Alþýðublaðið - 12.01.1966, Side 8

Alþýðublaðið - 12.01.1966, Side 8
 LIMBÓ-ROKK Bessi Bjarnason ogr Óskar Ragrnarsson í hlutverkum sínum. Þjóðleikhúsið: FERÐIN TIL LIMBÓ Barnaleikrit í 10 atriðum eftir Ingibjörgu Jónsdóttur Sönglög eftir Ingibjörgu Þorbergs Leikstjóri: Klemenz Jónsson Dansar: Fay Werner Hljómsveitarstjóri Carl Billich Leikmynd og búningar: Gunnar Bjarnason. Ung stúlka sem var með mér i leikhúsinu á sunnudag sagði mér að sér fyndist dálítið gaman að Ferðinni. til Limbó. Þó ekki jafngaman og Kardimommubæn- um sem mörgu æskufólki í Reykja vik finnst víst nokkurn veginn bezta leikrit í heimi. En eiginlega anzi gaman samt. Mest var gam- an þegar kóngurinn var lokaður inni í turninum og átti að fara að skjóta hann Ómar Ragnarsson með stóru nagiabyssunni þeirra á Limbó. Qg það var voða-gaman að veizlunni í lögreglustöðinni og brunanum á Limbó og borgarstjór- anum sem heyrði ekkert og mis- skildi aUt sem hann heyrði ekki. Eiginlega var mest gaman að öllu eftir hlé, en það var lfka anzi gam- an fyrir hlé, Sagði hún. Og áreið- anlega voru margir fleiri sama sinnis. Smekkurinn er sjálfsagt margbreytilegur, einn tekur þetta, annar þetta fram yfir hitt. En Iangflestir leikhúsgestir skemmtu sér auðsjáaníega mætavel við Ferð- ina til Limbó; það var óvenju gott ■og -glatt skap í Þjóðleikliúsinu á þessari frumsýningu. Eftir þessa umsögn kann að vera óþarfi að hafa mörg orð um hið nýja barnaleikrit Þjóðleikhúss ins. Ferðin til Limbó er fjörmik- ið, litskrúðugt verk, mætavel lag- að fyrir augu barnanna sem fylgd- ust með því af vakandi áhuga frá upphafi til enda. Klemenz Jónsson er orðinn reyndur leikstjóri barna- leikja, og sýningin ber öll vitni um hans högu hönd, greið og ljós og dálítið glettin. Tónlist Ingibjargar Þorbergs er snoturleg dægurtónlist, sum lögin líkleg til að festast á vörum um stund, og einfaldir dansar Fay Werners vel við hæfi dansfólksins sjálfs sem áhorfenda þeirra; leikmynd og bún ingar Gunnars Bjarnasonar litríkt og skemmtilegt verk. Að öllu sam- anlögðu er þetta ákjósanleg skemmti- og skrautsýning fyrir börnin; hún tekst eftir því sem til hennar er stofnað. En eins og endranær á barna- sýningum leikhúsanna saknar mað- ur þess að ekki skuli stofnað til neins meira en stytta börnunum eina dagstund, að ekki skuli koma upp höfundur sem kann að semja þeim markvert skáldskaparverk í leikhúsinu. Um þetta er víst fá- nýtt að kvarta; góðir rithöfundar fyrir börn eru sem kunnugt er enn fátiðari en handa fullorðnum. En þess er ekki að dyljast að Ferðin til Limbó er einkar efnisrýrt verk; saean sem sögð er í leiknum barna gaman í einfalda,'ta mynda- söeustíl. Þar á móti er það Ingi- biörgu Jónsdóttur til lofs og dýrð- ar að hún dregur enga dul á þetta og setur sig í engar lærimeistara- stellingar yfir börnunum. Hún seg- ir þeim sína einföldu sögu ein- földum orðum. Hins mætti óska sér að hún væri ofurlítið fimari að skrifa fyrir sviðið; mörg söng-, dans og ærslaatriðin í leiknum eru óþarflega utangátta við sögu þráðinn; þau standa sérstök án þess að koma framvindu hans við. Ingibjörg er raunar ekki ein um þetta; sami ljóður er á ráði revíu og músíkalahöfunda okkar. Og eins og þeir verður Ingibjörg sumstað- ar að láta persónur sínar setja á tölur til að skýra ganginn í leikn- um sérstaklega, endist ekki til að sýna atburðina sjálfa á sviðinu. En