Vísir - 14.10.1968, Blaðsíða 16
Jamberað í Beneventumklettum I
j
Mánudagur 44. október 1968.
Á laugardagskvöld var ekið á
hest á Reykianesbraut, þar sem
hún liggur ofan við Hafnarfjörð.
‘■'kuggsýnt var á þessum slóðum
og sá ökumaðurinn ekki hestinn
á veginum, fyrr en um seinan.
Lðga þurfti hestinum vegna meiðsl-
anna og billinn var óökufær eftir
áreksturinn.
■ 400 manna blysför
lagði af stað frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð
klukkan tæplega átta á
laugardagskvöld. Fjöru-
tíu blys voru borin í
göngunni, sem heitið var
að „Beneventumklettun-
um“ utan í Öskjuhlíðinni
sunnanverðri.
Ekið á hest
Ók í vinstri villu
og stakk svo af
Þr'ir b'ilar 'i árekstri
Eftir að hafa valdið þriggja bíla
Irekstri á Hafnarfjarðarveginum á
sunnudagskvöld, stakk einn öku-
maðurinn af á bifreið sinni. Hann
hafði ekið á vinstra vegarhelmingi
og mætt tveim bílum í Engidal hjá
Keflavfkurveginum, en þeir voru
á leið til Reykjavíkur.
Báðir bílarnir höfðu stanzað, þeg-
ar þeir sáu villu mannsins, en þaö
kom fyrir ekki. Hann ók á þann
fremri, sem við áreksturinn kast-
aðist á þann seinni.
Þegar ökumaðurinn hafði náð
valdi á bifreið sinni aftur, ók hann
á brott og skeytti engu um hina,
sem eftir urðu. Hann komst þó
ekki langt og náðist skammt frá.
Féll á hann grunur um að hafa
ekið undir áhrifum áfengis.
Styður viðræðurnar
Þarna voru menntaskólanem-
endur á ferðinni og meðal þeirra
voru 120 busar, sem taka átti
hátíðlega inn í skólann.
„Beneventum-klettarnir" eru
gamall samkomustaður nem-
enda í Bessastaðaskóla og síðar
Menntaskólans. Tjáði forseti
nemendaráðs skólans, Ari Ólafs-
son blaðinu, aö þar heföu nem-
endur safnazt í gamla daga þeg-
ar þeir voru að ræða mál, sem
kennarar máttu ekki hlýða á.
Eftir ræðu og söng hófust
„jamberingarnar" eða inntöku-
athöfnin sjálf. Voru busarnir
„jamberaðir", sem útleggst:
„Beygðir saman til þess að votta
sér eldri nemendum undirgefni“.
Störfuðu 20 böðlar við verkið,
sem ekki hefur gengið átaka-
laust.
AÖ því loknu var aftur snúið
til skóla og stiginn dans í til-
efni þess að 120 nemendur 0
höföu hátíðlega verið teknir inn I
f fyrsta bekk skölans.
Þess má geta að í Kópavogi g
undraðist fólk ljósaganginn i B
Öskjuhlíðinni á laugardagskvöld [t
ið. Skýringin er sem sé sú sem |
að framan greinir og mega Kópa |
vogsbúar vænta þess að sjá svip- |
aða sjón næstu áratugina, þvi að |
líklega hefur hinn ungi mennta- 1
skóli skapað sér „tradisjón". 0
Á fundi flokksráðs Sjálfstæð-
isflokksins á föstudag og laug-
ardag var sambykkt einróma til-
Iaga um stuðning við viðræður
milli stjórnmálaflokkanna, sem
nú standa yfir.
Ung stúlka sýnir
gler- og leirmuni
» Fyrir h lgina opnaöi Jónina
Guðnadóttir sýningu í Unuhúsi á
"ieri og le'rmunum.. Jónína er meö-
limur í SÚM. Hún stundaði nám
við Handíðaskólann og siðar Mynd-
listarskólann. Auk þess hefur hún
stundað 'm í list sinni í Sviþjóð
um fjögurra ára skeið.
© Á sýningunni í Unuhúsi eru
eins og fyrr segir einkum gler- og
leirmunir. Gripirnir eru allir til
sölu, og sýningin er opin daglega
til 20. október.
