Alþýðublaðið - 05.01.1966, Page 7
oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo ooooooooooooooooooooooooooo
1 KASTLJÓS I
Ráðstefna þriggja heimsálfa
MILLI 400 og 500 fulltrúar
frá 80 löndum eru mættir á
Kúbu að sitja svokallaða „ráð-
stefnu þriggja heimsálfa.” Ráð
stefnan, sem hófst á mánudag-
inn, stendur í sjö daga og fell-
ur saman við hátíðahöld í til-
efni af sjö ára afmæli Castro-
byltingarinnar.
Að því er segir í fundar-
boðinu er tilgangur ráðstefn-
unnar að marka sameiginlega
stefnu í þremur heimsálfum
til að mæta bandarískri árás.
Hvað Castro snertir er til-
gangur ráðstefnunnar sá, að
sýna Bandaríkjamönnum að
hann sé ekki einangraður og
að draga Rómönsku Ameríku
inn í byltingarhreyfingu
kommúnista.
Það sem Castro kallar „ráð-
stefnu þriggja heimsálfa” er í
rauninni venjulegur fundur
innan hinna svokölluðu „Al-
þýðueiningarsamtaka Afríku
og Asíu” (AAPSO), sem á-
kvað á síðasta fundi sínum í
Acera í Ghana í apríl að halda
næsta fund sinn í Havana.
Þetta var samþykkt að ósk
Rússa og eindregið gegn vilja
Kínverja. En Kínverjar urðu,
að lokum að lúta í lægra haldi
og voru hrópaðir niður.
★ STEFNA 'RÚSSA. '
Ein niðurstaða Hayanaráð:
stefnunnar verður - sennilega
sú, að Rómanska — Améríka
gengur í AAPSOj sem síðan
verður breytt í „einingarsam-
tök Afríku, Asíu og Rómönsku
Ameríku,” en að þessu. stefna
Ben Barka. -
Rússar, enda þótt þeir virtust
lítt' lirifnir af Kúbufundinum
þar til nú fyrir skemmstu. En
nú eru þeir eindregnir stuðn-
ingsmenn ráðstefnunnar og
hafa kostað ferðalög flestra
fulltrúanna og jafnvel sett slcip
til reiðu.
Ástæðan liggur í augum
uppi. Sovétríkin taka þátt í
ráðstefnunni sem Asíuríki
og munu krefjast þess þegar
AAPSO verður breytt í AALA-
PSO að skipulagi samtakanna
yerði gerbreytt, en það merkir
að dregið verður úr áhrifum
Kínverja og að næsti fundur
samtakanna verður ekki hald-
inn i Pgking eins og upphaf-
lega var ráðgert.
Rússar vita, að flestir kom-
múnistaflokkarnir í Rómönsku
Ameríku fylgja þeim að mál-
um og þeir hafa áður tryggt
sér það að flokkar þeir, sem
þeim eru hlynntir, verði í
meirihluta á ráðstefnunni. —
Þetta gerðu þeir m. a. þegar
Gromyko, utanríkisráðherra
Rússa, heimsótti Kúbu fyrir
skemmstu, og þegar bróðir
Castros, Raul Castro majór
heimsótti Moskva nýlega.
Samkvæmt dagskrá ráðstefn-
unnar verður fjallað um þrjú
höfuðvandamál, og er athygl-
isvert að í þessum málum þarf
ekki að taka afstöðu til hug-
takadeilu Rússa og Kínverja.
Þessi þrjú vandamál eru:
Eining þjóða Asíu, Afríku og
Rómönsku Ameríku, samræm-
ing hinnar sameiginlegu bar-
áttu fyrir frelsi og viðreisn og
efling efnahagslegra, félags-
legra og menningarlegra sam-
skipta þjóðanna.
Gera má ráð fyrir, að kín-
versku fulltrúarnir á ráðstefn-
unni hafi sig lítt í frammi á
fundunum en að þeir láti þeim
mun meir að sér kveða að
tjaldabaki.
★ BEN BARKA.
Eins manns verður saknað
á ráðstefnunni — þess manns
sem öðrum fremur liefur und-
irbúið ráðstefnuna. Þessi mað-
ur er aðalframkvæmdastjóri
AAPSO, E1 Mahidi Ben Barka.
Fyrir tveimur mánuðum var
þessum pólitíska útlaga frá
Marokkó rænt á götu úti í Par-
ís og hefur ckkert til hans
spurzt síðan. Sennilegast er
talið að hann hafi verið myrt-
ur fyrir löngu.
Ben Barka-málið ber eflaust
á góma á ráðstefnunni og verð-
ur að öllum líkindum notað til
harðra árása á Frakka, Marok-
kómenn og Bandaríkjamenn,
sérstaklega bandarísku leyni-
þjónustuna, CIA. Án þess að
geta Jagt fram hina minnstu
sönnun hafa ýmsir sakað CIA
Framhald á 10. síðu.
