Vísir - 14.10.1968, Blaðsíða 2
VI S IR . Mánudagur 14. október 1968.
Þunna loftslagið,heilnænttJ
fyrir spretthlauparana
Heimsmetin i hættu i Mexikó —* Greene á 10.0,
en tók aðeins á fyrstu 80 metrana
• Þunna loftslagið í Mexíkó virðist hagstætt hlaupurum i 100
metrunum og styttri hlaupum og tæknilegum greinum. Und-
anrásir í 100 metra hlaupi hafa aldrei verið eins stórkostlegar og
í gær í Mexíkó. Til að vinna riðil þurfti að sigra á 10.4 sekúndum,
þar sem „lakastur“ tími náðist.
Þegar í fyrsta riöli hófst hin
mikla keppni og góðu tímarnir.
Charlie Green, blökkumaöurinn frá
Bandaríkjunum vann þá á 10.0
Ron Whitney — hann hefur unnið 18 keppnir á 2 árum, aðeins se^' ísfnt gildandi heimsmeti og
tapað tvisvar. Þjóðverji'nn Schubert kom á óvart í keppni gegn OL-meti. Annar varð Japaninn
honum í gær, þá skaklcaði aðeins sekúndubroti. Iijima á 10.2, Kunala frá Singapore
á 10.4 og Pólverjinn Manika á
10.4.
Green vakti óhemju athygli í
gær, — öllu meiri athygli vakti þó
léleg frammistaða Rússa í þessari
grein. Aðeins Vladisalv Sapeya
; komst áfram í milliriðla, og mátti
raunar þakka fyrir, því að aðeins 3
beztu í riðli komast áfram, eða 27,
og að auki 5 þeir, sem áttu næst-
beztu tímana. og lenti hann meðal
þeirra, þeir voru 6, sem höfðu
hlaupið á 10.4 og komust 5 þeirra
áfram, einn varð eftir.
Undanúrslitin undirstrikuou ann-
ars það sem menn vissu fyrirfram,
að Bandaríkjamenn, Frakkar, Kúbu-
menn Austur- og Vestur-Þjóðverjar
munu verða skæðastir í miiliriðlum
o.g uncianorsntum.
Svo að vikið sé aftur aö hlaupi
Charlie Green, þá hljóp hann aðeins
fyrstu 80 metra hlaupsins á fullum
hraða. Ekki er því ólíklegt að
heimsmetið verði jafnað, — jafnvel
slegið í dag.
Þrír Afríku-
menn á
verðluunapnlli
Guðmundur langt frá sínu bezta
og úr keppni
— Sennilega verða vonbrigbin meiri i
Ungverjalandi — Varju skorti 4 sentimetra
til oð komast áfram —
■ Það er óhætt að
segja, að árangur Guð-
mundar Hermannssonar
í kúluvarpinu á Ólympíu
leikunum í gær hafi vald
ið vonbrigðum hér á ís-
Whitney og Schubert
voru í sérflokki í
400 m grindahlaupi
Ron Whitney frá Bandaríkjunum
byrjaðí glæsilega í undankeppninni
í 400 metra grindahlaupi, hann
vann þar á 49.0 sem er sekúndu-
broti betra en gildandl heimsmet,
en tími hans var nýtt Ólympíumet.
Hann fékk harða keppni frá Rainer
Schubert frá V.-Þýzkalandi, sem
hljóp á 49.1 sek., sem er nýtt
Evrópumet.
Undanúrslit i keppninni fara
fram i dag og úrslit á þriðjudag.
Reiknað er meö sigri Whitneys,
en greinilegt er að Þjóöverjinn get-
ur gert strik í reikninginn. Þessir
tveir hlauparar voru í sérflokki í
riðlunum fjórum i gær.
landi. Hann varpaði kúl-
unni 17.35 metra og varð
17. af 20 keppendum.
Tólf þeir beztu halda á-
fram í úrslitunum í dag.^
— Evrópumeistarinn frá
Ungverjalandi verður
heldur ekki í þeim hópi,
en hann er Ungverjinn
Vilmos Varju, hann
skorti 4 sentímetra til að
fá að halda áfram, varp-
aði 18.86.
Um það bil 10 þús. áhorfend-
ur voru mættir til að horfa á
undankeppnina, sem fór fram í
sólskini og bezta veðri.
Sannarlega vakti það mestu
athyglina að Varju skyldi ekki
takast að komast í lokakeppn-
ina. Roland Matson frá Banda-
rikjunum, heimsmeistarinn í
greininni, þurfti aðeins eitt kast,
— þar mældist 20.68 metrar og
þar með var hans keppni þann
daginn lokið. Þetta var nýtt
Ólympíumet.
Aðrir í lokakeppninni urðu
þessir:
Gutsjin, Sovétrikjunum, 19.88,
Woods, USA, 19.79, Hoffmann,
A.-Þýzkalandi, 19.75, Pierre
Colnard, Frakklandi, 19.57,
Birlenbach, V.-Þýzkalandi, 19.43,
Maggard, USA, 19.26, Grabe,
A.-Þýzkalandi, 19.15, Komar,
Póllandi, 19.09, Glöckner, V.-
Þýzkalandi, 19.08, Mills, Nýja-
Sjálandi, 19.00.
ÞRÍR AFRÍKUMENN stóðu á
verðlaunapállinum um miðnæt-
urleytið (að ísi. tíma), þegar
fyrstu verðlaunum frjálsíþrótta-
keppni ÓL var úthlutað í nótt.
Þeir höfðu unnið guli-silfur-
brons í 10.000 metra hlaupinu.
Það, sem vakti athygli var að
allir eru þeir frá háfjallaiöndum.
Heimsmethafinn Ron Clarke
varð að láta sér nægja 6. sætið
í keppninni og Kenyamaðurinn
Kipchonge Keino var dæmdur úr
Ieik fyrir að hafa farið út af
brautinni.
Sigurvegarinn var hinn lítt þekkti
Kenyamaður Temue á 29.27.0,
»-> 10. síða.
Fóru ullnr í
aðalkeppnina
ð Þaö var heldur léleg mæting
í spjótkasti kvenna á OL í
Mexikó í gær. Stúlkurnar mættu
til keppni, en svo fáar að undan-
keppninni var aflýst, allar fara þær
í úrslitakeppnina í dag.
MÍ, _____________ .. ^ ..
Bandaríkjamennirnir Greene (til vinstri) og Jimmy Hines í keppni.
Þeir eru greinilega meðal þeirra sterkustu í 100 metrunum. Hér
^ hlupu þeir á 9,9 sek. ásamt Ronnie Smith sem sést ekki á myndinni.
■nBHBaae.