Vísir - 26.11.1968, Síða 2
VI S IR . Þriðjudagur 26. nóvember 1968.
EINN MAÐUR A AÐ VELJA OG
STJÓRNA LANDSLIÐI
— segir Albert Guðmundsson, nýkjörinn formaður KSI — Hann vill
crð landsliðsæfingar hefjist nú þegar og verði á hverjum
sunnudegi i allan vetur
„Það er hreint fárán-
legt!“ Þetta svar gaf Al-
bert Guðmundsson, for-
maður KSf, blaðamanni
Albert Guðmundsson.
Vísis, sem rabbaði við
hann stutta stund í gær-
dag á skrifstofu hans við
Brautarholt, þegar hann
var spurður um álit á því
að 3 menn eða jafnvel
fleiri veldu landslið.
„Ég tel að þaö sé langeðlileg-
ast að einn maður geri þetta
og hann sé ábyrgur. Reynist
hann ekki hæfur, verður nýr
maður að taka sæti hans“.
Albert kvaðst hafa mikinn
áhuga á aö þeir menn, sem
kæmu fram fyrir KSÍ og fyrir
landsins hönd, væru vel undir
leiki búnir. Þannig taldi hann
að landsliðið þyrfti í vetur að
æfa vikulega, t.d. á sunnudags-
morgnum, og þá hvernig sem
viðraði. Árangur í knattspyrnu
kæmi aldrei fyrr en hart væri
lagt aö sér.
— Og hvað um atvinnu-
mennsku eöa hálfatvinnu-
mennsku?
„Ég tel að það sé tómt mál
um að tala um atvinnumennsku
fyrr en fleiri áhorfendur koma
að sjá leiki liðanna. Og þaö
gerist aftur á móti ekki fyrr en
leikmenn eru orðnir betri en
þeir eru nú, þetta tvennt helzt
í hendur. 2g mundi telja að
við ættum að greiða fyrir
vinnutap og ferðalög, eins og
aðrar þjóðir gera, en það telzt
ekki til atvinnumennsku aö fá
greidda peninga fyrir slíkt, en
það hefst ekki fyrr en knatt-
spyman hagnast betur á leikj-
unum“.
Albert kvaðst fyrst um sinn
verða að setja sig inn í starf
fyrirrennara síns, hann hefði
ekki kynnzt störfum knatt-
spyrnusambandsins fyrr en nú,
en félagsmálum knattspyrnu-
hreyfingarinnar hefði hann aö-
eins kynnzt í sambandi við
störf sín með Akumesingum í
stríðsbyrjun áður en hann fór
utan til keppni, og þá var hann
með i að sameina Akranessfé-
lögin undir eitt merki, og eftir
að hann kom heim starfaði hann
dyggilega með Hafnfirðingum.
— Nú varst þú á báðum átt-
um um það hvort þú ættir að
taka að þér starf formanns í
KSÍ, hvað olli því að þú lézt
undan óskum stuðningsmann-
anna?
„Mér fannst satt að segja að
ég skuldaði knattspyrnunni eitt-
hvað, — mér finnst að ég sé
að greiða afborgun af gamalli
skuld. Knattspyrnan hefur fæyt
mér ótrúlega lífsreynslu og á-
nægju, og nú vil ég leggja eitt-
hvað af mörkum til að aörir
geti notið hins sama. Ég mun
gera mitt bezta til að svo
megi verða og nota til þess að-
stööu mína sem formaður í
knattspyrnusambandinu," sagði
Albert aö lokum.
Fyrsti fundur Alberts með
stjóm hans verður á fimmtu-
dag. Þá hefst starf Alberts fyr-
ir knattspymuíþróttina í land-
inu, — menn binda sterkar
vonir við Albert Guðmundsson.
Hann hefur margar hugmyndir,
bæði hvaö varðar kattspymuna
sjálfa og fjármál sambandsins.
Enginn efast um dugnaö og
þrautseigju Alberts. Nú vantar
aðeins átak knattspymumann-
anna sjálfra, þeir mega ekki ,
verða áhorfendur, heldur virkir
þátttakendur í endurreisn knatt-
spyrnunnar. — jbp —
lUL til Bandaríkjanna?
Ekki er útilokað að ungl-
ingalandsliðið, sem stóð sig
svo vel í Norðurlandakeppn-
inni s.l. sumar i Reykjavík,
fái verkefni að glíma við
áfram.
Ámi Ágústsson, formaður
unglinganefndar KSÍ sagði blaö-
inu f gær, að samtökin People
to People hefðu boðið 25 manna
hópi unglinga til Bandaríkj-
anna að leika þar. Feröir og
gisting eru liöinu aö kostnaöar-
lausu.
Gert er ráð fyrir að ferð þessi
verði farin 12. sept. n.k. og
standi til 2. október.
Reiknað er með að keppa við
háskólalið, en knattspyrnan er
stöðugt að festa raetur f háskól-
um Bandaríkjanna
Ármann J. Lárusson heiðpður.
I
i
KAUPIDNÚNA
Svefnherbergishúsgögn
Eik og tekk og hvítmaluö r^7~7\
!
Löí )inr
-í. n 1! 111 j
* i
Sími-22900 Laugaveg 26
Glímusnmhandið
heiðruði Ármunn J.
Lúrusson
• Ármann J. Lárusson var heiðr-
aður á sunnudaginn var fyrir
starf sitt fyrir glímufþróttina á ís-
landi. Ármann hefur starfaö ar
fullum krafti í 15 ár og er enn a
toppnum í þessari íþrótt.
• Hafa yfirburðir hans lengst af
verið r'tvíræðir. Á myndinni
afhendir Kjartan Bergmann Ár-
manni fallegan skjöld f heiðu^s-
skyni, en honum var haidið hóf í
Tjamarbúð við þetta tækifæri.