Vísir - 12.11.1968, Side 1
VISIR
58. árg. - Þriðjudagur 12. nóvember 1968. - 256. tbl.
Gengistap olíutélag-
anna 30 milljónir
Olíuhækkunin veldur útgerðinni stórfelldum
erfiðleikum — Bátaeigendur verða sumir að
borga út i hönd
Bensín og olía hækkuöu í gær,
svo tíl um leiö og tilkynnt haföi
verið um gengisbreytinguna. Ben-
sínlftrinn kostar nú 11 krónur,
hækkar um 2,10 og hver lítri af
olíu kostar 3,27 krónur í stað 2,76
kr. áður.
Ástæðan fyrir því að olía og
bensín hækka svo fljótt er sú, að
olíufélögin eiga eftir að borga þá
olíu sem þau eru að selja. Sam-
kvæmt samningum hafa íslending-
ar þriggja mánaða gjaldfrest á olíu
hiá Rússum og eiga olíufélögin því
eftir að borga þá olíu sem seld
hefur verið á gamla genginu und-
angengna mánuði. Er gjaldeyristap
olíufélaganna við gengisfallið því
um það bil 30 milljónir króna að
bví er Vísir fékk uppiýst hjá Vil-
hiálmi Jónssyni, framkvæmdastjóra
Oliufélagsins h.f. — Sagði hann að
hver dagur hefði kostað olíufélög-
in um 900 þúsund í hreinu tapi,
ef beðið hefði verið með verðbreyt-
inguna, en það er Verðlagsnefnd,
sem ákveður hana.
Margir höfðu búizt við meiri
hækkun á bensíni við gengislækk-
unina. En þess ber að gæta að
hækkunin kemur aðeins á inn-
flutningsverð bensínsins, en vega-
gjaldið, sem er nærri helmingur
af bensínverðinu, er fast gjald og
hækkar ekki. Tollar hækka hins
vegar til samræmis við innflutn-
ingsverðið.
Olíuhækkunin kemur sér mjög
'Ila fyrir útgerðina og eiga ma-rgir
útvegsmenn í erfiðleikum með að
halda bátum sínum úti vegna olíu-
kostnaðar, ekki sizt þar sem svo
er komið að útgerðirnar hafa ekki
lánstraust hjá olíufélögunum og
verða að borga olíuna á bátana
út f hönd.
VÖKUNÓn í ALÞINGI
Alagning takmórkuð við 30°/o af hækkuninni
Það voru syfjaðjr Alþingis-
menn, sem fóru heim um fimm
leytið í morgun eftir langan og
viöburðarikan dag og nótt.
Fundum lauk um hálf flmm í
efri deild. Frumvarp rikisstjórn-
arinnar var samþykkt með 11:9
í deildinni og haföi áður hlotið
samþykki neðri deildar meö
21:18.
1 iögunum eru ákvæði um að
heimila aðeins verzlunarálagn-
ingu á sem næst 30% þeirrar
hækkunar, sem leiðir af gengis-
breytingunni. og er þá miðað
við hækkunina frá því fyrir
setningu laganna um 20% inn-
flutningsgjaldið. Þetta gildir þó
ekki um áiagningu á vöru, þar
sem núgildandi heildsöluálagn-
Ing er 6,5% eða lægri. Ekki má
hækka verð á birgöum inn-
fluttra vara, sem greiddar hafa
verið á hinu gamla gengi.
Að öðru Ieyti eru ákvæði lag- 3
anna svipuð og jafnan er um
gengislækkanir. vi
2 milljónir á viku
— Frábær veiði Heimis frá Stóðvarfirði i Norðursjó
Þafi hafa ekki margir síldar-
sjómenn fengið þrjár 10 — 20 þús
und króna túra í röð í sumar og
haust. Þeir hafa því líklega held-
ur betur þótt detta í lukkupott-
inn „strákarnir“ á Heimi frá
Stöðvarfirði, sem nú er á leið-
inni til Fuglafjarðar í Færeyjum
með 430 Iestir af sild í bræðslu.
i Fyrir þann afla fær skipið um
700 þúsund ísl. krónur, samkv.
gamla genginu og miklu meira
að sjálfsögðu samkvæmt hinu
nvia.
