Vísir - 12.12.1968, Síða 12

Vísir - 12.12.1968, Síða 12
/2 VÍSIR . Fimmtudagur 12. desember 1968. ' „Ég hef þau að vísu, en Wheeler Jæknir lætur mig skera úr því, hvenær gripið skuli til þeirra, hr. Bancroft. Og ég er þeirrar skoð- anar, að varast beri í lengstu lög að grípa til þeirra ...“ „Eigið þér við, að hann liggi þannig vakandi alla nóttina .. allar nætur?" heyrði Charles sjálfan sig spyrja. j; Hún vafði saman tímaritið, eins og hún léti gremju 'sína og óþolin- .mæði bitna á því, um leið og hún lét svo lítiö að svara. „Þaö rennur á stundum mók á hann undir morg uninn. Og eins og þér hljótið aö vita, þá sefur hann oft á daginn. Montgomery segir það að minnsta kostí. Var það nokkuð annað, hr. Bancroft?“ Charles sneri sér reiðilega frá henni, og það varð þögn í herberg- inu. Því næst settist hann á stól, sem stóð viö rekkju Parsons. „Ég er dálítið þreyttur", sagði hann lágt. „Ég ætla að hvíla mig hérna dálitla stund, áður en ég fer aö sofa“. Augu Parsons voru opin. Charles lokaði augunum. Sat þannig góða stund. Honum varð hugsað til Alex andríu. Var hann kannski viljandi að draga það á langinn að fara inn til hennar? spurði hann sjálfan sig. Loks opnaði hann augun aftur og leit á gamla manninn. Augu hans voru lokuð. Hann and aði eðlilega eins cfg sofandi maður, og barmurinn lyftist og hneig viö hvert andartak. Hann hafði komizt að raun um það, að Charles hinn, ef ekki sjálf ur hann, stóð í mikilli þakkarskuld við gamla manninn. Hefði Charles hinn getað brugðizt honum nú, þeg ar það þýddi, að allt það, sem þessi maður háfði unniö að langa ævi, yröi lagt í rústir? Jafnvel þótt Par- son sjálfur fengi aldrei aö vita það? Hann reis úr sæti sínu eins hljóð lega og honum var unnt, gekk fram hjá stólunum, þar sem hjúkr- unarkonar sat og lézt vera niður- sokkin í lestur tímaritsins. Svo gekk hann sem leiö lá eftir myrk- um ganginum að svefnherbergisdyr unum. Hafði Charles hinn kvænzt Alexandríu af ást? Enn hafði hann ekki oröið neins annars vísari um það, en það sem ráða mátti af orð um Houghtons ... við vitum báðir, hvers vegna þú kvæntist Alex- andríu fyrst og fremst. Jafnvel hún rennir grun í það... Var það sá grunur, sem Houghton hafði alið á með höggormstungu sinni árum saman, sem staðfest haföi að Iok- um það djúp, sem Charles þóttist hafa skynja,ð, að skildi að Charles hinn og eiginkonu hans? Hann nam staðar við svefnher- bergisdyrnar. Honum mundi aldrei auðnast að fá svar við öllum þeim spumingum, sem á hann sóttu. Um leið og hann segði það litla sem hann sjálfur vissi væri öllu lokið. Öll titrandi óvissa hennar yrði aö bjargfastri vissu. Og hann hafði ekkert sér til vamar. Það var niðamyrkt í svefnherb- erginu, og hann var þakklátur fyr- ir það. En um leið og hann lokaöi dyrunum á eftir sér, varð hann gripinn fáti... hvemig átti hann að hreyfa sig þar inni, hann hafði ekki hugmynd um, hvar ljósrofinn var apk heldur meir. Var hún vak- andi? Var hún I svefnherberginu? Hann haföi mesta löngun til aö snúa á brott aftur. Ganga lögregl- unni á vald. Eða fara til læknis- ins ... hvað hét hann? Wheeler hafði hjúkrunarkonan sagt. Halda á brott, sama hvert var, og sama hver var ... „Skemmtirðu þér vel?“ Hin lága og hljómþýða rödd hennar rauf allt í einu þögnina, og enda þótt hún væri ekki iaus við óþolin mæði, jafnvel ásökun, brá þar um leiö fyrir þessari hlýju glettni, sem einkenndi svo mjög alla framkomu hennar. „Ekki get ég sagt það“, svaraði hann og brosti með sjálfum sér að sannleikanum í svarinu. „Ertu drukkinn?" „Nei“. Á samri stundu var allt um sein- an. Herbergið var baöað í svo . skærri birtu, aö skar í augun. Hann sá hvítan, nakinn arm hennar hverfa frá Ijósrofanum, sá að hún lá á bakið undir ábreiðunni og svart hárið flóði um svæfilinn. Hún var rjóð íjvöngum .. ef til vill eftir svefn, ef til vill af eftir- væntingu ... eða kvíðablandinni andúð. Augu hennar hvíldu á hon- um, spyrjandi og rannsakandi. Loks virtist hún komast að ein- hverri niðurstöðu. „Nei“, sagði hún, „Þú ert áreiðanlega ekki drukk- inn“. Hún lá grafkyrr, og ábreiðan féll mjúklega að grönnum líkama hennar. „Ég geri ráð fyrir, að ég ætti að leggja