Vísir - 11.12.1968, Page 9
VÍSIR . Miðvikudagur 11. desember 1968.
Geislavirknin meiri liér en víðast hvar
□ Hvað eru þeir margir, sem vita að úrfall geisla-
virkra efna hér á landi úr gufuhvolfinu var orðið
það mikið um tíma, að það var farin að verða fyllsta
ástæða til að fylgjast náið með öllum sveiflum á
úrfallinu? Þeir eru áreiðanlega ekki margir. Samt
er það staðreynd, að hefði úrfallið orðið stöðugt
eins og það var, þegar það var mest, hefði það tal-
izt innan þess ramma, sem hættulegt er talið. —
Það er ekki ástæða til að gera mikið úr þessu, sagði
Þorbjörn Sigurgeirsson, forstöðumaður eðlisfræði-
stofu Raunvísindastofnunarinnar, í viðtali við Vísi
á dögunum, en viðtalið var tekið í tilefni þess, að
Þorbjörn var sæmdur stúdentastjörnunni. Fyrri
hluti viðtalsins birtist fyrir skömmu og fjallaði aðal-
lega um stöðu íslenzkra vísinda í dag. Hér á eftir
verður rætt um helztu verkefnin, sem unnið er að
á eðlisfræðistofunni.
Geislavirkni mæld
í öryggisskyni
T-jað er fyrst og fremst af ör-
yggisástæðum, sem við
vinnum stöðugt að mælingum
á geislavirkum efnum, segir Þor
bjöm. Stööugt er fylgzt með
geislavirkni I andrúmslofti og
úrkomu, en þetta er eitt af
fyrstu verkefnunum, sem við
unnum að hér á eðlisfræðistof-
unni. Nú er kannski ekki á-
stæða til að fylgjast jafn náið
með þessu eins og var, en þó
talið rétt í öryggisskyni. Geisla
virknin varð meiri hér en víöa
annars staðar. T.d. virðist svo
sem matvælum sé hættara í
fjallalöndum en annars staðar.
Ástæöan er fyrst og fremst talin
stafa af strjálari gróðri. Þetta
kom mjög skýrt fram í hrein-
dýrum í N-Skandinavíu, þar
gáfu mestu geislavirknina.
Geislavirknin hér fór stighækk-
andi alveg fram til ársins 1963,
þegar samkomulag náðist milli
Bandaríkjamanna, Rússa og
fleiri þjóða að stööva þessar
tilraunasprengingar.
Geislavirkur ísótópur
Annað, sem við mælum stöð-
ugt, en í öðrum tilgangi þó,
er geislavirkur ísótópur (beyg-
ist eins og kópur) Hann mvnd-
ast einnig við sprengingar, vetn
issprengingar, en nokkuð af hon
um myndast einnig stöðugt fyr-
ir áhrif geimgeisla. Magn þessa
efnis er ákaflega lítið, og það er
hættulaust. Við notum það til
að fylgjast með neðanjarðar-
vatni, nánar tiltekið til að
kanna hve lengi uppsprettuvatn
hefur verið neðanjarðar. í þess-
um rannsóknum er heita vatnið
§ VIÐTAL
DAGSINS
er við Þorbj'órn Sigurgeirsson um
starfsemi eðlisfræðistofunnar
sem hreindýrakjötið innihéit
mjög mikið af geislavirku efni.
Héma nálgaðist það aldrei aö
veröa hættulegt.
Er vitað hvaða kjarnorkutil-
raunir ollu mestri aukningu í
geislavirkni hér?
■|-»að var áberandi að siðustu
" tilraunasprengingar Rússa
aðallega haft í huga, en þessi
aðferð getur einnig komið aö
miklu liði til að kanna rennsli
kalda vatnsins. Mælingar á þess
um ísótópi er einn liöurinn af
mörgum í grunnvatnsrannsókn-
unum.
Þá er unnið að rannsóknum á
neðanjarðarrennsli heita vatns-
ins í Reykjavík með því að
Þorbjörn Sigurgeirsson prófessor með flugmóöann, sem hefur auðveldað mjög aliar segul-
mælingar. Hann og samstarfsmenn hans smíðuöu sjálfir tækið. Fyrir aftan hann er segulkortið.
blanda geislavirku joði í vatn,
sem er dælt niður í borholur.
Með því að fylgjast með hvar
þetta geislavirka joð kemur upp
má kanna hvernig rennsli heita
vatnsins er háttað neðanjarðar,
að hve miklu leyti hinar ýmsu
borholur eru samtengdar o.s.frv.
Annar ísótópur
Mælingar á öörum vetnisísó-
tópi, tvívetni eru gerðar með
masságreini, sem greinir vetnis
ísótópana að eftir þyngd þeirra.