Þetta er þriðji stóri túrinn hjá
Heimi í röð, en skipið kom tvisvar
I til Fuglafjarðar í vikunni sem leið
með nær fullfermi, eða 400 tonn
í fyrra skiptið og 382 tonn í seinna
skiptið. — Þetta eina skip hefur
því aflað meira á einni viku en
allur flotinn við Austfirði, um 30
— 40 skip á tveimur sólarhringum,
en þar var veiðin ekki nema um
1100 tonn, enda er lítið sem ekk-
ert af sild þar. Kasta skipin á
síldardreifð og fá þetta um tíu
tonn í kasti og reita þannig sam-
an í smáslatta yfir nóttina, til þess
að koma í salt á Austfjarðahöfnum
i ...
á morgana. — Verðmæti þessa
vikuafla skipsins mun vera um
2 milljónir króna.
Vísir átti stutt samtal við einn
eiganda Heimis Su á Stöðvarfirði
í morgun og sagði hann að útgerð-
in hefði gengið mjög vel í sumar,
miðað við þær aðstæöur, sem veriö
hefðu. Til dæmis var saltað um
borö í skipinu í um 2600 tunnur
í sumar og aflahlutur mun vera
orðinn bærilegur á Heimi, miðað
við það sem gengur og gerist. —
Þess má geta að eigendurnir eru
sjálfir jafnan tveir um borö í
skipinu, sem fyrsti og annar vél-
stjóri og sagðist Kjartan vera i
fríi þennan ganginn.
Þess má geta að hásetahluturinn
úr þessum síðasta túr mun vera
nærri 18 þúsund krónum með or-
lofi og þó öllu meiri, ef reiknað er
samkvæmt hinu nýja gengi. — Og
það er sjaldgæfur hlutur í síldveið
unum um þessar mundir.
Afli hefur hins vegar verið nokk-
uð góður hjá bátunum, sem stund-
að hafa veiðarnar í Norðursjónum.
Sildina fá '• um 60 sjómílur aust
ur af Hjaltlandi og er það mest
megnis smásíld.
• Það var fjölmenni á þingpöliunum f gærdag, en það er'
harla óvenjulegt. Greinilegt var, að áhugi almennings á
gengislækkuninni var gífurlegur, enda ekki að undra.
Gróusögur á kreiki um eit-
urlyfjasmygl flugáhafna
• Sú saga hefur breiðzt út
eins og eldur f sinu, að toll-
gæzlan hafi gert ýtarlega leit
í fórum áhafnar flugvélar hjá
öðru flugfélaginu. Hafi þá fund-
izt deyfilyf að verðmæti, sem
nemi milli 80 til 100 þúsund kr.
„Þaö er ekki fótur fyrir þessum
sögurn," sagði Kristján Pétursson,
deildarstjöri tollgæzlunnar á Kefla-'
víkurflugvelli, þegar Vísir innti
Neyzluútgjöldin hækka um 16%
— Vísitala hækkar um 18-19%
hann ci'tir sannleiksgildi þessara
slúðursagna.
Illar tungur finna alls staðar í
umhverfi sínu fóður til þess að
melta og spýta í náungann og hafa
áhafnir flugfélaganna verið að und-
anförnu einkar vinsælt bitbein
slíkra slúðurbera. „Flugmaður tek-
inn með maríjúana“. „Deyfilyf fund
ust í brjóstahöldum tveggja flug-
freyja“. í þessum dúr eru sögumar.
•• Af og til kemur það fyrir, að ein-
• hverjir einstaklingar úr flugáhöfn-
2 unum verða uppvísir að tolllögbrot-
• um, en venjulega eru það einhverj-
2 ir smámunir, sem um er að ræða.
