Vísir - 18.12.1968, Síða 7
/
morgun útlönd í morgun útlönd í raorgun útlönd í raorgun dtl-öridj
John fe Carre: LAUNRAÐ um LA6NÆTTI
JOHN LE CARRÉ sýnir enn einu sinni í þessari bók, a5 hann er
snillingur, og George Smiley mun sannfœra lesendur um það
enn einu sinni, að hann er með slyngustó söguhetjum, sem unnt
er að kynnast.
JOHN LE CARRÉ er höfundur metsölubókanna: NJÓSNARINN, SEM KOM
INN ÚR KULDANUM og NJÓSNARINN í ÞOKUNNI.
Bókaútgáfan VÖREUJFELL
1 Æðsti skipuiagssér-
fræðingur Sovétríkj-
anna sendur til Prag
Hlutverk hans og sendinefndar-
innar er að ganga frá áætluninni
um efnahagsaöstoð Sovétríkjanna
við Tékkóslóvakíu. Balbakov mun
dveljast vikutíma í Prag. Hann
sagði við fréttamenn frá Tass-frétta
stofunni, að hann mundi fara i
heimsókn til ýmissa fyrirtækja í
Prag og víðar.
i niiö-ireu ira iviuskvu i gær
segir að æðsti skipulagsfræðingur
Sovétríkjanna Nikolaj Balbakov,
hafi verið sendur til Prag sem for-
maður sendinefndar.
Þetta kom vestrænum frétta-
mönnum í Prag ekki á óvart, þar
sem orðrómur hafði veriö á kreiki
um þetta allt frá því Kiev-fundin-
um lauk.
V1SIR . Miðvikudagur 18. desember 1968.
Hart móti hörðu, ef franskir
stúdentar stofna til ,,verkfalla
Couvé de Murville forsætisráð-
herra Frakklands gerði fulltrúa-
leildinni í gær grein fyrir horfum
á sviði efnahags- og atvinnumála,
og varaði stúdenta og aðra við að
;tofna til æsinga og uppþota, og
icvað slíkt ekki verða þolað.
Forsætisráðherra kvað mikið
vera að breytast til batnaöar, fram-
leiðsia væri að aukast og útflutn-
ingur, og fé streymdi nú aftur inn
í landið.
Hann játaði, að til nokkurar verð
hækkunar hefði komið, en slíkt
hefðí verið óhjákvæmilegt. Hann
kvað strangt eftirlit mundu verða
haft með verðlagi.
Stúdentar i háskóladeild utan
Parísar hafa hvatt til mótmælasam-
taka franskra háskólastúdenta um
land allt. Þegar boðaðar eru mót-
mælaaðgerðir stúdenta er notaö
orðið ,,allsherjarverkfall“ og átt við
þaör að stúdentar sækj ekki
kennslustundir og setjist að í há-
skólabyggingum. Það mundi óhjá-
kvæmilega leiða til átaka, og nú
verður auðveldara að fylgjast meö
hverjir valda óspektum innan vé-
banda háskólanna, þar sem þar
fær nú enginn að fara út og inn
skírteiníslaust.
\
Stúdentasambandið
franska boðar til
mótmælafunda í dag
Hið volduga stúdentasamband
í Frakklandi hefur hvatt franska
stúdenta tii mótmælaaðgerða í
dag vegna framkomu lögreglunn
ar í gær í París og Toulose.
París £ gær: Til átaka kom í
gær í París og Toulose milli
lögreglu og stúdenta, sem virtu
að vettugi aðvaranir stjórnar-
innar í þeirra garö, ef til frek-
ara ofbeldis kæmi, svo sem aö
setjast að í háskólabyggingum.
í París uröu átökin við Sorb-
onne-háskóla. 1 Toulose beitti
lögreglan táragasi, en þar komu
stúdentar saman í fyrirlestrasal
háskólans til þess að horfa á
kvikmynd frá óeirðunum s.l. vor
og ætluðu þeir svo að halda
kyrru fyrir í byggingunni.
Ókvrrð er við háskóla viða
um land og styðja kennarar
sums staöar málstað stúdenta
og taka þátt í mótmælum
þeirra.
Rússar herða
úróður gegn
Bretum
Blaðið Isvestija í Moskvu hefir
sakað brezka útvarpið um samstarf
við brezku leyniþjónustuna með
útvarpi leynimerkja til „agenta“
í Austur-Evrópu, og kveðst blaðið
hafa skjailegar sannanir fyrir
þessu og yrðu þau gögn lögð fram
um næstu helgi.
Yfirmaöur útvarpsins á vegum
BBC til Austur-Evrópu segir þess-
ar ásakanir nýjan þátt áróðurs
°egn Bretlantli og sea'r bær fárán-
legar og rakalausar meö öllu.
Kvaö hann tilganginn auðsæilega,
aö fá menn til þess að hætta að
hlusta á brezka útvarpið og væri
mjög reynt að trufla það.
Misheppnað
byltingarúform
í Ghana
Komizt hefir upp um samsæri f
Ghana og hefir Michel Otu flug-
marskálkur verið handtekinn.
Hann er yfirmaður landvam-
anna. Áformað var, að hermenn
undir hans stjórn hertækju bæi i
þeim tilgangi að koma Nkrumah,
sem er í útlegð, á valdastól fyrir
jól.
EUSÉBIO
Ævisaga eins snjallasta knattspyrnumanns sem nú er uppi. —
Þetta er bókin sem knattspymuunnendur hafa beðið eftir.
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonor