
I þann búning er geri þau slík-
um kórröddum viðráðanleg. Þeg-
ar á allt þetta er litið, þá geng-
ur sá árangur kraftaverki næst,
sem stjómandi Barnakórsins í
Obernkirchen, Edith Möller, hef
ur náð. Sennilega væri sá mikli
árangur óhugsandi í öðru landi
en Þýzkalandi. Þar fer saman
aldagömul tónlistarerfð og tón-
listarmenning, fáguð smekkvisi,
nákvæmni og ströng ögun —
og svo þessi sérkennilega þýzka
viðkvæmni, sem verður uppmna
leg og innileg í söng barnanna,
þótt manni finnist hún það ekki
alltaf, þegar þeir eldri eiga hlut
aö máli. Nákvæmnin í þjálfun
raddanna og meöferö viðfangs-
efnanna, samfara fáguðustu
smekkvísi, er beinlínis undra-
verð — eins og bezt kom fram
þegar lögin dóu út í veikustu
pfanissimótónum, eins og hörð-
um víxlgangi radda — og það
lá við sjálft að manni eins og
létti, þegar börnin komu fram
og hneigðu sig fyrir lofi og
hrifningu áhorfenda — skemmti
lega ósamtaka. Þá sá maður þó,
að þetta voru barnsleg böm,
þrátt fyrir agann.
Það er öldungis óþarfi að
telja upp þau viðfangsefni, sem
kórinn flutti — flutningur þeirra
allra einkenndist af sömu list-
rænu smekkvísinni og nákvæmn
inrti — nóg að taka fram, aö
þau vöktu öll ákafa hrifningu
V,
v.v.vv.
LV.WAV.V.
Nokkrir „englanna með flétturnar".
áhorfenda. Ég get þó ekki stillt
mig um að geta þess sérstak-
lega, að kórinn söng tvö ís-
lenzk lög, þjóðsönginn í upp-
hafi tónleikanna og „Keisari
nokkur, mætur mann“ í þjóö-
lagaþættinum. Þar kom hin al-
hliða nákværpni stjómandans
ekki aðeins fram I söng kórsins,
heldur og því furðulega valdi,
sem hann hafði náð á fram-
burði tungunnar — sem jafn-
vel sumir a'f okkar eigin söngv-
urum mættu taka sér til fyrir-
myndar. Þar var svo sannarlega
ekki kastað höndum til neins.
Eins var það um flutning ensku
textanna.
Hafi Bamakórinn í Obern-
■ ■ m m m m i
kirchen beztu þakkir fyrir kom-
una, eða réttara sagt viökom-
una hérna á enn einu ferðalagi
sínu vestur um haf. Sú koma
verður okkur ekki síður minni-
stæð en margra fuilþroska og
frábærra listamanna, sem gert
hafa stuttan stanz á sviði Þjóð-
leikhússins á sömu leið um garð.
Og það er áreiðanlegt að sjaldan
munu hafa fylgt þeim jafn inni-
legar óskir um „góða ferð“ og
þessum ungu, hugðnæmu og
hæversku gestum, þegar þeir
gengu út af sviðinu við kveðju-
lag sitt, Káta vegfarandann eftir
F.W. Möller — bróður hins frá-
bæra stjórnanda barnakórsins,
Edith Möller.
GANILA BÍÓ STJÖRNUBÍÓ HAFNARBÍÓ
* WINNER OF 6 ACADEMY AWARDSI í ummammw~*um, ACAaOPOmiFfMOUCTION OraW DAVID LEAN'S FILM föaaSli Of BORIS PASIERNAKS í f doctoh ZIIilíVGO — íslenzkur texti. — Sýnd kl. 5 og 8.30. Bönnuð innan 12 ára. — Hækkað verð. — Cat Ballou islenzkur texti. Ný kvikmynd: — Lee Marvin, Jane Fonda. — Sýnd kl. 5, 7 og 9. Mannrán i Caracas Hörkuspennandi ný Cinema scope litmynd með George Ardisson Pascale Audret. íslenzkur texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ
LAUGARÁSBÍÓ
BÆJARBÍÓ Mennirnir minir 6 (What a Way to go) tslenzkur texti. Viðurkennd ein af allra beztu lamanmvnd sem aerðar hafa verið síðustu árin Shirley McLain Dean Martin o. fl. Sýnd kl. 5 og 9. t-lótfinn trá Texas (Texas ^cross the river) Sprenghlægileg skopmynd 1 rechnicolOT Aðalh'.'verk Dean Martin Alain Delon Sýnd kl 5. 7 og 9. Islenzkur texti.
Söngur um v/ðo veróld Heimsfræg ítölsk söngvamynd í litum meö íslenzkum texta. Sýnd kl. 9.
HÁSKÓLABÍÓ
Yfirgefib hús
(Thi property is condemned)
Aafar fræg og vel leikin ame-
rísk litmynd.
Aðaihlutverk:
Natlie Wood
Robert Redford
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9.
AUSTURBÆJARBIO
I skugga dauðans
Hörkuspennandi. ný. itölsk
kvikmvnd f litum og Cinema-
scope
Stéphan ForsytW
Anne Shermann
Bönnuð bömum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.