skylt er að geta þess að þessir annmarkar eru sízt meiri hér en í öðrum barnaleikjum og þrátt fyrir þá gengur leikurinn hratt og greiðlega fyrir sig. Nefna ber að vanda nokkra helztu leikendurna. Og þá er fyrst að geta Ómars Ragnarssonar og Margrétar Guðmundsdóttur sem eru mýslurnar tvær sem lenda ó- vörum til Limbó og greiða skjót- lega fram úr vandræðum heima- manna; þau leika bæði með fjöri og gáska og syngja ljómandi lag- lega, hún ekki síður en hann. Limbó er eins og allir mega vita smástirnj nokkurt inilli tungls og jarðar. ijau Ómar og Margrét voru raunar | leið til tunglsins í eld- flaug Beþsa Bjarnasonar; Bessi er löngu r^gi-óinn í ibarnaleikiunum og gerir sér líka mikinn mat úr hlutverki prófessorsins sem því miður kemur aðeins við fyrri hluta hans; þeir Lárus Ingólfss. aðstoð ar maður hans, eru skoplegastir í leiknum. A Limbó búa tómir út- blásnir boltar; þar vöktu athygli Agga prinsessa sæt og fín sem Sig- ríður Þorvaldsdóttir leikur. Nalli varðmaður Sverris Guðmundsson ar, og ekki sízt syndaselurinn Surt- ur fótbolti sem Jón Sigurbjörns- son leikur hlakkandi; Árni Tryggvason er slökkviliðsstjórinn á Limbó sem aldrei hefur í elds- voða komið, 500 ára gamall og eftir því góður með sig. Ljósameistara hússins er nokk- ur vandi á höndum með köflum í þessari sýningu en flest tókst sæmilega á frumsýningu. Eftirsjá er þó að því að ekki skuli lagt mei upp úr geimskotinu og sjálfri gein ferðinni; þar mætti víst koma vi mikilli ljósadýrð og leiktjálda. Þjóðleikhúsið var þéttsetið efl irvæntingarfullum gestum á sunn dag og urðu fáir fyrir vonbrig um; hér bauðst sú skemmtun ser búizt var við. Sjálfsagt verðu Þjóðleikhús barnanna vinsælt vetur að vanda þó einatt sé kur um það fullorðna. — OJ. FULBRIGHT-SIYRKIR AUG- Sviðsmynd úr Ferð inni til Limbó. LÝSTIR TIL UMSÓKNAR Menntastofnun Bandaríkjanna á íslandi (Fulbright stofnunin) aug- lýsir hér með eftir umsóknum frá kennurum til sex mánaða náms- dvalar í Bándaríkjunum á náms- árinu 1966—67. Styrkir þessir munu nægja fyr- ir ferðakostnaði til Washington. og heim aftur, nauðsynlegum ferða- Sundlaugar- innbrotiö upplýst , Reykjavík, OTJ. Búið er að hafa hendur í hári þeirra er brutust inn í Sundlaug Vesturbæjar á gamlársdag og stálu þaðan úrum og öðrum mun um. Tómas Einarsson hjá rann- sóknarlögreglunnj sagði Alþýð'u blaðinu að þar hefðu verið á ferð' inni fjórir drengir um fermingu, og hefur enginn þeirra komið við Frh. á 10. síðu. kostnaði innan Bandaríkjanní kennslugjöldum, bókagjöldum o nókknim dagpeningum. Styrkirnir verða veittir kennui um til náms í eftirtöldum greinun bnrnakennslu, kennslu í fran haldsskólum. verklegri kennsl (iðnfræðslu); kennslu í stærí fræði, náttúrufræði, eðlisfræði o skyldum greinum: ensku, skólaun sjón og skólastjórn, bandarískui þjóðfélagsfræðum og öðrum séi greinum. Umsækjendur verða að vera ú lenzkir ríkisborgarar, skólakeni arar með minnsta kosti þriggj ára reynslu, skólastjórar, starfí mcnn Menntamálaráðuneytisin eða fastir starfsmenn mennt; stofnana eða annarra stofnana, sei fara með fræðslumál. Umsækjen; ur þurfa að geta talað, lesið, ski*i áð og skiiið ensku. Umsóknareyðublöð eru afher á skrifstofu Fulbright stofnunai innar að Kirkjutorgi 6, 3. hæð ír 1—6. Umsóknarfrestur er til I febrúar næstkomandi. ■ ;g 12. janúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.