2 Einum viskipela of mikið í far-
• angrinum, eða eitthvað slíkt. Stund-
2 um kannski alvarlegra.
• 10. sfða.
■ Hagstofan hefur á-
ætlað hvaða áhrif geng-
islækkunin muni hafa á
vísitölu framfærslu-
kostnaðar. Hún mun
hækka um 18—19% sam
kvæmt mati Hagstofunn
ar, en þessi hækkun verð
ur lengi að koma fram,
— allt fram á næsta
haust, ef að líkum lætur,
sagði Jón Sigurðsson í
Efnahagsstofnuninni í
viðtali við Vísi í morgun.
Það má ekki gleyma því sagði
Bjarni Bragi Jónsson hjá sömu
stofnun, að vísitala framf.kostn-
aðar er ekki alveg rétta viðmið-
unin núna. Það má ætla að
neyzla almennings yfirfærist á
innlendar vörur frá erlendum
þannig, að neyzluútgjöldin
hækka ekki að sama skapi og
vísitalan. — .’ið höfum áætlað
að nevzluútgjöldin hækki um
16%. '
„Vísitölufjölskyldan skynjar
ekki gengislækkun," sagði
Bjarni Bragi, en hin almenna
fjölskylda. sem þarf að kaupa
inn hlýtur að breyta innkaupa-
venjum sínum i samræmi við
gengislækkunina. Þegar visital-
an er reiknuð út er gert ráð
fyrir svo og svo miklum hluta
af innfluttum vröum, en inn
kaup fólks munu færast yfir
á innlendan iðnvarning, en það
er m. a. tilgangurinn með
gengislækkuninni.
Eftir gengislækkunina í fyrra
voru áhrifin á vísitöluna lengi
að koma fram. Þannig voru
ekki komin fram nema 30 — 40%
af heildarhækkun vísitölunnar
eftir fyrsta mánuðinn og áhrif-
in voru að smíkoma fram alh
fram á s.l. haust.
Ekkj lá ljóst fyrir í morgun,
hve innfluttar vörur hækka
mikið í verði vegna gengis-
breytingarinnar. Verðlagsnefnd
á eftir að ákvarða ýmislegt við
álagningu og hve flutnings-
gjöld megi hækka mikið. Sam-
kvæmt lögunum um gengis-
brevtinguna, sent samþykkt
voru á Alþinei klukkan
4.30 í nótt verður aðeins heim-
ilað að leggja á um 30% af
verðhækkun vegna gengis-
lækkunarinnar.
Samkvæmt upplýsingum verð
lagsstjóra í morgun, er búizt
við að gengið hafi verið frá nýj-
um verðlagsákvæðum á morgun
eða á fimmtudag og ætti þá
eðlilegur innflutningur að geta
hafizt á ný.
Lesendum til upplýsingar
skal tekið fram að innfluttar vör
ur hækka ekki að sama skani og
gengislækkunin. 20% innflutn-
ingsgjaldið, sem hefur verið
í gildi i 3 mánuði fellur t. d.
niður, sem verkar til lækkun-
ar og sömuleiðis verður hækk-
un álagningar eklci í samræmi
við gengislækkunina eins og
korn fram hér að ofan,
: Aftur snarpir
\ jarðskjálfta-
\ kippir í nótt
Jarðskjálftakippa varð aftur
vart 'í nótt á Suðurlandsundirlend-
inu, Voru kippimir tveir, sá fyrri
kl. 0.44 og sá seinni og melri kl.
5.34. Mældist hann 3% stig á
Richtersmælikvarða.
Fólk á Hellu og í Villingaholti í
Flóa vaknaði upp við hræringarn-
ar, en seinni kippurinn fannst mjög
greinilega, m.a, hrundi smádót úr
hillum.
Upptök jarðskjálftahræringanna
eru á svipuðum slóðum og hræring
anna, sem urðu um helgina um
20 — 30 kílómetra suður af Eyrar-
bakka.