Vísir - 23.12.1968, Blaðsíða 9
VlSIR . Mánudagur 23. desember 1968.
arnar
Tónab'ió:
Rússarnir koma,
Rússarnir koma
Kafbátur strandar úti fyrir
strönd Nýja Englands og skelf-
ingin grípur um sig meöal íbú-
anna, sem eru aö sjálfsögðu
þjáðir af óttanum við hina ægi-
legu Rússa. Málaflækjumar,
sem af þessu stafa eru margvís-
legar, en allt fer vel að lokum
eins og í öllum góðum gaman-
myndum.
Þessi mynd hefur hlotið gíf-
Stórmyndir um gengin stór-
menni eru ær og kýr þeirra í
Hollywood, enda sagði Cecil B.
DeMille sálugi að slíkar myndir
væru einasti motleikurinn gegn
sjónvarpinu.
Stjömubíó sýnir nú mynd
um Mongólahöfðingjann Djengis
urlega aðsókn alls staöar þar
sem hún hefur verið sýnd, og
Alan Arkin, sem leikur aðal-
hlutverkið, hefuc/hlotiö heims-
I frægð fyrir.
Stjórnandi myndarinnar er
hinn þekkti leikstjóri Norman
Jewison, og margir kunnir leik-
arar fara þarna meö hlutverk.
T. d. Jonathan Winters, Eva
Marie-Saint, Brian Keith og
Theodor Bikel.
Khan, þar sem Omar Shariff er
í aðalhlutverki. Fleiri frægir
leikarar sjást að sjálfsögöu á
hvíta tjaldinu, eins og þeir
James Mason og Stephen Boyd.
Myndin er gerð með dýrustu
og fínustu tækni sem þekkist í
dag, og stjómandi hennar er
Henry Levin.
Háskólab'ió:
y
Eltinga-
leikurinn
Sjónvarpsstjarnan bandaríska
Phil Silvers leikur þama aðal-
hlutverkið, en hann er mörgum
kunnur síðan á dögum ,,kana-
sjónvarpsins".
Myndin er að sjálfsögðu
gamanmynd með margs konar
flækjum og útúrdúrum og ó-
væntum endi, og þetta er ensk
gamanmynd, þótt það sé ekki
lengur eins gott vörumerki og
einu sinni forðum daga.
Stjómandi er Gerald Thomas
og aöalleikarar eru Phil Silvers,
Jim Dale og Peter Butterworth,
og myndir. kemur frá Ranks.
Maður og
kona
Að þessu sinni hefur Leik-
félag Reykjavíkur ekki sérstakt
jólaleikrit,- heldur sýnir leikrit
Jóns Thoroddsens Mann og
konu, sem var fyrsta verkefni
félagsins í haust og 149. verk-
efni þess frá upphafi.
Leikstjóri er Jón Sigurbjöms-
son og þetta skemmtilega leik-
rit hefur verið sérdeilis vel
sótt fram til þessa.
Hafnarfjarðarb'ió:
Frede bjargai
heimsfriðnum
Jólamynd Hafnarfjaröarbíós
í ár er nokkurs konar framhald
af síðustu jólamynd.
AÖalhlutverkið leikur nú
Morten Grunwald, og aöcir
leikendur eru til dæmis Ove
Sprogöe og Clara Pontoppida*-
og ennfremur Dirch Passer.
Myndin fjailar um njósnn
Daninn Frede Hansen er dreg
inn inn í njósnamál, og hanr
stendur sig engu síður er
James Bond, og að lokun
bjargar hann heimsfriðnum
eins og góðir njósnarar ern
vanir að gera aö minnsta kosti
tvisvar á dag.
i
Stjörnub'ió:
, Djengis Khan
Þjóðleikhúsið:
Deleríum Búbónis
Jólaleikrit Þjóðleikhússins er
eftir hina kunnu bræður Jónas
og Jón Múla Árnasyni, Áriö
1960 var það sýnt af Leikfélagi
Reykjavíkur við mjög góðar
undirtektir.
Leikritinu hefur veriö tölu-
vert breytt frá þeirri sýningu.
Magnús Ingimarsson hefur út-
sett lögin á nýjan leik, og
tuttugu manna hljómsveit leik-
ur undir á sýningum.
Fyrir börnin er einnig sér-
stök dagskrá í Þjóðleikhúsinu,
þvf að þar verður sýnt leikritið
Síglaöir söngvarar eftir hinn
góðkunna Thorbjörn Egner.
Bæjarb'ió:
Fegurðardísin,
gyðja dagsins
Flestir þeir, sem nokkuð
þekkja til kvikmynda, kannast
við nafnið Luis Bunuel, en hann
sr einn hinna helztu meistara
nnan sinnar listgreinar.
Það þarf töluvert áræði til að
'elja mynd eftir þennan mann
yrir jólamynd eins og Bæjar
)ió gerðj nú, og vonandi á það
remur eftir að verða bíóinu ti'
íóös heldur en hitt.:
Bunuel er enginn græningi i
kvikmyndagerð,' og „Belle de
jour“ er talin ein bezta mynd
hans, svo að engihn ættj að
'vera svikinn á því að bregöa
sér í Fjörðinn til að sjá hana,
að minnsta kosti er ástæða til
aö veita henni sérstök meðmæli.
Aðaihlutverkið f myndinni
eikur franska leikkdnan Cather-
ine Deneuve, sem er einkum
kunn hér fyrir leik sinn f mýnd-
unum „Stúlkan með regnhlíf-
arnar“ og „Repulsion".
25
gnasa
I
/