CASTRO
HINIR NORSKU ísasérfræðing
ar, dr. O. Devik og E. Kanavin,
yfirverkíræðingur er dvöldu hér
á landi á vegum „Special Fund”
Sameinuðu þjóðanna við ísarann
Sóknir á vatnasvæðum Þjórsár og
Hvítár luku 'rannsóknum sínum
í apríl mánuði s.l. í sumar leið
unnu þeir að samningu skýrslu
um rannsóknir þessar. Skýrslan
var send Sameinuðu þjóðunum í
^^Jitóbermánuði s.l.
Isarannsóknir þeirra dr. Devíks
og Kanavins voru liður í víðtæk
arj aðstoð við virkjunarrannsókn
ir á vatnasvæðum Hvítár og Þjórs
ár, sem Special Fund veitti ís
landi.
Sá er háttur Sameinuðu þjóð-
anna í tilvikum sem þessum að
yfirfara slíkar sérfræðilegar skýrsl
ur áður en þær eru formlega send
ar ríkisstjóm þess lands sem að
stoðarinnar verður njótandi. Enn
fremur að safna sþman öllum
skýrslum varðandi tiltekna aðstoð,
endurskoða þær eða yfirfara í einu
lagi og senda þær að því búnu til
ríkisstjórnar viðkomandi lands,
ásamt skýrslu um aðstoðina í
heild.
Aðstoð „Special Fund” við ís
land, þeirri sem drepið var á hér
að framan lýkur á miðju ári 1966.
Lokaskýrslur þeirra sérfræðinga
sem hér hafa starfað verða því
að líkindum ekki formlega afhent
ar ríkisstjórninni fyrr en siðari
hluta ársins 1966.
Astoð Special Fund er .á engan
hátt bundin við rannsóknir við
Búrfell heldur almennar virkjunar
rannsóknir á Hvítár- og Þjórsárs
svæðinu. Hitt er svo annað mál,
að niðurstöður slíkra rannsókna
geta auðvitað komið að notum við
Bdrfeflsvjrkjun eíns bg hverja
virkjun aðra á þessum tveimur
vatnasvæðum. Með tilliti tíl Búr
fellsvirkjunarinnar aflaði raforku
málastjórnin sér því, fyrir milli
göngu framkvæmdastjóra „Spée-
ial Fund1’’ aðstoðarinnar hér á
landi nokkurra eintaka af skýrslu
þeirra dr. Deviks og Kanavins,
eins og hún var send SÞ, til af
nota fyrir ríkisstjórh og ríkisstofn
anir^ Meðan Sameinuðu þjóðirn
ar hafa ekki lokið endurskoðun
hennar og sent hana formlega til
ríkisstjórnarinnar eru um afnot
af skýrslunni settir þessir skilmál
ar af hálfu SÞ.:
a) Að skýrslan verðf einungis
notuð af- ríkisstjórninni og. stofri
unum hennar, en ekki birt opin
beriega- • .
b) Að SÞ eru ekki endilegá
sammála þeim sjónarmiðum, sem
fram koma í skýrslunni.
Með tilliti til þessa hefur skýrsl-
an ekki verið birt og ekki er
mér kunnugt um að hún hafi
verið afhent neinum til birtingar.
Skýrslan, sem fjallar^um ísmýnd
un á Hvítár og Þjórsársvæðinu og
ráðstafanir gegn þeim er almenns
og fræðilegs eðlis. Engar kostn-
aðartölur eru settar fram,
hvernig Búrfellsvirkjunin skuli
úr garði gerð. í skýrslunni kemur
hins vegar fram, eins og allir
sammála um, að bezta ráðið gegn
ísmyndun á umræddum vatnasvæð
um sé að minnka kælifiot ánna
og byggja stór úppistöðulón. Þetta
er þáð sem vérður sfefnt að af
forráðamönnum. Búrfellsvirkjunar
innar, en af fjárhagslegum ástæð-
urn er ekki hægt að ráðast í heppi
legustu lausn frá fræðilegu sjón
armiði við fýrstu Virkjun í Þjórsá.
Eins og oft hefur verið skýrt frá
áður er því ætíunin að byggja
Framhald á 10. «úðu.
C-amanleikurinn Endasprettur eftir Peter Ustinov hefur nú vérið
sýndui'- sex sinnum í þjóðleikhúsinu við góða aðsókn. Sjöunda Sf n-
ingin er á föstudag. Aðalhlutverkið er leikið af hinum vinsæla leikt-ra
Þorsteini Ö. Stephensen og er myndin af honum í hlutverki sína;
OOOOOOOOÓOOÓOOOOOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Isrannsóknir S. Þ.
við Þjórsá og Hvítá
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 5. jan. 1966 J