Vísir - 14.10.1968, Blaðsíða 9

Vísir - 14.10.1968, Blaðsíða 9
V1SIR . Mánudagur 14. október 1968. 9 Gísli Pétursson: „Nei, ég mundi álíta, að krakkarnir yrðu leiöir ef þeir þyrftu að hanga Iengur á skólabekk, og námsárangur- inn yröi sennilega eftir því.“ Um olnbogabörn bióðfélagsins: Það er ekki hæet að horfa „Teljið þér lengingu skólaársins æskilega?“ Bragi Gíslason: „Nei. Börnin yrðu kannski of kúguð af langri skólasetu. i Guðbjartur Björgvinsson: „Nei, það held ég ekki, þetta er fjanda kornið alveg nógu langt eins og nú er“. David Pitt: „Það mætti alveg lengja skólaárið. Einkum og sér, í lagi vegna þess að núna eri sáralítið fyrir unglinga að geraj yfir sumartímann, svo að hvað > hafa þau betra við tímann að gera heldur en að læra?“ María Magnúsdóttir: „Já!“ — segir formaður VERNDAR □ Mönnum veitist erf- itt að leggja trúnað á sögur, sem sagðar eru frá fyrri tímum um menn, sem neitað hafa þreyttum ferðalöngum um húsaskól og aðhlynn ingu. Sent þá, þegar slíka bar að garði, aftur út í stórhríð og fárviðri, þar sem þeir hafi orðið úti. □ Enn síður mundu menn trúa því, að slíkt gæti átt sér stað nú á tímum. Þaðan af síður, að slíkt gæti hent sig í þéttbýli, þar sem ein bæj arleið er orðin að einni húslengd aðeins. A ð einhver gæti orðið úti í henni Stór-Reykjavík? Hver mundi trúa því, ef honum væri sagt það? Að einhver hefði dáið af vosbúð og kulda, sem fylgt hefði í kjölf.ar langvarandi nær- ingarskorts - HUNGURS — en þó aldrei verið lengra burtu frá næsta eldhúsi en svo, að hann hefði auðveldlega getað fundiö matarlyktina leggja þaðan. „Segöu öðrum en mér, góði!“ Eitthvað líkt þessu yrðu vafa laust þau viðbrögð, sem slíkur sögumaður mundi fá. Varast skyldu menn þó að væna við- komandi sögumann um lygi, því vel gæti það verið satt, „Hvernig getur það átt sér stað?“ mundi kannski einhver vilja spyrja. „Gat maðurinn ekki barið ein- hvers staðar upp og beðiö um húsaskjól og matarbita?" Jú, jú. Það gat hann vel, en enginn vildi hafa neitt saman við hann að sælda. Þegar hann var að snudda nærri íbúðarhús- um, skipuðu höstugar raddir honum að snauta burt, eða þá, að dregið var fyrir glugga og banki ekki anzað. Þetta var nefnilega drykkju- ræfill og róni. Áttj engan að og hvergi höföi sínu að halla. Fyrir löngu útskúfaður og óalandi tal inn. Algengustu eftirmælin, sem mannauminginn hlaut voru: „Farið hefur fé betra!“ O—T jþetta þarf ekki aö vera svo ó- trúlegt, því aö oft hefur fólk lesið um menn, sem hlot- ið hafa svipuð örlög úti í heimi í stórborgum. eins og París op annars staðar. Á frosthörðum vetrum hirða þeir lík þessara manna af strætum Parísar og undan brúm Signu. Sem U3tur fer eru þess ekki mörg dæmi hér. en því aðeins að bakka tvennu eða þrennu. Upphituðum fangaklefum lögreglunnar sem oft sér aumur á þessum mönn- um og hýsir þá um stundarsak- ir meðan þeim er útveguð vist á drykkjumannahælum, en það getur tekið tímann sinn. Og heimili sem félagasamtökin VERND reka, þar sem þessum mönnum er oft veitt næring og stundum aðhlynning og gisting, þótt vistheimili VERNDAR sé raúnverulega ætlað öðrum. „Vernd, sem hefur fangahjálp á stefnuskrá sinni, ætlaði þetta heimili sem samastaö fyrir fanga, sem tekið höfðu út refs- ingu, en hefðu ekkert heimili og ættu hvergi inni, en gætu haldið til á heimilinu, á meðan þeir væru að koma undr sig fótunum á nýjan leik“, sagði Þóra Einars dóttir, formaður VERNDAR í viötali við blaöamann Vísis. „Það er i samræmi við tilgang og lög félagsins. sem var stofn að 19. okt. 1959 að undirlagi Kvenréttindasambands Islands og að fyrirmynd samtaka í ná- grannalöndunum, sem vinna að því að styrkja og styðja fyrrver andi fanga. VERND hóf rekstur vistheim- ilis fljótlega eftir að starfsemi félagsins var hafin, því strax kom í ljós, að þörfin var brýn. Það þurfti nauðsynlega eitthvert heimili, þar sem fyrrverandi fangar, sem komu kannski pen- ingalausir, klæðasnauðir, og heimilislausir frá Litla Hrauni, gætu haldiö til fyrst í stað, meðan þeir voru að byrja að vinna. Annars gat neyöin hrein- lega rekið þá út á afbrotabraut- ina á nýjan leik. I sex ár