Alþýðublaðið - 06.02.1966, Side 1
Sunnudagur 6. fehrúar 19G6 — 48. árg. — 30. tbl. — VER8: 5 KR.
Manns saknað í
Vestm.eyjum
Vestmannaeyjum OÓ.
MIKIL leit var hafin í gær-
ínorgun að un?um manni í Vest
mannaeyjum. Sást síðast til hans
aöfararnótt föstudags.
Maðurinn sem leitað er að er
tufctugu og eins árs að aldri og
er fæddur og uppalinn í Vest-
rnannaeyjum. í gærmorgun aug
lýsti lögreglan í Vestmannaeyj-
um eftii’ sjálíboðaliðum til leitar
Þingfundir
eftir helgi
- FUNDIR Alþingis hefjast að
nýju á morgun, mánudaginn 7.
febrúar, en þinghlé hefur verið
frá því að jólaleyfi hófst um 20.
desember.
Meðal þeirra mála, sem búast
má við að fljótlega verði tekin til
meðferðar á þinginu eru frum-
vörpin um að leyfa hér bruggun
meðalsterks öls, og frumvarp um
takmörkuð leyfi til loðdýraræktar
liér á landi.
Bæði málin hafa áður verið
rædd á þingi og uin þau verið mikl-
ar deilur, og má búast við að svo
verði enn, þegar þau koma til um-
ræðu á ný. Málin eru bæði flutt
í neðri deild Aiþingis.
Loftárásir
aðeins 64 km
frá Hanoi
Saigon, 5. febrúar. (ntb-reut.).
Bandarískar flugvélar réðust í
dag á svæði um 64 km. frá Hanoi.
Ráðizt var á brýr og mikilvæga
vegi. Bandarískar flugvélar vörp-
uðu auk þess flugritum til jarðar
á Hanoi-svæðinu.
í Suður-Vietnam halda þrjár
meiriháttar aðgerðir gegn Viet-
cong afram. Rúmlega 1000 skæru-
liðar hafa verið felldir í þessum
átökum.
Að'alfundur Alþýð'uflokks
félags Kópavogs verður hald
inn í Alþýðuhúsinu Auff-
brekku 50, sunnudaginn 6.
febrúar kl. 4.30 s.d,
Dagskrá:
1. Venjuleg fundarstörf
2. Emil Jónsson utanríkis-
ráðherra ræðir sjórnmála
viðhorfið.
innar og hófu þá þegar yfir
fimmtíu manns skipulega leit að
manninum og er henni stjórnað
af Iögreglunni. Þegar blaðið
hafði síðast spurnir af leitinni
síðdegis í gær, hafði hún engan
árangur borið.
Mikið gæftaleysi hefur verið
hjá Vestmannaeyjabátum undan
farið og hafa þeir ekki getað ró
ið af þessum sökum í nær tvær
vikur. Þegar óveðrið var sem
harðast uppi á landi fyrir og um
síðustu helgi var sæmilegt veður
í Eyjum en óveður var á miðun
«m og gaf því ekki á sjó Sjó
menn hér eru orðnir leiðir á lang
varandi landlegum og ákafir í að
komast á sjó strax og gefur.
Miðar að
samkomulagi
í fyrrakvöld var haldinn sátta-
fundur í deilu Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur og atvinnurek-
enda. Fundurinn stóð frá kl. hálf
níu til hálf tvö um nóttina. Eitt-1
hvað miðaði í samkomulagsátt, þó
ekki tækjust samningar.
RETAR A
RUSSUM
FRÁ LUNU
Jodrell Bank, Bretlandi.
5. febrúar. (ntb-reuter-tass).
Vísindamenn við stjörnuathugun
arstöðina í Jodrell Bank í Bret-
landi hafa tekið við nýjum Ijós-
myndum frá sovézku tunglflaug-
inni ,,Luna-9". Að sögn Tass frétta
stofunnar áttu síðustu upplýsing-
arnar frá fuglflauginni að berast
í kvöld.
Tass skýrði jafnframt nákvæm-
lega frá lendingarstað Lúnu. Stað-
urinn er sjö gráður/átta mínútur
norðlægrar lengdar oi 64 gráður
22 mínútur vestlægraf breiddar.
Tunglflaugin hefur þvíilent um 100
km. fyrir austan stórán gíg, sem
kallast Cavalerious.
Jodrell Bank athugunarstöðin
vakti skyndilega heimsathygli í
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Fór eitthvað úr skorðum
MANIHESTER, 5. febrúar (NTB-Reuter). — Yfirmað-
ur Jodrell Bank stjörnuathugunarstöð'varinnar í Bretlandi,
Sir Bemard Lovell, sagði í dag, a'ð eittlivað virtist hafa
fariff aflaga í sovézku tunglflauginni.
Sir Beinard sagði um þá frétt Tass-fréttastofunnar,
að síðustu visindaupplýsingarnar frá „Lúnu“ mundu ber-
ast kl. 15 aff íslenzkum tíma í dag, aff sentnilega hefffu raf-
hlöður flaugarinnar bilað. Hugsanleigt væri að' sólarsell-
urnar hefðu laskazt í lcndingu.
gærkvöldi er það birti f jórar mynd
ir frá Lúnu 9., en að sögn yfir-
manns hennar, Sir Bernard Lov-
ells, er athyglisverðast, að Rússar
hafa enn ekki séð ljósmyndirnar
frá tunglflauginni. Ein myndin,
sem birtist á forsíðum flestra
morgunblaða í Bretlandi í dag, sýn-
ir óslétt landslag og eitthvað sem
virðist vera hluti af eldflaug. —
Framhald á 15. síffu.
Níundð
sinfónían
Sinfóníuhljómsvelí íslands
og Fílharmoníu-kórir n æfa
þessa dagana níundu sin-
fóníu Beethovens af krafti.
Þetta mikla verk verður
flutt í næstu viku og er ekkr
a'ð' efa, að' aðsókn verður
eins og húsrúm leyfir Ljós
myndari Alþýðublaðsins
leit inn á æfingu í Háskóla
bíói í gær. Efri myndin er
af stjómandanum, Róbert
0 Abraham Ottósyni, en sú
Y neðri sýnir Iiluta kórsins-
X (Mynd: JV).
>000000000000000
Kona slegin í rot
Reykjavík. — ÓTJ.
KONA var slegin í rot fyrir
framan Klúbbinn í fyrrakvöld. —
Héðinn Skúlason hjá rannsóknar-
lögreglunni sagði Alþýðublaðinu,
að málsatvik hefðu verið þau, að
hópur fólks hefði verið á heim-
leið um tvöleytið þá um nóttina.
Þar var einnig á ferðinni maður
mjög drukkinn, og réðist hann aft
an að einum herranum úr hópnum
og barði hann.
Konur voru í hópnum, og eins
og vænta mátti, reyndi ein þetrra
að stilla til friðar. Árásarmaðurimi
varð hið versta við þeirri afsklpta
semi og barði konuna miklu höggi
á höfuðið. Tókst þó fljótlega að
vekja hana til meðvitundar, og
hún mun ekki liafa hlotið alvarleg
Framhald á 15. síðu.