Slíkar mæiingar eru geröar á
vatni, uppsprettuvatni og úr-
komu. Þessar mælingar sýna að
í úrkomunni er heldur minna af
tvívetni inn til landsins. Mæl-
ingar á uppsprettuvatni geta því
gefið til kynna hve langt innan
úr landinu það kemur. Þessar
mælingar sýna okkur að heita
vatnið, sem við fáum hér í
Reykjavfk kemur langt að, í átt
frá Langjökulssvæðinu. Þetta
vatn rennur neðanjarðar þessa
leið, þannig að ef vel væri leit
að mætti finna þetta vatn víðar.
Vetnisgas
Sambærilegar mælingar hafa
einnig verið gerðar á vetnisgasi,
sem kemur upp á yfirborðið á
jarðhitasvæðum. Þessar mæling
ar hafa gefið vonir um að hægt
sé að mæla hitann undir niðri
án borana. Hlutfallið milli tví-
vetnis og vetnis gæti gefiö mikl
ar upplýsingar um jarðhitasvæö
in, en aö sjálfsögðu yrði mikiö
hagræði í því að fá þessar upp-
lýsingar fyrirfram áður en bor-
anir eru hafnar. Það er ekki end
anlega sanuað, að þetta gefi á-
vallt þaö sanna upp um hitann.
Þær rannsóknir, sem gerðar
hafa verið benda þó í þá átt.
Segulmælingar
Við höfum unnið lengi að þvi
að fullkomna segulmælingatæki
sem við höfum smíðað okkur
sjálfir (það má skjóta því hér
inn f að Þorbjöm þykir mikill
vísindatækjasmiöur. í fyrstu
munu hann og starfsmenn hans
aðallega hafa smíðað tækin
vegna fjárskorts. Upp á síðkast
iö hefur það þó ekki verið eina
ástæðan. Þeir hafa smíðað sér
betri tæki til rannsóknanna, en
þeir heföu getaö keypt annars
staðar frá). Þessi tvö tæki eru
nú í stöðugri notkun, annað á
segulmælingastöðinni við Leir-
vog, en hitt hinn svokallaði flug
móði við segulmælingar í flug-
vélum (flugmóðinn þykir hið
merkilegasta apparat. Hann er
látinn svífa f vír neöan í flug-
vél, en tækin í honum eru
tengd með kapal við tæki í flug-
véiinni.)
Þessi tæki mæla styrkleika
segulsviðs jarðar. Tónn myndast
í tækinu og fer tíöni hans eftir
styrkleika seguisviðsins. Tónn
frá flugmóðanum er tekinn upp
á segulband. Eftir flugiö er
segulbandið spilað, tíðnin mæld
og segulkort gert af svæöinu,
sem fiogið var vfir.
Segulmælingatækin í stöð-
inni sýna okkur aftur á móti
tímabreytingar segulsviðsins. —
Tónninn þar er sendur með lít-
iili útvarpsstöð hingað til Raun-
vísindastofnunarinnar. Hér höf-
um viö skrifara og fylgjumst
með því hvernig segursviðiö
hagar sér.
Segulkortiö, sem ég minnt-
ist á áðan gefur okkur upplýs-
ingar um segulmögnun berg-
Wf—> 13 síða
visnsmi
Teljið þér rétt
að vernda
Thoi Jensens-
húsið að
FríkÍEkjuvegi 11?
Andrés Björnsson: „í
mínum augum stendur
þetta hús sem dæmi um
borgarahús, eins og þau
gerðust bezt á þeim tíma.
Þvf fyndist mér, að athuga
þyrftj gaumgæfilega, hvort
ekki væri þess vert að
varöveita það.“
Frú Hrefna Tynes: „Já.
Fyrst og fremst vegna
þess, að húsið er gott
dæmi um stórt framtak á
þeim tíma, sem þaö var
reist, en svo er ég einnig
mótfallin þvf, að fjarlægt
sé allt það gamla, sem er
í kringum tjörnina og gef-
ur henni svo rómantískan
Sigurður Líndal: „Já, ég
er á því, að þaö beri að
verja það.“
biæ. Þar á ég fyrst og
fremst við Thor Jensens-
húsiö. — Ég vil varðveita
gömul verðmæti.“
Ólafur Jensson: „Mér
finnst engin sérstök á-
stæða vera til þess, þar
sem húsinu hefur verið
breytt svo mikið að innan,
að það er ekki lengur neitt-
líkt þvi, sem það var f tíð
Thors. Það mætti varð-
veita minningu hans með
því t.d. að reisa styttu af
Halldór Laxness: .JMér
finnst það hreinlega skylda
allra bæjarfélaga að geyma
fornar byggingar og aðrar
fornminjat handa eftirtím-
anum, en taka ekki upp á
því að rífa þær niður og
aka þeim burt.“
honum f garðinum, eða með
einhverjurr. öðrum hætti.“