Vísir - 12.12.1968, Side 5

Vísir - 12.12.1968, Side 5
ii n | \ VISIR . Fimmtudagur 12. desember 1968. Islenzkir kjólar, sem standast samkeppnina Tslenzkir kjólar geta fyHilega staðizt samkeppnina við þá innfluttu eftir þeim tízkusýning um að dæma þar sem þeir hafa verið sýndir. Við munum eftir kjólunum frá Kjólameistarafélag inu á tízkusýningunni í sam- bandi við Iðnkynninguna í sum- ar. Núna nýlega voru sýndir íslenzkir kjólar I bland á tízku sýningu, sem Módelsamtökin stóðu að. Þeir voru frá Kjólnum í Þingholtsstræti en það fyrir- tæki hefur saumað kjóla í hvorki meira né minna en 29 ár. Á myndunum, sem fylgja eru tveir kjólar fyrir táningana. — Báðir eru þeir í svörtu, sem er tfzkulitur vetrarins og svart klæðir jú ekki sízt þær kom- ungu. Annar er úr chiffon. Er hringskorinn og með hvítum kanti og hálsmálið er vafflaga eins og svo mikið er í tízku núna. Hinn kjóllinn er langerma með skáskomum pífum, efnið er ull með silkiþræði verðið er 2900. Pífumar eru handbrydd- aðar með chiffon. Verð á kjól- unum er yfirleitt frá kr. 2000. — sem sjást hér eru fallegir og sérlega vel unn- ; * j Islenzka kvenna- j blaðið, sem hefur Istaðizt tímans tönn TTkkur hefur orðið tíörætt um erlend kvennablöð hér á síðunni að undanfömu. Ekki sízt vegna þess, að efni þeirra hefur undanfarið verið sérstaklega valið með jólin í huga. Þar hafa bæði verið góð ráð og uppástung ur. En ekki má gleyma þvf ís- lenzka kvennablaði, sem hefur þraukað af árin og fremur yngzt í útliti en hitt, blaðið Húsfreyj an. Jólahefti þess er nýkomið út, með skemmtilegri forsíðu- mynd og efni þess er fjölbreytt einnig og þar er að finna ýmis- legt, sem á við fslenzkar aðstæð ur og er hvergi að finna f erlend um kvennablöðum hversu vel sem við leitum. Við höfum áður minnzt á það, áð áskrift að Húsfreyjunni yröi vel þegin jólagjöf og sem kostar aðeins 120 krónur. en það er árgjaldið fyrir fjögur hefti. Ekki væri úr vegi, að láta jólablaðið iylgia með. En lítum nú á efnið. Fvrst er Jólasöngur 1921 eftir Ólöfu frá Hlöðum. bá er siötta franíhalds greinin um fsl. þjóðbúninga, og fjallar þessi um kórónu þeirra, skautbúninginn og kyrt- ilinn. „Þegar kvöldar eftir anna saman dag, kenna margir til þreytu og spennu aftan í hálsi og f höfðinu, sem jafnvel veldur höfuðverk." Þannig byrjar grein in um 7 heilræði gegn þreytu, sem er myndskreytt. Þar næst er grein af léttara taginu. — Kóngssonurinn, sem ekki vildi giftast kóngsdóttur, aðalsögu- hetjan er Haraldur krónprins f Noregi. Jólasagan er „Ekki er allt sem sýnist“, eftir Guðrúnu Finnbogadóttur. Næst eru: Jóla gjafir handa litlu stúlkunum, og fylgja snið með og uppskriftir, stór grein er um smákökubakst ur og sagt er frá heimatilbún- um jólakortum. Sjónabók hús- freyjunnar, er fastur þáttur um margs konar saumaskap og hann yrðir, í þetta sinn fjallar hann um vefnað á ramma, gefin er uppskrift að lopapeysu með brekánsmunstri, frú Auður Þor- bergs lögfræðingur svarar lög- fræðilegum spurningum, þá er greinin, „Börnin' og jreningarn- ir“ eftir Önnu Snor'radóttur. — Það er enginn vafi á þvf að marg ar konur fýsir að sjá þessa grein á prenti, sem flutt var sem fyr- irlestur í útvarpsþættinum. „Við sem heima sitium" í febrúar þessa árs. Þá er stórfróölegur bókalisti, sem ber yfirskriftina „Bækur fyrir mæður og verð- andi rnæður". Listinn skiptist 1 eftirfarandi kafla: Meðgöngutfmi og fæðing, Hvað á bamið að heita?. Umönnun ungbarnsins, Þroski barnsins og uppeldi. Leik ir og föndur, Sögur og upplestur Hvernig varð ég til?, þáttur um bækur er næsta efni, svo Úr ýmsum áttum, Minningargrein um Halldóru B. Björnsdóttur og kaflinn „Að hafa gát á efnahag sínum". Kannski finnst ykkur þetta hálf þurr lesning hér á síðunni en sjón er sögu ríkari. Yfirlitið ætti þó að gefa hugmynd um efni blaðsins. AUGLÝSING um takmörkun á umferð í Reykjavík 12.