Vísir - 18.12.1968, Page 12
T2
Þetta virtist ein af þeim fáu spum
ingum, sem ólíklegt var, að Logan
gæti svaraö.
Og þegar hann minntist þess.
hvemig imgi maðurinn haföi haltr
að að bilnum, varð honum um leið
ljóst, að hvað svo sem það kynni
að vera, sem Charles hinn hafði
gert á hluta hans, þá mundi kryppl
'ingseðli hans ráða því, að hann
svifist einskis, ef hann vildi koma
fram hefndum, enda þótt þaö sýnd
ist fáránlegt á yfirborðinu að gera
ráð fyrir því, að hann væri sá
bógur að nokkur þyrfti að óttast
hann. Samt sem áður gat Charles
ekki hrist fylliiega af sér þennan
óþægilega grun, þegar hann var
setztur við skrifboröið og haföi opn
að neðstu skúffuna.
Efst i skúfunni lá ávísanahefti
hans. Hann tók það og athugaði
stofnana, án þess aö gera sér ljóst
hvers hann var að leita. Hann sá,
að hann hafði fengið allháar upp-
hæöir greiddar í reiðufé, og um leiö
mundi hann eftir seðlaknippinu,
sem hann hafði fundið I veskinu
sínu. Hvað gat þaö þýtt? Ef til vill
þaö, að Charles hinn hefði hneigzt
að fjárhættuspili, eins og Preston
mágur hans. Ellegar það, að Charl-
es, sem einu sinhi hafði verið snauð
ur, fyndist það einhver trygging að
ÝMISLEGT ÝMiSLEGT
Seljum bruna- og annað fyllingarefni á mjög hagstæðu verði. Gerum
tilboð í jarövegsskiptingar og alla flutninga. — Þungaflutningar hf.. —
Sími 34635. Pósthólf 741.
l'ölcuir jKkur overs suntu ’injin,
og sprengivmnu ' núsgrunnuir) ra.'-
um Letgjum út loftpressui j* rfbr
sleða Vélaletga Steindórs Stgbvao-
conai A-lfabrekkL víC Suðurlands
braut slmt tó435
30435
TEKUR ALLS KONAR KLÆÐNINGAR
FLJÓT OG VÖNDUÐ VINNA
ÚRVAL AF ÁKL/EÐUM
LAUQAVEQ <2 - SlMI 10225 HEIMASIMI 23234
BOLSTR U M
Svefnbekkir i úrvali á verkstæðisverBi
GÍSLI
JÓNSSON
Akurgerði 31
Smi 35199
Fjölhæt laiðvii'.nsluvé) ann-
ast lóðastandsetningar, gref
húsgrunna. holræsi o.fi.
ganga með mikið fé. Hvað um það,
hann átti inni 522 dollara.
Þegar hann hafði lagt ávísana-
heftiö aftur á sinn stað, varð fyrir
honum heiðursmerki í siikiborða,
silfurstjaman. Þegar hann virti
hana fyrir sér, var sem hann fyndi
enn til sársaukans í hægra fætin-
um, og hann minntist þess,
að Houghton hafði eitthvað verið
að tala um stríðshetju. Og enn
mundi hann óljóst eitthvað í sam
bandi við Kóreu, sem einmitt hafði
leitaö á huga hans nokkrum sinn-
um áður.
Hann grúskaði enn í skúffunni.
Þar kenndi margra grasa — tæmd
ir kúlupennar, tveir sígarettu
kveikjarar, nokkur minnisblaða-
hefti, stór og ljót marghleypa, hálf
falin undir pappírsörk, sem eitt-
hvað var skrifað á. Hann lét skot-
vopnið eiga sig, en dró örkina upp
úr skúffunni og las þaö sem hann
hafði sjálfur skrifað þar með bleki
... Austin Parson — 25%, Cather
ine Parson — 10%, Alexandría —
15%, Houghton 20%, stjórnarmeð-
limir, að Sanford meötöldum —
10%, almenningur 5%, Adele Bara
chois — 15% ...
