Vísir - 26.11.1968, Page 1

Vísir - 26.11.1968, Page 1
Margir vilja flytja utan Rúmlega hundrað hafa aflað upplýsinga i brezka sendiráðinu að undanf'órnu • í brezka sendiráðinu er ekki hægt að fá neinar á- kveðnar tölur um, hversu margir ísiendingar hafa að undanförnu gerzt innflytjend- ur til samveidislanda eins og Kanada, Ástralíu eða Suður- Afríku. Brian Holt tjáði blaðinu, að sendiráöið gæti aðeins afhent fólkinu umsóknareyðublöö til út fyllingar, en þau væru síðan send til ástralska sendiráðsins í Stokkhólmi, kanadíska sendi ráðsins í Kaupmannahöfn eða 10 síða T VÖ STÓRSL YS í KEFLA VÍK Tvö mjög alvarleg slys Urðu í Keflavík nú í gær og í vikunni sem leið. Var um höfuðkúpubrot að ræða í báðum tilvikunum. Fleiri óhöpp urðu í Keflavík um helgina. Meðal annars slasaðist stúlka í bílveltu og ekið var á kyrrstæðan bíl niðri í miðbænum. Maður á níræðisaldri slasaöist al varlega, þegar ekiö var á hann á gangbraut rétt framan viö lögreglu stöðina í Hafnarstræti í Keflavík í morgun. Gamli maðurinn var rétt kominn yfir götuna þegar slysið varð. — Þykir líklegast að vindur- inn hafi feykt honum lítið eitt til baka út á götuna, en í bví bar þar að bíl á hægri ferð. Sá ökumaður ekki gamla manninn fyrr en um seinan. Maðurinn höfuðkúpubrotnaði, fót brotnaði og hlaut fleiri alvarlega á- verka og liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi. Jámsmiður, sem var að vinna við bát í Njarðvíkurhöfn slasaöi?t mjög alvarlega á höfði á miðviku- daginn var, þegar planki, sem verið var að hífa um borð í bátinn losnaði úr böndum og féll á hann. — Höfuðkúpubrotnaði maðurinn og var hann þegar fluttur á sjúkra- húsið, þar sem yfirlæknirinn Jón Jóhannsson geröi að áverkanum. Mun sú aðgerð hafa heppnazt mjög vel því að maðurinn var á bata- vegi, þegar Vísir grennslaðist um líðan hans í morgun, en honum var varla hugað Iff eftir slysið. Kólnar eftir suð- iæga /kitahylgju' Hinir þíðu vindar frá suðlæg-^- um slóðum anda ekki lengur um tslendinga, veðrið hefur farið kólnandi eftir þriggja vikna hlý- indi í nóvember. Þó eru ekki horfur á að frosthörkur taki við í bráð. Norðanátt er á landinu f dag og víða 7—8 vindstig. Horfur em á norðanátt næstu 2 sólarhringa. 1 morgun snjóaði nyrzt á Vest- fjörðum og ennfremur víðast hvar á Norður- og Austurlandi. '?ægt frost var á Vestf.'irðum, en í Reykjavik var hitinn 3 stig klukkan 9 í morgun. Samið endanlega um smíði á Bjarna Sæmundssyni — Skipið hefur hækkað i verði i 200 millj. kr. Nú þessa dagana er verið að | brír Islendingar, Agnar Norðfjörð, semja um smíði á hafrannsóknar- verkfræðingur, Sigurður Lýðsson, skipinu Bjama Sæmundssyni við tæknifræðingur, og Ingvar Hall- þýzka fyrirtækið Unterweser grímsson, fiskifræðingur, eru stadd- Schiffbau Gesellschaft f Bremer- ir ytra til að semja um hin ein- haven. stöku atriði varðandi smíði skipsins. 21 íbúi ásakar hreppsnefnd- ina um óreiðu Róstusöm sveitarstjórnarmál i Njarðvik • Allmiklar róstur eru nú uppi f sveitarstjórnarmálum f Njarðvíkurhreppi. Hreppsnefnd- inni hefur borizt mótmælaskjal Undirritað af 21 íbúa, þar sem farið er fram á endurskoðun á bókhaldi hreppsins. Ein meginorsök þeirrar ó- ánægju, sem upp er komin meðal fbúa Njarðvíkur er sú, að fjárhags- áætlun og yfirlit um framkvæmdir hreppsins hafa ekki verið birt opinberlega og almennir borgarar hafa ekki haft að þeim greiðan að- gang. — Ennfremur hefur það verið gagnrýnt, að hreppsnefndin hafi gefið sveitarstjóranum of frjálsar hendur. 