Vísir - 26.11.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 26.11.1968, Blaðsíða 3
VISIR ,agu. 26. nu.ei.,ji Hannibal Valdimarsson, forseti ASÍ, setur Alþýðusambandsþingið, Tveir hinna „stóru“. Guðmundur Garðarsson, formaður Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur og Hannibal Valdimarsson, for- INTERNATIONALEN Hótel Sögu Tjeir voru prúöbúnir, forustu- menn verkalýösins, er þeir í gær gengu upp stigann inn í Súlnasal Hótel Sögu, einhvers „fínasta" veitingahúss höfuð- borgarinnar. Verkamenn á Is- land geta naumast talizt neinn öreigalýður, þótt nú syrti í ál- inn um hríð. Glaöir og reifir heilsuðust gamlir félagar og vinir, sem margir hverjir höfðu ekki hitzt frá því á síðasta Alþýðusambandsþingi. Þeim mun þó öllum hafa veriö ljóst, að þessa þings samtaka verka- fólksins bíða mörg alvörumál, /og forseti ASÍ gat þess í setn- ingarræðu, að sjaldan hefði á undanförnum árum verið eins mikið í húfi, að vel tækist til um störf þings samtakanna. Kjaramálin eru efst á baugi, og afstaöa þingsins kann að ráöa mestu um framvindu efna- hagsniála almennt á næstunni. Einnig mikilsverð og rætt um gjör- breytingu á uppbyggingu ASÍ. Almenningur fylgist meö um- ræðum og ákvörðunum um þessi mál, en annars vekur það hvað mesta athygli, aö Hannibal Valdimarsson, forseti ASÍ, hef- ur ítrekaö yfirlýsingar sínar um það, að hann muni nú ekki lengur gefa kost á sér eftir nær tveggja áratuga feril í því emb- ætti. / Fólk veltir vöngum yfir eftir- manni Hannibals. Verður það félagi hans Bjöm Jónsson, eða hinir róttækari Eðvarð eða Snorri? Eða einhver Sjálf- stæðis- eða Alþýðuflokksmaður? Ef til vill verður enginn krón- prinsinn kjörinn, þegar öll kurl eru komin til grafar, heldur ein- hver óþekktari. Um þetta er ekki unnt að fullyrða á þessu stigi, en málin munu skýrast næstu daga. Af öllum ofangreindum ástæð- um mun almenningur fylgjast með þingi Alþýðusambandsins. Hinir prúðbúnu fulltrúar sam- einuöust og risu úr sætum þegar Internationalen, alþjóðasöngur verkalýðsins, eins og hann er kallaður, hljómaði á Hótel Sögu. Þeir skiptast þó í marga flokka og munu reynast ósammála um margt. Hvernig til tekst unr samstarf og samninga milli „hópanna", og hverjir verða ofan á, mun ráða úrslitum. omar a eru skipulagsmálin MYNDSl Vandamálin skeggrædd. Frá vinstri: Ragnar Kristjánsson, Dagsbrún, Tryggví Benediktsson, Félagi jámiðnaðarmanna, og Ingólfur Hauksson, Dagsbrún. * S/, fjta Aðrir „stórir“. Jón Sigurðsson, formaður Sjómannasambands- ins og Guðjón Sigurðsson, formaður Iðju. Allir risu úr sætum þegar alþjóðasöngurinn var Ieikinn, I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.