Vísir - 18.12.1968, Blaðsíða 1
/
Vilhjálmur Þór r æðir í
SÞ um fæðuöflun úr sjó
VÍSIR
58. árg. - Miövikudagur 18. desember 1968. - 287. tbl.
„Borgarafuadur ekki strax þótt
skapmanna dugitilþess"
— segja forsvarsmenn Garðhreppinga i mjólkursölumálinu
— Þetta mál er í athug-
un til lausnar á einhvern
hátt og ekkert hægt að
segja meira um það að
sinni nema það, að við
reynum að leysa það
skynsamlega, sagði Stef
án Bjömsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, í
viðtali við Vísi í morgun
um mjólkurútsölu í
Garðahreppi á sunnu-
dagsmorgun, sem skýrt
var frá í Vísi i gær.
Stefán sagði ennfremur, að
fulltrúar íbúa Garðahrepps hafi
komið til viöræðna við Mjólkur-
samsöluna í síöustu viku og
hefði þeim verið tekið vinsam-
lega. Blaðið talaði einnig í morg-
un við Höskuld Jónsson deild-
arstjóra, einn af neytendum í
Garðahreppi, og spurði hann hve
nær hinn aimenni borgarafundur
um mjólkursölumálið færi fram,
en það- kom fram í frétt Vísis
1 gær, að það stæöi jafnvel til
að halda þann fund.
— Nú eru að nálgast jól, sagði
Höskuldur og höfum við í fyrstu
Vilhjálmur Þór flutti ræöu
f annarri nefnd Sameinuðu
hugsað okkur að láta fara fram
undirskriftasöfnun og fara hóf-
lega í sakirnar fyrst. Viö mun-
um leggja ríkari áherzlu á þetta
mál við Mjólkursamsöluna eftir
áramót, ef ekkert afturhvarf er
sjáanlegt, og þá efna til borgara-
fundar. Það er ekki heppilegt að
fara af stað með fund núna,
þótt skap manna dugi alveg til
þess.
Þá talaði blaðið við Ragnar
Pétursson, kaupfélagsstjóra
Kaupfélags Hafnfirðinga. Hann
sagöi: — Það sem ég hef um
þetta mál að segja er það, að
við seljum mjólk í þessari mat-
vörubúð, en aðeins um stundar-
sakir, þangað til Mjólkursamsal-
þjóðanna f lok síðasta mánaö-
ar. Þar var fjallað um fram-
an opnar sína eigin búð í þess-
ari verzlunarbyggingu Kaupfé-
lagsins á Garðaflöt, sem verður
væntanlega á næsta ári. Við er-
um með mjólkina í umboðssölu
og að sjálfsögðu ráða þeir hvort
hún er seld á sunnudögum eða
ekki. Mér finnst gert nokkuð
mikið úr þessu. Við höfum þarna
helgar- og kvöldsölu í gegnum
söluop og þar seljum við allar
varur, sem eru í búðinni, ef
fólk óskar þess. Þessi sunnudags
sala á mjólk að undanförnu hef-
ur aöeins verið mjög lítil. Það
hefur ekki verið tekin mjólk sér-
staklega til að selja á sunnudög-
um heldur aðeins verið tekinn
afgangurinn frá laugardeginum
og oft hafa það ekki vertð nema
örfáar hyrnur, sem við höfum
haft til sölu á sunnudagsmorgn-
um. Að lokum sagði Ragnar, aö
þeir í kaupfélaginu ættu ekki í
neinni deilu við Mjólkursamsöl-
una.
leiðslu eggjahvítuefna til
manneldis. Benti Vilhjálmur
á þá gífurlegu möguleika,
sem væru á vinnslu eggja-
hvítuefna úr sjó.
Meðal annars benti hann á að
mikill hluti þeirra eggjahvítu-
efna sem fást úr fiski fer í dýra
fóöur. Til dæmis er 98% af afla
Perúmanna í bræösluverksmiðj
ur. Og á íslandi, þar sem fisk-
iðnaður væri háþróaður væri
einungis 25% af því eggja-
hvítumagni, sem flutt væri út,
ætlað til manneldis.
„Hugsið ykkur hve mörgum
yrði bjargað frá næringarskorti
ef allur fiskur frá þessum tveim
ur löndum einum færi til mann
eldis ...“ sagði hann.
Vilhjálmur minntist einnig á
tilraunir sem gerðar hafa verið á
Norðurlöndunum varðandi fram
leiðslu eggjahvítuefna úr sjávar
dýrum, taldi hann nauösyn á að
leiðbeina fiskveiðiþjóðum við
framleiðslu fiskafurða sinna,
þannig að mestur afli þeirra
færi til manneldis og kenna
þyrfti öðrum þióðum að nýta
möguleika til fiskveiða og þeim
yröi leiðbeint við fæðufram-
leiöslu úr þessum afla.
u
Á f;.-ta viðræðufundi Alþýðu-
sambandsins og rikisstjórnarinnar
mætti Eðvarð Sigurðsson, formað-
ur Dagsbrúnar, ekki. Aðspurður i
morgun um orsakir fiarveru hans,
kvaðst Eðvarö ekki vilja „tíunda“
þær. Hins vegar kvað hann flokks-
bróður sinn Snorra Jónsson hafa
setið fundinn.
Eins og áður hefur veriö skýrt
frá í blaðinu, vildi Eðvarð „fresta“
því, að viðræðunefnd yrði kjörin,
en sú tíllaga var felld í miðstjórn
ASÍ.
Krakkarnir fá að fara með i fjölbreyttar og glæsilegar og
pabba og mömmu í bæinn að skoða ! þetta sinn.
jólaútstillingarnar í gluggunum, ! Sum krakkanna fara nú á
sem hafa víst aldrei verið eins I spýtur í þessa leiðangra en þá
mega þau gæta sín vel £
16 á atvinnu-
leysisstyrk hjá VR
IÓLIN eru að nálgast. Litlu jól-
in eru haldin í skólunum og eft-
irvæntingin eykst daglega hjá
þeim yngstu — aö jólin fari nú
að koma.
Á þessu ári hafa 76 manns ver
Ið á atvinnuleysisskrá hjá Verzl-
tnarmannafélagi Reykjavíkur,
samkv. þeim upplýsingum, sem
Wsir fékk á skrifstofu félagsins
i morgun.
Nú munu 16 manns þiggja þar
itvinnuleysisstyrk. Af þeim sem
þegið hafa atvinnuleysisstyrk er
meirihlutinn konur. Styrkurinn
nemur 156 kr. á dag fyrir einstakl
ing en 165 kr. fyrir hjón og þar
við bætast 19 kr. fyrir hvert barn
undir 16 ára aldri.
Um þessar mundir hefur félagið
»-> 10. síða.
inni.
Á myndunum sjáum við börn
við sérstaka jólamessu í Kópavogs-
kirkju í sambandi'við „litlu jólin"
en á hinni sjáum við tvær dömur,
sem standa furðulostnar frammi
fyrir einni frumlegustu glugga-
skreytingunni núna — en það ei
engin önnur en hún Grýla, sem
hrærir í potti sínum f glugganum
hjá Ljósi og orku á Suðurlands-
hraut. Krgkkarnir mega svo sannar
lega gæta sín, en eins og við vit-
um tekur Grýla bara vondu börn-
in, svo aö öllum ætti að vera ó-
hætt svona rétt fyrir jólin.
Grýla hefur laðað að sér marga
krakka að undanförnu og sum eru
hálfsmeyk að vonum því ekki er
hún frýnileg á svipinn.