Vísir - 12.11.1968, Síða 3
V í SIR . Þriðjudagur iz. nóvember 1968.
3
Margt var spjallað við borðin og hreyfing á mönnum. Hér sjást lalið frá vinstri: Sverrir
Lúthersson tollvörður, Einar Þorkelsson verkf ræðingur, guðfaðir klúbbsins. Hjalti Þórarins-
son, Agnar Norland verkfræðingur.
BLÓTAÐ Á HAUSTI
Hér eru saman við borðið: frá vinstri Ebeneser Ásgeirsson forstjóri, Magnús Erlendsson sölu
stjóri, Gunnar Ásgeirsson forstjóri, beint á móti honum Ómar Ragnarsson, sem skemmti
við góðar undirtektir, hinum megin við borðið Pétur Benediktsson bankastjóri og Þorvald-
ur Þorsteinsson framkvæmdast.óri.
Snæbjörn Ásgeirsson var
veizlustjóri.
Bára sýndi.dans við mikla eftirtekt.
Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur sýndi kvikmynd af Vatna-
jökulsieiðangri og flutti skýringar með.
Jjað var fjölmenni á haust-
blóti Lionsklúbbsins Freys
í Leikhúskjallaranum fyrir
skömmu. Um leið var þetta
fyrsta herrakvöld klúbbsins,
sem er nýstofnaður og yngstur
Lionsklúbbanna í Reykjavík.
Formaður klúbbsins er Hinrik
Thorarensen.
Vel var vandað til hófsins m.
a. með mörgum skemmtiatrið-
um og má þar fyrst telja kvik-
mynd, sem Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur sýndi af Vatna-
jökulsleiöangri og flutti um leið
skýringar með. Margir ferða-
menn eru innan klúbbsins, sem
telur 30 félaga, en á
stefnuskrá klúbbsins er að
merkja ýmsa staði á landinu,
sem sögufrægir eru. Hefst sú
starfsemi á sumrj komanda.
Efnt var til happdrættis á
skemmtuninni er ágóðinn rann
f sjóð þann, sem varið verður til
merkjanna.
Ýmis önnur skemmtiatriði
fóru fram og salarkynni voru
skreytt með landbúnaðarverk-
færum eins og hrífum og orfum
auk rokka og strokka. Eins og
nafn klúbbsins gefur til kynna
tengja meölimimir starfsemi
sína landinu á táknrænan hátt.
Einn gestanna kaupir sér happdrættismiða.