Alþýðublaðið - 12.01.1966, Side 11
t= Ritstióri Örn Eidsson
'i/’.-V''
•7:>V;:
'V ;.v,
■■■:■ ' ■
p'?;- . - ■-. v«í. h-fa
. :\ '* ' ■■ '■ ■':•;!
V 5%Víí í’fiv|l
“íní ‘ ^ ■'S
' -^PF ■
-
W-Ss
■
liP-'WT
' . ■
íslenzka landsliðið fer utan í fyrramálið
Þetta fer allt vel,
segir formaður HSl
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 12. janúar 1966
íslenzka lanclsliðið í handknatt-
leik karla jer utan í fyrrainálið
og leikur tvo landsleiki í förinni,
sem báðir eru liðir í undan-
keppni heimsmeistarakeppninnar.
Leikið verður við Pólland í Gdansk
sunnudaginn 13. jan. og við Dani
í Nýborg miðvilcudaginn 19. jan-
úar.
Gist verður í Kaupmannahöfn
aðfaranótt föstudags og komið
til Varsjár síðd. á föstudag. Frá
Varsjá verður farið í hraðlest,
vegalengdin er 300 km. og ferðin
tekur fjóra klukkutíma. íbúar í
m_____________________________
Gdansk eru um 260 þúsundir og
þar er glæsileg íþróttahöll, en ekki
er vitað, hve marga áhorfendur
hún tekur.
Farið verður frá Gdansk á mánu
dag og komið til Nyborg um kvöld-
ið. Leikurinn við Dani hefst kl. 8
eftir íslenzkum tlma og íþrótta-
höllin þar tekur 1500 manns. Allir
aðgöngumiðar munu uppseldir á
leikinn.
ÍSLENZKA LIDIÐ
íslenzka landsliðið hefur verið
valið og skipað sem hér segir:
Hjalti Einarsson, FH, Þorsteinn
Björnsson, Fram, Gunnlaugur
Hjálmarson, Fram, Birgir Björns-
son, FH, Hörður Kristinsson, Ár-
manni, Ragnar Jónsson, FH, Ágúst j
Ögmundsson, Val, Stefán Sand- |
holt, Val, Sigurður Einarsson,
Fram, sem kemur til móts við
liðið í Kaupmannahöfn, en hann
dvelur í Svíþjóð, eins og kunnugt |
er. íslenzka liðið hefur æft mjög
vel undanfarið undir stjórn Karls
Benediktssonar. Það sama er auð- (
vitað að segja um pólsku og dönsku
liðin, en við erum þess fullvissir,
að íslendingar standa sig vel, hver
sem úrslit leikjanna verða.
— ÞETTA FER ALLT VEL,
SEGIR ÁSBJÖRN
LIVERPOOL heldur áfram for-
ystunni í I. deild, sigraði Arsen-
al á Highbury sl. laugardag með
1 marki gegn engu, Yeats skall-
aði knöttinn í netið þremur mín-
útum fyrir leikslok. Þetta voru
ekki sanngjörn úrslit, Arsenal átti
meira l leiknum. Liverpool hefur
38 stig eftir 26 leiki, nsest er
Burnley með 36 stig eftir 25 leiki.
í þriðja sæti er Leeds með 31
stig, en hefur aðeins leikið 22
leiki. Meistarar fyrra árs, Man-
chester Utd. fjórðu með 30 stig
eftir 24 leiki.
Baráttan á botninum er mjög
hörð, Fulham er neðst með 14
stig eftir 25 leiki, Blackburn er
einnig með 14 stig, en hefur leikið
einum leik færra. Blackpool (23
leikir), Newcastle (24) og North-
ampton (25) hafa öll 17 stig.
Baráttan er mjög hörð í II.
deild. Huddersfield er efst með
34 stig (25 leikir), síðan koma
með 32 stig, Manchester City
(24), Wolves (26) og Coventry
25. Leyton virðist dæmt í III.
deild með 12 stig eftlr 24 leiki.
Næsta lið fyrir ofan er Charlton
með 17 stig eftir 23 leiki.
Hér eru úrslitin um helgina:
1. deild:
Arsenal—Liverpool 0-1
Burnley—Fulham 1-0
Chelsea—Tottenham 2-1
Everton—Aston Villa 2-0
Manch. Utd,—Sunderland 1-1
Newcastle—West-Ham. 2-1
Northampton—Blackburn 2-1
Nottm. For,—Sheff. Utd. 1-0
Sheff. Wed.—Leicester 1-2
Stoke City—Blackpool 4-1
W.B.A.—Lceds Utd. 1-2
2. delld:
Birmingham—Carlisle 2-1
Bolton—Bristol City 1-2
Charlton—Wolves 1-1
C. Palace—Bury 1-0
Huddersf.—Southampton 2-0
Ipswich—Coventry 1-0
Leyton Orient—Cardiff 1-1
Middlesbro-Derby 0-0
Plymouth—Rotherham 5-2
Portsmouth—Manch. City 2-2
Preston—Norwich 0-0
Myndin er tekin í leik Arse-
nal og Liverpool á Highbury
um helgina. Til vinstri sézt
Court Arsenal, en hinn leik-
maðurinn er hinn snjalli
Hunt, Liverpool.
Fararstjórn íslenzka liðsins skipa
Ásbjörn Sigurjónsson, formaður
HSÍ, Rúnar Bjarnason, varafor-
maður HSÍ, Sigurður Jónsson, for-
maður landsliðsnefndar og Karl
Benediktsson, þjálfari.
í stuttu viðtali við fréttamann
íþróttasíðunnar sagði Ásbjörn Sig-
urjónsson, að þetta myndi allt fara
vel. íslenzka liðið er í góðri þjálf-
un og samstillt mjög. Það er erf-
itt að segja nokkuð fyrirfram um
úrslit leikjanna, en telja verður
2 stig góða útkomu, en æskilegrai
væri auðvitað að þau yrðu 4, sagði
Ásbjörn.
Íþróttasíðan óskar landsliðinu
góðrar og árangurs ríkrar ferðar.
Kempan Gunnlaugur Hjálmarsson, sem leikið hefur flesta
Iandsleiki í handknattleik ásamt Ragnari Jónssyni. fyrirliffa, sézt
hér skora í laudsleiknum við Rússa.
Ulfar Ármannsson kjör-
inn formaður UMSK
43. sambandsþing Ungmenna-
sambands Kjalarnesþings, var
haldið að Hlégarði Mosfellssveit
sunnudaginn 12. desember sl.
Sambandsformaður Úlfar Ar- íj
mannsson setti þingið og bauðr
þingfulltrúa og gesti velkomna á '
þingið.
29 fulltrúar sóttu þingið, aufe
gesta sem voru Ármann Péturs |,
son gjaldkeri UMFÍ og Hermann
Framhald á 14. síffn.
>000000000000000
Dregið í dag -
hvaða lið fær
FH næst?
París, 11. janúár. (ntb-cifþ)'.
Liðin 8, sem leika í næsiu
umferð Evrópukeppninuar.í
handknattleik karla eru: —*
Redbergslid,- Svíþjóð, ‘-Hon-
ved, Bildapést,' Uiígv.'i WKS' ’j
Wroclaw, Póíl., Dukla Prág,
Tékk., FH, íslandi, DHFKÞV
Leipzig, Austur-Þýzlial.-.JRK, -J( |
Zagreb, Júg. — og Grgss-
hoppers Zúrich, Sviss."' '***“
Dregið verður um hmffa
lið leika sgman;. á , mið.vi}cife,;
dag, (þ. e. i dag).
-M
000000000000000-0