fyrir þig ýmsar eig- inkonulegar spurningar". Hann átti í haröri baráttu við sjáifan sig, kom ekki upp orði gat ekki haft af henni augun og bölv- aði Charles hinum með sjálfum sér. Hvernig mátti það vera, að hann hefðí ekki unnað þessari konu? Hún hristi höfuðið. „Ég hef bar- izt við sjálfa mig stundum saman .. stundum saman í bókstaflegri merkingu, og tekið þá ákvörðun að lokum að spýrja þig ekki neins. En samt sem áður kemst ég ekki hjá að leggja fyrir þig eina spum ingu ... Houghton segir, að þú haf ir eyðilagt bílinn þinn?. „Já“, svaraði hann rölega, þótt hann fyndi hverja taug í líkama sínum strengjast ósjálfrátt. „Varðstu fyrir meiðslum?" „Nei“, svaraðj hann eins lágt og honum var unnt. „Eiginlega ekki. Aðeins vottur af losti...“ — Og hann gat vart annað en brosaö að því með sjálfum sér, þegar hon- um varð hugsað til þess, hve lítið brot það var af sannleikanum. „Mér þykir fyrir þessu, vinur, ég veit, hvað þér þótti vænt um bílinn“, sagði hún. „Ég vildi bara, að þú vissir, hvað ég er hrædd um þig, fyrir það hvað þú ekur hratt. Þú veizt, hve oft hefur slegið í brýnu með okkur...“ Hún stöðvaði sig í miðri setningu. „Hvar varstu nóttina í New York?“ spurði hún. „Að hótel Plaza?“ „Nei“, sagði hann, og vildi helzt af öllu grípa tækifærið og hefja frásögn sína, en kom sér ekki að því. Hvaöan kæmi honum réttur til aö valda henni frekari sársauka? „Hvemig gaztu verið þar um nætursakir, farangurslaus?" spuröi hún, en brá svo aftur á glettni. „Þeir þekkja þig oröið þaö vel á Plaza, að þeir hafa eflaust hleypt þér inn, eins fyrir það“. Og allt í einu geröist hún hrað mælt og áður en honum vannst tóm til að svara. „Fyrirgefðu, vin ur minn, ég var búin að heita því að sýna þér ekki neina tortryggni. En ég er svo tortryggin I eðli mínu ég ræð ekki við það ...“ Svo hækkaöi hún róminn lítið eitt. „Saknaðir þú mfn?“ spuröi hún. „Jg“, svaraði hann og vissi, að hann sagði þaö satt. Hann rifjaði það upp fyrir sér, þegar hann vakn aði af sinnuleysinu eða hvað það'nú var, þar sem hann stóö á götuhom inu, aö sú tilfinning sem greip hann fyrst var dapur söknuður, sár grunur um að hann hefði glat- aö einhverju sem væri honum óum ræðilega dýrmætt. „Já“, endurtók hann hærra en fyrr. „Ég saknaði þín...“ „Það gleður mig“, sagði hún, og röddin var hvíslandi og heit. „Á stundum þrái ég það svo sárt, aö við gætum einungis horfiö aftur til þeirra daga, þegar þú varst ný- kominn heim frá Kóreu ... daganna áður en við giftumst, eða þessar fáu vikur eftir þaö, þegar við vor- um í New York. -.. áður en við settumst að hér. Hefur sú þrá ekki hvarflað að1 þér einhvern tíma líka?“ Seljum bruna- og annað fyllingarefni á mjög hagstæðu verði. Gerum tilboð í jarðvegsskiptingar og alla flutninga. — Þungaflutningar hf.. - Sími 34635. Pósthólf 741. rökuro aC oxkur Qvers konaj murni. - og sprengivinnu i búsgrunnuro og ræs um Leigjuro ú1 loftpressui íb >hbr sleöa Vélaleiga Steindórs Signvat,- ifinai Alfabrekki vif Suöurtands braut slrrn 10435 TEKUR ALLS KONAR KLÆÐNlNGAR FLJÓT OG VÖNDUÐ VINNA Cjrval af Aklæðum LAUGAVEQ «2 - SlMI 10825 HEIMASlM! 83832 BOLSTRUN Svefnbekkir í úrvali á verkstæðisverSi GÍSLI JÓNSSON Akurgerði 31 Smi 35199. Fjölhæt larðvinnsluvél ann- ast lóðastandsetnlngar, gref húsgmnna, holræsl o.O. Stöðvið hann með spjótum. aæsæxaMJsmmmtswmammmii Skaðið hann ekki. BgynBgwMMwa.iU'iiasaaHWi Kórak. SmciSasfúEkiSit Umsögn: Þær em sígildar, í ætt við Sigurbjörn Sveinsson og H. C. Andersen ... hér em eingöngu góð fræ ... bókin er okkur öllnm holl ... góð jólagjöf barni. , Kristján frá Djúpalæk í Vm Akureyri. BÓKAÚTGÁFAN RÖKKUR Svissnesk úr. Þórður Kristófersson úrsm. Sala og viðgerðaþjónusta Hrísateig 14 (Hornið við Sundlaugavcg.) Sími 83616 Pósthólf 558 - Reykjavík. /UK Velium Wistakt t il iolagjaia fJ==*OUJU£/SAgí RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 ÍslmíUnffur -ísufoM © Vestfirðingar Norðlendi-gar og Austfirðinef': helma og hciman! Fylgizt með i .ÍSLENDINGI - ÍSAFOLГ • Áskrift kostar aðeins 300 kr. Áskriftarsfminn er 96-21509.! BLAÐ FYRIR VESTFIRÐl NORÐUR- OG AUSTURLAND' ííiain^. I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.