Hann athugaði nöfnin og töl-
urnar nokkra stund, en skildi svo,
hvað þetta var — hann hafði ein-
hverra hluta vegna skrifaö þarna
sér til minnis hlutabréfaeign við-
komandi aðila í Parsons fyrirtæk-
inu. Og þarna sá hann það svart
á hvítu, að ef Houghton lagði
hlutabréfaeign föður síns við sína
eigin, leiddi af sjálfu sér, að hann
réði fyrir 45% af hlutafénu, sem
dugði honum þó ekki til aö ákveða,
að fyrirtækiö skyldi selt. Hins veg
ar nægði það honum, ef hann gæti
komizt yfir hlutabréf Adele Bara-
chois. Og þá þurfti kaupandinn,
Leverton, ekki að komast yfir
nema 15% til viðbótar til þess áð
hafa öll ráð í hendi sér, þá gat
hann meðal annars ákveöið, að
fyrirtækið skyldi/ lagt niður. Efi
það reyndist aðeins unnt að telja
Adele Barachois á annað hvort að
selja hlutabréf sín alls ekki eða
selja ’ Charles þau ...
Spyrjandi eftirvænting greip
Ví SIR
hann. Skyldi Charles hinn hafa
haldið til New York í þeim erinda
gerðum? Annað hvort gert sér von
ir um að geta talið Adele Bara-
chois á að selja bréfin alls ekki,
eða — eins og Houghton hafði
gefið í skvn — ætlað að reyna að
fá hana til aö selja sér hlutabréf-
in? Hann braut saman pappírsörk-
ina og stakk henni í brjóstvas-
ann. Gekk síðan yfir að símanum.
Með öðrum orðum, þaö var alls
ekki fyrir aö svnia, að Charles
hinn heföi ætlað sér að koma í veg
fyrir, að fyrirtækið yrði selt...
Þegar hann haföi sagt stúlkunni
á langiínustöðinni nafn og síma-
númer frú Adele, settist hann aft-
ur og beiö. Mundi það svo allt I
einu, að hann átti ekki nema rúm-
lega 500 dollara £ bankanum,
kannski enn minna nú. Hvernig
átti hann að geta gert sér vonir
um að hafa bolmagn til að kaupa
hlutabréf, sem áreiðanlega voru
mörg þúsund dollara virði? I sömu
svifum hringdi síminn. „Já?“
heyrði hann hása og syfjulega
rödd spyrja í fjarska. „Já....
hvað er þaö .. ?“ Og hann bar þeg
ar kennsl á rödd frú Barachois.
„Gerið svo vel“, greip afgreiðslu
stúlkan fram í.
„Þetta er Charles Bancroft,
frú Barachois."
„Hver þá?“
„Charles Bancroft... ég hitti yð
ur að máli í gær ..
„Ó, guð minn góður .. .“
„Við, það er að segja, ég og dótt
ir yöar erum reiöubúin aö ,kaupa
hlutabréf yðar í Parsons-fyrirtæk-
inu háu verði...“
Hann heyrði lágt óp. Ekki til-
gerðarlegt heldur þrungið sársauka.
Eins og einhver væri að biðja sér
miskunnar.
„Ég veit, að þaö getur ekki kall
azt beinlínis hæverska að hringja
svona árla morguns, frú Baracho-
is“, mælt; hann afsakandi.
„Hæverska .. hæverska ... Ungi
maður, þér eruð snarbrjálaður! Ger
ið þér yður það ljóst?"
„Hafið þér ef til vill selt hluta-
bréfin þegar?" spurði hann og
Bílar af öllum gerðum til sýnis og sölu í glæsilegum sýningarskóia
okkar að Suðurlandsbraut 2 (við Hallarmúla). Gerið góð bilakaup —
Hagstæð greiðslukjör — Bílaskipti. Tökum vel með farna bíla í um-
boðssölu. Innanhúss eða utan.MEST ÚRVAL—MESTIR MÖGULEIKAR,
Miðvikudagur 18. desember 1968.
fann, hvernig lófarnir urðu rakir
af svita.