—23. desember 1968 Ákveðið hefur verið ao gera eftirfarandi ráðstafanir vegna umferðar á tímabilinu 12, —23. desember n.k.: I. EINSTEFNUAKSTUR: 1. Á Vatnsstíg frá Laugavegi til norðurs að Hverfisgötu. 2. Á Frakkastíg frá Hverfisgötu til norðurs að Lindar- götu. 3. í Naustunum frá Hafnarstræti til norðurs að Tryggvagötu. 4. 1 Pósthússtræti til norðurs frá Austurstræti að Tryggvagötu. n. VINSTRI BEYGJA BÖNNUÐ : 1. Ur Njálsgötu norður suður Snorrabra"t. 2. Af Klapparstíg vestur Skúlagötu. 3. Af Vitastíg vestur Skúlagötu. 4. Af Rauðarárstíg austur Hverfisgötu. 5. Af Snorrabraut vestur Laugaveg. (Bannið gildir ekki gagnvart SVR og einungis á þeim tímum, sem nauðsyn krefur að mati Iögreglunnar). m. AÐRAR TAKMARKANIR Bannað er að aka Rauðarárstíg í suður yfir gatnamót Hverfisgötu. IV. BIFREIÐASTÖÐUBANN: Á Skólavörðustíg norðan megin götunnar frá Týsgötu að Njarðargötu. V. Bifreiðastöður takmarkaðar við hálfa klukkustund á almennum verzlunartfma. / 1. Á eyjunum á Snorrabraut frá Grettisgötu að Flóka- götu. 2. Á Frakkastfg austan megin götunnar milli Grettis- götu og Njálsgötu. 3. Á Klapparstíg vestan megin götunnar frá Lindargötu að Hlverfisgötu og frá Grettisgötu að Njálsgötu. 4. 1 Garðastræti norðan Túngötu. 5. Á Týsgötu, austan megin götunnar frá Skólavörðu- stíg að Þórsgötu. Þessi takmörkun gildir á almennum verzlunartíma frá fimmtudeginum 12. desember til miðnættis mánudaginn 23. desember n.k. Frekari takmarkanir en hér eru ákveðnar verða settar um bifrelðastöður á Njálsgötu, Laugavegi, Bankastræti, Áðalstræti og Aust- urstræti, ef þörf krefur. VI. Ökukennsla í miðborginni er bönnuð milli Snorra- brautar og Garðastrætis á framangreindu tfmabili. VII. Bifreiðaumferð er bönnuð um Austurstræti, Aðal- stræti og Hafnarstræti Iaugardaginn 21. desember kl. 20.00 til kl. 23.00 og mánudaginn 23. desember kl. 20.00 til kl. 24.00. innfremur verður samskonar um- ferðartakmörkun á Laugavegi frá Snorrabraut og í Bankastræti á sama tíma, ef ástæður þykja tll. Vm. Athygli skal vakin á takmörkun á umferð vöru- bifreiða, sem eru yfir 1 smálest að burðarmagni og fólksbifreiða 10 farþega og þar yfir, annarra en stræt- isvagna um Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og Aðalstræti. Sú takmörkun gildir frá kl. 13.00 og þar til almennum verzlunartfma lýkur alla virka daga nema laugardaginn 21. og mánudaginn 23. desember, en )>á gildir bannið frá kl. 10.00. Ennfremur er ferming og af- ferming bönnuð á sómu götum á sama tima. Þeim Jimælum er beint til ökumanna, að þeir forðist óþarfa akstur, þar þrengsli eru, og að þeir leggi bifreiðum sínum vel og gæti vandlega að trufla ekld eða tefja umferð. Þeim tilmælum er beint til gangandi vegfarenda, að þeir gæti varúðar f umferðinni, fylgl settum reglum og stuðli með því að öruggri og skipu- Iegri umferð. Lögreglustjórinn í Reykjavík 11. desember 1968. Sigurjón Sigurðsson

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.