Alþýðublaðið - 17.02.1966, Síða 8

Alþýðublaðið - 17.02.1966, Síða 8
I I í I [ Alparós (Asalea Indica). NÆSTA sunnudag heilsar góa og þorri kveður. Vafalaust verður þá mikil blómasala hjá öllum gróðrarstöðvum og blóma- sölum þar sem margir eigin- menn hafa þann sið að gefa kon um sínum blóm á konudaginn, fyrsta góudag. Blóm eru líka alltaf til augnayndis og prýði. ,,Hvaða afskorin blóm eru til hjá ykkur á þessum tíma árs“, spurðum við Jón R. Björgvins- son, fram'kvæmdastjóra Alaska, þegar við litum þar inn nýlega. — Á þessum árstíma erum við með laukblómin, páskaliljur, hvítasunnuliljur, goðaliljur, túli pana og amaryllis. — Selst ekki mikið af blóm- um á konudaginn? — Geysilega mikið. Ég held, að allar blómabúðir séu opnar í tilefni þessa dags. — Þá verður n'áttúrlega mik il ös í blómaverzlunum á sunnu daginn? — Já_ vafalaust, við höfum t.d. bílastaeði, sem tekur 50 híla og það hefur ekki nægt, þegar ös- in hefur verið hvað mest fyrir tyllidaga. Annars fer blómasala hér á: landi yfirleitt vaxandi með hverju ári. Við kaupum öll afskorin blóm og pottblóm frá Hveragerði og Mosfellssveit og daglega koma bílar frá framleið endunum með ný blóm og stund um oft á dag, þegar mikil sala er. Við raektum hér sjálfir að eins garðblóm og grænmeti. Garð blómin eru flest fjölær. — Er mikil sala í pottblóm- um. — Já, það er alltaf mikil sala í þeim. Núna fyrir konudag- inn fáum við pottblóm, sem ný- far.ið er að rækta hér. Það er Asalea Indica eða Alparós. Hún blómstrar í 4—7 vikur og blóm in eru í ýmsum litbrigðum frá hárauðu niður í hvítt. Hún þarf lítillega vökvun á hverjum degi og alhliða blómaáburð einu sinni í viku. Yfir sumarið má hafa hana úti í garði á skjólgóðum stað. Asalean er upprunnin í Japan, Indlandi og Kína og er nú ræktuð yfirleitt alls stað- ar í heiminum. — Hér er annað fallegt pott blóm. Hvað heitir það? — Þetta blóm heitir Aphea- landra eða Silfurfjöður. Hún blómstrar stórum gulum blómum, sem standa mjög lengi. — Mörg pottblóm eru vand meðfarin. Geturðu sagt okkur, hvað helzt ber að varast í með 'höndlun pottblóma í heimahús um? — Blóm mega ekki standa við ofn. Yfirleitt er þessi þurri mið stöðvarfiiti, sem hér er í hús- um ekki góður fyrir blómin, og yfirleitt brífast blóm betur v timburfiúsum en steinihúsum. — En með afskorin blóm, gaman væri að fá góð ráð um meðböndlun á þeim. — Alltaf á að klippa af stilkn um, áður en afskorin blóm eru sett í blómavasá. Gott er að klippa á ská. Þegar blómin hafa verið afskorin, kemst örlítili loft dropi upp í legginn, og sit- ur þar. Hann hindrar vainið í að komast alveg upp i blóm- krónuna. Þess vegna er nauð synlegt að klippa alltaf upp í stilkinn. Þá er þessi ioicdrop* um leið klipptur burtu. Og helzt á að skera nýtt sár á stiikinn á hverjum degi þegar skipt er um vatn. A kvöldin á að vefja utan um blómin (þau eru að s.iálfsögðu í vatni) og geyma þau á vel köldum stað Sólin má ekki skína beint á blómin. þar sem þau eru yfir daginn, þá verður útgufunin of m kil og blómin skrælna. — Er gott að setja blóm í heitt Jón R. Björgvinsson. Gúmmíplöntur og fleiri falleg stofublói 3 17. febrúar 1966 - ALÞÝöuBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.