Tillagan var á þessa leið: „Flokks
ráð Sjálfstæðisflokksins lýsir sam-
þykki sínu á, að efnt hefur veriö
til -dðræðna á milli stjórnmála-
flokkanna um hinn mikla efnahags-
vanda þjóðarinnar, sem skapazt
hefur vegna óhagstæðs árferðis,
aflabrests, verðhruns og markaðs-
örðugleika. Flokksráðiö treystir
fulltrúum flokksins I viðræðunefnd
og öðrum forustum. til að halda
svo á málum, að sem bezt verði
tryggðir hagsmunir þjóðarheildar-
innar með öruggum rekstri höfuð-
atvinnuvega hennar og þar af leið-
andi almennri atvinnu".
FlokksráJsmenn viðsvegar að af
landinu fjölmenntu á fundinn. For-
maður Sjálfstæðisflokksins, dr.
Bjarni Benediktsson, forsætisráð-
herra, setti fundinn og stjórnaði
honum. Miklar umræður urðu um
stjórnmálaviðhorfiö og erfiðleika
efnahagslífsins.
Það var mikill kraftur í „jamberingunum" á laugardagskvöldið.
Detta kommúnistar út úr
öilum nefndum?
Hannibal semur við Framsókn
• Svo kann að fara, að komm-
únistar fái ekki menn kjöma í
neinar nefndir á Alþingi, eftir
að Hannibal Valdimarsson og
félagar hans hafa samið við
Framsóknarflokkinn um nefnda-
kosningar. Stjórnarflokkarnir
munu væntanlega bjóða fram
sameiginiega lista og tryggja
sér meirihluta í öilum nefndum.
1 kosningu fimm manna nefnda
hafa leifar Alþýðubandalags-
manna, sjö þingmenn, ekki
styrk til að fá fulltrúa. Hins
vegar kynni að verða um hlut-
kesti að ræða við kosningu í
sjö manna nefndir milli efsta
manns á lista Framsóknar og
Hannibals. Gæti svo farið, að
kommúnistar töpuðu hhitkesti
og misstu fulltrúa sfna.
Hannibal Valdimarsson,
Jónsson og sennilega Steiagrinmr
Pálsson hafa nú samið vfð Fr««n-
sóknarflokkinn. Þjóðviljinn tehir þá
félaga þar með ekki lengur Alþýðu-
bandalagsmenn, en Hannibai hefur
lýst því yfir, að þeir félagar hafi
ekki rofið bandaiagið. Þeir hafa um
alllangt skeið þingað einir og ekki
talið sig eiga samleið með öðrum
þingmönnum Alþýðubandalágsins.
Nú mun hafa horft svo, að meiri
hluti þingmanna bandalagsins hafi
hugsað sér að svipta þá sætum
í nefndum. Með samkomulaginu
við Framsókn hafa Hannibalistar
tryggt sér sætin.
í dag verða kosnir forsetar á
Alþingi og væntanlega fulltrúar í
ýmsar nefndir.
Norræna sýningin
opnuð á Akureyri
Samnorræna hand- og listiðnað-
arsýningin, sem 20 þús. manns sáu
f Reykjavík, var opnuð á Akureyri
á laugardag. Verður sýningin opin
þar á tveim stöðum, Hótel KEA
og í sal Landsbanka íslands til
27. okt.
Við opnunin þar sem fjöldi gesta
var viðstaddur flutti Ivar Eske-
land framkvæmdastjóri Norræna
hússins ávarp þar sem hann sagði
m. a.:
„Eins og við höfum tekið fram,
er því miður ógerlegt fyrir okkur
að flytja Norræna húsið, það er
ekki útbúið með vængi, jafnvel
Norræna hand- og listiðnaðarsýningin komin til Akureyrar. Fjöldi gesta var viðstaddur opnunina. þótt aó útbúnaður þess sé aö öðru
Hér sjáum við nokkra þeirra. Fremst á myndinni er Bjarni Einarsson bæjarstjóri og frú. leyti fyrsta flokks. Nú er aftur á
móti orðrómurinn um Húsið fyrir
löngu floginn út yfir öll Norður-
löndin og ennþá lengra; einnig til
Akureyrar."
Og síðar sagði Eskeland: „Um
leið og ég lýsi yfir opnun þessarar
sýningar á Akureyri, vil ég nota
tækifærið til að leggja áherzlu á
þá von mína, að Norræna húsið
fái oftar en einu sinni leyfi til
að koma ningað til Akureyrar með
það, sem það hefur upp á að bjóða,
hvort heldur sem um sýningar eða
fólk er að ræða, sem við höfum
trú á að hafi eitthvað að bjóða,
sem geti gert lífið örlítið auðugra,
litríkara og tilbreytingarmeira
fyrjr okkur öll.“