„Brjálaöur, brjálaður ... brjálað
ur! Guð minn góður, getur ekki
einhver bjargað mér úr klónum á
þessum snarbrjálaða manni? Þvi í
ósköpunum fæ ég ekki að vera í
friði....“ Orðaflaumurinn buldi í
eyra hans, eins og hún væri haldin
einhverri ólýsanlegri kvöl, eða grip
in óskiljanlegri skelfingu. „Hvaö
hef ég unnið til saka, að ég skuli
veröskulda annað eins?“ Og því
næst heyröi hann það, sem hann
hafði sízt af öilu búizt við . .. sár-
an, ekkaþrunginn grát. Og enn
einu sinni fannst honum, sem hann
hefði fyrir einhverja tilviljun gægzt
inn um dyr á einhvers konar
einkavíti. „Roxanne... Roxanne
....“ Það var óp á hjálp, þrungið
annarlegum ótta „Roxanne ... það
er brjálaður maður £ símanum ...
þvælir um ejnhverja óskiljanlega
hluti... Roxanne, í öllum guðanna
bænum, komdu og hjálpaöu mér
((
Lágur smellur, einhver haföi lagt
talnemann á, sennilega þeman.
Charles stóð andartak með talnem
ann við eyrað gripinn innilegri með
aumkun, sem hann fann þó að
var harla undarleg, í rauninni
þekkti hann þessa manneskju ekki
hið minnsta.
Þegar hann hafði lagt talnem-
ann á, hugðist hann loka skrif-
borðsskúffunni, en þá stöldruðu
augu hans við vélritað handrit, heft
í bláa kápu, sem lá neðst í henni
og hann tók það upp og fór aö at-
huga það. Tillögur um endurskipu
lagningu Parsons fyrirtækisins
stóð vélritað framan á kápunni.
Hann opnaði það og las, reyndi
að einbeita hugsun sinni aö vél-
rituðum orðunum, gera sér grein
fyrir merkingu þeirra innbyrðis.
Það tók hann fimmtán til tutt-
ugu mínútur að lesa handritið tii
enda, Charles Bancroft stóð undir
síðustu línu á öftu'stu blaðsíöu.
Þarna var um að ræöa tillögur um
gerbreytingu á rekstri og stárf-
semi fyrirtækisins, gerð ljós grein
fyrir nýjum verkefnum og ráð fyr
ir stækkun verksmiðjunnar og vfð-
tækari markaðsleit. Hann starði á
sitt eigiö nafn og minntist þess,
sem Houghton hafði sagt við syst-
ur sína — Charles hefur gengið
með furðulegustu hugmyndir í von
um að koma í veg fyrir að ég
seldi. Stórfenglegar áætlanir — en
ég tel enga ástæöu til að ætla að
stjómin taki hann alvarlega.
Hann athugaði dagsetninguna
undir nafni sínu — 6. sept. 1963.
Fyrir mánuði nákvæmlega. Hálfum
mánuði eftir aö Houghton hafði
skýrt honum frá því að hann hefði
í athugun að selja fyrirtækið. —
Skyldj Austin Parson nokkuð hafa
vitað um þessar tillögur? Sennilega
ekki. En hvernig hafði Charles hinn
þá hugsað sér að koma þeim í
framkvæmd?
Símnn hringdi. Það var rödd karl
manns — ekki Adele Barachois,
eins og hann haf,i hálft i hvoru bú
izt við. Lögfræðingurinn Conway.
„Charles?"
..Já..."
VERKTAKAR - VINNUVÉLALEIGA
M/OSTi TO THSHO-DOH
CtTYi /T'S OUHS... TO
TAKr..AHD Í.OOTÍJ
NO WAV TO
STOP THSM
NOWÍ OUR
H0MS9 ASS
OOOMBDi
PHRHAPS, HO-PON! BUT WiTH
Komið. Tfl borgar Ho-donanna. Hún er
okkar til þess að taka og skipta.
Það er engin leið til þess að stöðva þá
núna. Heimili okkar eru dæmd. Ef til vill
Ho-doni, en þegar allir óvinir ykkar hafa
þotið af stað til að ráðast á borg ykk-
Hver gætir á meöan borgar þeirra?
ar...
Loílþressur - Skurdþröiur
ftranar
Tökum að okkur alls konar
framkvœmdir
bœði í tíma-og ókvœðisvinnu
Mikil reynsla í sptengingum
LOFTORKA SF.
SÍMAR:'21450 á 10190