rákum við heimili á Stýrimannastíg 9 á eigin kostn að. Strax og við höfðum komiö þvl upp, fylltist það á auga- bragði af fyrrverandi föngum og fleirum. Smám saman þróaðist svo starfsemi heimilisins í þaö, aö vera þak yfir höfuöið — ekki aðeins fyrrverandi fanga og fyrrveraadi drykkjumanna, held ur einnig — þeirra, sem hvergi áttu höfði sínu að halla annars staðar", í „Hvernig?" O—T aö kom smám saman í ljós að þetta voru margir hverj ir sömu mennirnir, sem höfðu átt að stríða viö áfengisvanda- málið og þeir sem höfðu afplán að refsingu. Þau mál eru mjög samtvinnuð. Auk þess hefur það átt einnig drjúgan þátt í þessari þróun að ýmsum styrkjum, sem félaginu hafa verið veittir, fylgja nokkr ar kvaðir, sem það verður að taka að sér um leið. Þegar við fluttum heimilið úr húsinu á Stýrimannastíg 9 lét Reykjavík urborg okkur f té þetta hús í Grjótagötu, sem við rekum heim iliö í nú. 4 staðinn hýsum við fólk, sem bærinn biöur okkur fyrir, en það er eðlilega ekki mdilega fyrrverand: fangar. Okkur er úthlutað 100 þús. króna styrk árlega úr Gæzlu- vistarsjóði en i staðinn skjótum Frú Þóra Einarsdóttir, formaður Verndar. við skjólshúsi yfir menn frá Gunnarsholti og Víðinesi, sem heldur eru ekki alltaf fyrrver- andi fangar. Svo er það bara þörfn, sem við hjá VERND höfum oröiö svo áþreifanlega vör við, að er svo brýn. Það er ekki hægt aö horfa upp á þessi olnbogabörn þjóðfélagsins, sem erfiöast eiga og hvergi fá inni, deyja, vegna þess eins, að þau fá ekki húsa- skjól. Þaö hefur komið fyrir, aö við höfum sótt einn og einn þessara manna, þar sem þeir hafa veriö næstum því að dauða komnir, að því að manni virtist — og látið þá snyrta sig, gefiö þeim aö boröa og leyft þeim aö sofa inni nokkrar nætur. Þetta hefur hresst þá upp, en það veldur okkur erfiðleikum, hve þröngt er hjá okkur. Þetta getum við því miður ekki, nema þegar al- ger neyð ríkir. Öll rúm á heim- ilinu eru fullskipuö og við get- um ekki holað öllum niður hjá okkur, sem til okkar leita“. „Hvaö rúmast margir hjá ykk- ur?“ „Við höfum rúm fyrir tólf á heimilinu, og i húsinu við hliö ina þar sem skrfstofur okkar eru, höfum við rúm fyrir fimm. Venjulegast búum við 17 í einu, en þeir eru oft tuttugu. Á veturna verðum við að vísa mörgum frá og hingaö fá menn ekki að koma ef þeir eru undir áhrifum áfengis. — Þrátt fyrir þrengslin reynum við alltaf að sjá til þess, aö geta skotið skiólshúsi yfir fyrr- verandi t'anga, beri þá að garði, enda er tilaangur heimilisins sá. Hitt er þó einnig ! anda start- seminnar að liösinna þeim, sem hvergi eiga höfð,i sfnu að halla enda þótt ekki sé um að ræða varanlega endurhæfingu. Að vísu er endurhæfingarstarfsemi það sem við leggjum áherzlu á en fyrirbyggjandi starfsemi á einnig mikinn rétt á sér. Meö þvi að veita þessum mönnum húsaskjól gerir VERND-töluvert til þess að fyrirbyggja að þeir neyöist ti! þess að brjóta af sér við lögin. Stundum hefur það jafnvel komið fyrir, að einn og einn hef ur tekiö sig á, sem við höfum veitt aöhlynningu og hjálpaö síðan til þess að fá vinnu. Það hefur komið fyrir“. Tlvernig gengur þá endurhæf- íngarstarfsemin? Komið þiö mörgum aftur til manns?“ „Því miður er árangurinn ekki sá, sem unnt væri aö ná, ef aöstaða væri til þess meiri. Af reynslu nágrannaþjóða okkar sýnist mér þurfa að koma upp endurhæfingarheimili ef góður árangur á aö ást. Það er hér sannarlega þörf fyrir heimili, sem tæki á móti mönnum í hvaða ástandi, sem þeir væru — ölvaðir eða sjúk- ir.Þaö þyrfti að vera nokkurs- konar upptökustöð með læknis hjálp með aðstöðu fyrir vinnu handa þeim innandyra, þegar þeir væru komnir ,á bataveg og síðan heimili fyrir þá fyrst í stað þegar þeir færu út í lífið aftur. Það er blátt áfram nauðsyn að slíku heimili en það er líklega að byggja sér skýjaborgir, að hugsa til slíks, þvi eins og stendur skortir Vernd bæði fjármagn og aðstöðu til þess að geta rekið slíkt heimili." „lYTanni skilst aö systurfélög Verndar á hinum Norður- löndunum fái miklu áorkaö. Eru þau mikið öf!ugri?“ „Þau eru mjög öflug, enda m-> 10. síða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.