Vísir - 23.12.1968, Blaðsíða 8
*
TJjað eru æðimargir, sem
gripa tækifærið um jólin
og bregöa sér í bíó ellegar
leikhús, bótt þeir séu annars
lítið gefnir fyrir slíkt útstá-
elsi. Enda reyna þessar stofn-
anir að tjalda því, sem til er
um þetta leyti til að enginn
þurfi að verða fyrir vonbrigð-
um og allir geti funtíið eitt-
hvað við sitt hæfi.
I Reykjavík, Kópavogi og
Kfafnarfirði eru ellefu kvik-
myndahús samtals og jóla-
myndir þeirra eru af ýmsu
tagi. Mest er um gamanmynd
ir, enda er það eðlilegt að
leitazí sé við að sýna myndir,.
sem öll fjölskyldan getur far-
ið saman að sjá.
Ekki fylgja þó öll bíóin
þessari stefnu, og sum þeirra
sýna stórmyndir eða saka-
málamyndir, sem kannski eru
ekki beinlínis við barnahæfi.
Annars er ekki ástæða til að
f jölyrða meira um kvikmynda
valið; réttara er að by*ia þeg-
ar upptalnlnguna, svo að
hver og einn geti vatið sam-
kvæmt sínum smekk.
Gamla bló:
Ferðin
ótrúleffa
Nýja b'ió:
Yér flughetjur
fyrri tíma
Myndin í Nýja bíó er ein af
dýrari gamanmyndum, sem
hafa veriö geröar í seinni tíö.
Hún fjallar um flugkeppni
mikla á því herrans árj 1910
milli Lundúna og Parísarborg-
ar, en sigurvegarinn í þeirri
keppni fór vegalengdina á 25
klukkustundum og 11 mínútum.
Frægar kvikmyndastjörnur
margra þjóöa leika í myndinni.
Til dæmis má nefna Gert Fröbe
frá Þýzkalandi, James Fox frá
Englandi, Stuart Whitman frá
Bandaríkjunum, Alberto Sordi
frá Ítalíu og margar fleiri.
Stjórnandi myndarinnar er
brezkur og i röö hinna beztu
leikstjóra, Ken Annakin.
Ekkert var sparaö viö gerð
þessarar myndar, enda getur
þar að'líta mörg spaugileg at-
riöi, sem henda keppendurna í
hinu mikla kapphlaupi milli
Lundúna og Parísar.
Walt sálugi Disney hafðj þaö
aö leiöarljósi, aö gera aldrei
kvikmynd, sem væri þannig að
hann vildi síðúr leyfa bömum
sfnum aö sjá hana. Árangurinn
varð sá, aö flestar myndir frá
fyrirtæki hans eru fremur
bragðdaufar, þótt margt gott
sé hægt um þær aö segja.
Jólamynd Gamla bíós í ár
heitir Ferðin ótrúlega og segir
frá merkilegu ferðalagi tveggja
hunda og eins kattar, sem lenda
í miklum hrakningum.
Stórbrotiö landslag sést i
myndinni, sem er aö mestu leyti
gerð í Kanada.
Kópavogsb'ió:
Hvað gerðir þú
í stríðinu pabbi?
Þetta er þekkt gamanmynd,
sem engan ætti að svíkja. Tit-
illinn er áleitin spuming við
þá mörgu, sem tóku þátt í
Austurbæjarb'ió:
[uepg
soldáninn
Lfm nokkurt skeið hefur Aust-
urbæjarbíó haft þaö að vana aö
sýna kvikmyndir um hina tál-
fögru Angélique á stórhátíð-
um Aösóknin hér sem annars
staöar hefur verið framúrskar-
andi góð.
Flestar þessara mynda snúast
um leit aðalkvenhetjunnar aö
eiginmanni sínum, sem hefur
þaö fyrir fasta reglu aö koma
í ljós um miðbik hverrar mynd-
ar og gufa upp í lokin til aö
framhaldið veröi meira spenn-
andi.
Angélique-myndirnar em á-
vallt dável gerðar af Frans-
manninum Bemhard Borderie,
og hin ólánssömu hjón eru á-
vallt dável leikin af þeim
Michele Mercier og Robert
Hossein.
Angélique-sögurnar em gerð-
ar af frönskum hjónum, sem
saman skrifa undir höfundar*
nafninu Sergeanne Colonne.
Bækur þeirra hafa verið þýddar
á fjölmörg tungumál, og sýna
mætavel, aö dagar vinnukonu-
róman^ eru ekkj taldir.
heimsstyrjöldinni síðari, en létu
einhverra hluta vegna hjá líða
að drýgja nokkrar hetjudáðir.
Stjómandi myndarinnat er
sjálfur Blake Edwards, sem hér
mun vera þekktastur fyrir mynd
sína Bleiki pardusinn. Hann
hefur sérhæft sig í því að gera
skemmtilegar og fmmlegar
gamanmyndir, þótt um þessar
mundir sé hann einna mest í
fréttum fyrir áð stlga í vænginn
við Julie Andrews.
Aðalleikendur í myndinni eru
James Cobum (Ofurmennið
Flint) og Dick Shawn.
Laugarásb'ió:
Madame X
Laugarásbíó hefur að þessu
sinni tekiö þann kostinn að
sýna sakamálamynd, sam fjall-
ar um flókinn æviferil konu
einnar. Hún lendir í ástarævin-
týri, en elskhugi henriar ferst i
slysi, þannig að grunur leikur á
að hún hafi ráðið horium bana
Löngu síðar veröur hún fyrir
því að ráða manni bana, og
uppkominn sonur hennar verö-
ur verjandi hennar, án þess að
vita hver á í hlut.
Lana Turner leikur aðalhlut-
verkið í þessari mynd, og þykir
takast vel upp. Hér áður fyrr,
þegar hún var í blóma lífsins
þurfti hún aðeins að sýna sig
í kvikmyndum, en þegar árin
færast yfir er ekki verra að
geta blásið rykinu af leikhæfi-
leikunum.
Hafnarb'ió:
Óróa-
belgirnir
Hayley Mills leikur aöalhlut-
verkið í jólamynd Hafnarbíós.
Myndin er gamanmynd sem
fjallar um ungar stúlkur i
klausturskóla 'og ýmiss uppá-
tækj þeiræ.
Myndin er bandarísk og
stjómandi hennar er Ida
Lupino.