1 kvöld verður efnt til borgara- fundar í félagsheimilinu Stapa, Þar j sem þessi mál verða rædd og er búizt við heitum umræðum þar. Þeir fóru í fyrri viku og eru vænt- anl. fljótlega, og verða samningar þá undirritaðir, ef viðunandi samn- ingar hafa náðst um hin einstöku atrði. i I Eins og kunnugt er var smíöi ! skipsins boðin út meðal nokkurra I erlendra skipasmíðastöðva, sem tald ar voru til þess færar að smíða skip j ið. Sex aðilar buðu í skipið og var 1 tilboð Unterweser lægst. Tilboð þess var um 140 milljónir íslenzkra | króna miöað við gamla gengiö. Bú- | ið var að kaupa og greiða fyrir nokkurn hluta tækjaútbúnaðar fyr ir gengislækkunina, um 20 millj. ísl. króna, að því er Gunnlaugur Briem, ráðuneytisstjóri tjáði Vísi í morgun. Það má því búast viö að skipið i muni kosta um 200 milljónir króna, I en hefði kostað um 210 milljónir | króna, ef ekki hefði verið búið aö jkaupa eitthvað af tækjunum í það I fyrir gengislækkunina. » Námskostnaður námsmanna í Berlín nækkar um 60-100 þús. kr. Aukning námskostnaðar is- lenzkra námsmanna í Berlín eftir gengislækkunina nemur kr. 60 þús. á einstakling og kr. 100 þús. á f jölskyldumann miðað við kostnað fyrir nóv. 1967. Kemur þetta fram i greinar- gerð, sem blaðinu barst frá ís- "lenzkum námsmönnum í Berlín. Komu þeir saman eftir gengis- lækkunina til að ræöa bein áhrif á fjárhagsafkomu námsmanna er lendis, í öðru lagi úthlutunar- reglur lánasjóðs íslenzkra náms- manna. I greipargerðinni stendur m. a., að fjöldi námsmanna geti námsins vegna ekki farið til íslands í fyrirlestrahléum og fyrir hina sé eins og nú horfir hæpinn hagur að fara heim og vinna og séu þvi nárnsmenn algjörlega liáðir aðstoð aðstand- .>rll.»l)1.mHM|| ■ ifcKll enda eða verði að stofna til stórskulda við lánastofnanir. En !. lán liggi ekki á lausu og séu á háum vöxtum. I niðurstöðum eftir að fyrir- komulag Iánasjóðs íslenzkra námsmanna hefur verið gagn- rýnt segir m. a., að nýting fjár þess, sem sé veitt sé slæm, þar sem reikna megi með því að fjöldi námsmanna neyðist til að hætta námi af fjárhagsástæðum og hjá öðrum dragist námstími á langinn vegna þess tíma, sem til fjáröflunar þurfi. Þjóðfélags- legt misrétti verði þar sem nú verð; það aðeins á færi barna velefnaðra foreldra að stunda nám erlendis. Ef nám erlendis verði svo fjárhagslega illviðráð- anlegt, sem nú horfir kunni það að valda háskalegri og fábreyttri menntaskiptingu þar sem Há- skólj íslands stærðar vegna geti ekki boðið upp á svo fjöl- breytta menntun, sem beinlínis sé forsenda þjóðfélagslegrar þróunar. Ályktun þessi var send all- mörgum aðilum. Lögreglan greip í tómf — þjófarnir nýsloppnir ■ Hurð skall nærri hælum í nótt, þegar lögregluþjónar kómu að húsinu nr. 178 við Laugaveg á eftirlltsferð sinni um hverfið. Innbrotsþjófar voru þá nýlega famir, eftir því sem ummerki gáfu til kynna. Opnar dyr á bakhlið hússins, þar sem 8 fyrirtæki hafa skrifstofur sínar og starfsemi, vöktu athygli lögregluþjónanna, sem kvöddu liðs auka á vettvang. Ef svo vel hefði viljað til, að þjófarnir hefðu verið inni, hefði þeir vafalaust náöst, því á skammri stund var búið að um kringja húsið. En þjófarnir voru farnir. I ljós kom, að þeir höfðu brotizt inn í Smárakaffi á neöstu hæð húss ins og inn í heildverzlunina Kötlu, en einnig inn I skrifstofur Rolfs Jóhannssonar og inn á verkstæði Viðtækjavinnustofunnar. Ekki var búið að kanna til fulls, hve miklu stolið hafði verið, en meöal þess sem saknað er, er magn ari úr Viðtækjavinnustofunni og nokkur bflaviötæki. Er það talið nema að verðmæti milli 40 og 50 þúsund kr.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.