Alþýðublaðið - 17.02.1966, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 17.02.1966, Blaðsíða 13
Sími 50249 Becket Heimsfræg amerísk stórmynd í litum. Kichard Burton Peter O'Toole íslenzkur texti. Sýnd ki. 9. rl C-íigrade Óvenju spennandi ný lit- mynd með Cary Grant og Audrey Hepburn íslenzkur texti. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5 og 9. Hækkað verð. & STJÖRNURfn SÍMI 189 36 Á ViBligötum (Walk on the wild side) Frábær ný amerísk stórmynd. Frá þeirri hlið mannlifsin-, sem ekki ber daglega fyrir sjónir. Með úr- valsleikurunum Laurence Harvey. Capucine, Jan'e Fonda, Anna Baxt er, og Barbara Stanwyck sem eig andi gleðihússins. Sýnd fcl. 9. Bönnuð börnum. MAÐTJRINN MEÐ ANDIATIN TVÖ. (The tow faees af Dr. Jekyll) Hörkuspennandi og viðburðarík litkvikmynd, í Cinemascope. Sýnd ki. 5 og 7. Bönnuð innan 14 ára. eina viðutan, henni hafð? kom- ið nýtt til hugar um Hugo. Hann líktist hræfugli núna — ernir eru hræfuglar. — Ég þoli ekki alla þessa forfeðradýrk un og Riohard hefur verið sjúk ur af henni allt sitt líf. — Takik, sagði Jem. — Fyrir gefðu en ég var víst að hugsa um ákveðið mál og hlustaði varla á þig. Jú — ég borða heima hjá Pennycuik á morg- un. Di-di kveikti lá giæsilegum gullkveikjara og rétti hann til Jem. Hún glotti dkyndilega. — Þið Hugo eruð fl'ott í kvöld, sagði hún. — Silki og satín og við Tony erum bítnikar. Jem glotti á móti. Tvídföt Tonys voru varla bítnikaleg og níðþröngar flauelsbuxur Di-di og rauð blússan ekki heldur. — Samt ekki eins flott og gullsígarettuveski og kvcikjari, sagði hún ánægjulega. Di-di rétti úr sér. — Ef þú líefðir verið ógeðslega fátæk alla ævi, aumingja litla dóttur dóttir hans Pinchons læknis! — en hvað það var mikil synd að mamma hennar skyldi giftast þessum hryllilega manni sem stakk hana af þegar hún varð veifc og lét hana deyja eina. Auðvitað' varð aum- ingja afinn að koma og bjarga þarnínu! — og svo hefði eld- gömul frænka þessa ógeðslega föður þíns dáið og arfleitt þig að hrúgu þá held ég að þú hefð ir eytt og eytt líka. Hugo var að koma að borð- inu. — Já, sjálfsagt, sagði Jem og brosti. Hu«o var Undrandj' á svipinn. Jem gerði ráð fyrir að það væri vegna bess að hún og Di-dl Voru eklki lcomnar í hár saman. Hann hlaut að hafa vitað allan tímann að Di-di myndi koma á veitingahúsið, ef til vill hafði þptta verið fyrirtfram ákveðið. Þegar Huigo kom atftur setti Di-di á ný upp svip dáleiðandi ans og andvarpaði. Henni fannst Hngo ekki klæða vel h'lut verk Casanova og þegar Tony kom afbir fannst henni það enn fráleitara. Tony var ungur og hafði sjálfstraust og hann eyðilagði fyrirfram allar til- raunir Hugos til að sýnast heims maðurinn. Hugo leit á dreng- mn ?neð andúð sem Di-di skemmti sér yfir. Jem leit vin gjarnlega á Tony og hún fór að tala við hann um sjúkrahús og lyf meðan Hugo sökkti sér meira og meira niður í móllýzk Ur Di-di (ef einhver önnur hefði talað svona hefði hann feallað það leiðindarugl) og augnahái’um hennar sem beygð- ust upp á við eins og dökkt silki og boðsins sem skein úr dökkum augum hennar. Ég verð 29 að tala við Tony í kvöld, sagði Jem við sjálfa sig og til þess að gera það varð hún að hætta að hugsa um allt það sem angr aði bana og reyna að vera sfeemmtileg. Þau fóru inn í veitingasalinn. Maturinn var góður og eftir smá stund komu saxótfónn, píanó og selló. og tóku við af gíturunum og Hugo og Di-di dönsuðu á dansgólfinu. Jem tók eftir því að Hugo d'ansaði ágætlega og það var hlutur sem hann hafði ekfei gert áður en hann fór til Vinnery. Tony játaði fyrirhenni að Riolvard Pennycuik f læ'knir hefði beðið hann um að fara út með Di-di því hann hefði ekki komizt frá sjúklingum sín um og fannst henni Di-di ekki tfalleg? En hann var sfcíthrædd- ur við hana. Hún var svo mikil heimsmanneskja og þegar hann var með henni fannst honum lvann svo ungur og óreyndur, þó hann væri eiginlega eldri en hún, Annars var hann eigirvlega trúiofaður yndislegri stýlku og ’hann langaði eiginlega ekkert til að fara út með annarri. Það héldu allir að þeir, sem færu út með Di-di væru yfir sig ást- fangnir af henni og hann vildi ekki að Eileen, stúlkan hans, heyrði álíka vitleysu. — Ég veit að hún myndi ekki trúa því, sagði Jem huggandi. Ég mundi ekki gera það, ef ég væri sama sem trúlofuð þér. Ég held að það sé ekkert auðvelt að hrífa þig. Di-di kom aftur að borðinu á- samt Hugo og leit vanþóknunar- augum á þau. Hún var ekki vön því, að ungir menn tæki eftir öðrum stúlkum, þegar hún var viðstödd. Tony hefði átt að sitja og stara á hana aðdáunaraugum meðan hún dansaði við Hugo, en ekki sitja og tala við Jem, sem var nú annars ljómandi lag- leg. — — Hún setti stút á munninn og sagði barnalega: — Þið virðist hafa nóg að tala saman um. Heyrðu annars, Jem. Þetta er óvenjulegt nafn á stúlku. Er það gælunafn? — Stytting á Jemina, sagði Jem glaðlega. Eins og stúlkan í vísunni, sem ekki þoldi þegar var kallað: Jem-mimia, miia, mima-------komdu þér niður. Tony leit aðdáunaraugum á hana. — En skemmtilegt, sagði hann. — Öll svona nöfn eru að komast aftur í tízku. Emma og Louise, Henrietta og Sophy — ég kann vel við þau. — Eins og forfeðurnir, sagði Di-di ókurteislega. — Elsku Hugo, við skulum dansa aftur. Hugo fór með hana út á dans- gólfið og Tony leit hneykslis- augum á þau. — Hún — veiztu það — að ég held, að hún sé að daðra við hann, sagði hann. — Vafalaust, sagði Jem alvar- lega, — en ég myndi ekki hugsa um það. Hún var orðin dauðþreytt, af því að það var erfitt að reyna að vera skemmtileg, þegar hún hafði svo miklar áhyggjur — og henni létti, þegar Hugo sagði eftir tvær syrpur, að nú yrðu þau að fara aftur til Vinnery. Di-di leit út undan sér á hann. Þar sem Jem ætlar að borða með kærastanum mínum og pabba hans á morgun, sagði hún, — finnst mér að við ættum að fara út saman. — Það getum við vel, ef eng- inn verður veikur, sagði hann. Má ég hringja til þín á morgun? Það hlýtur að vera í lagi, því Pennvcuik getur tekið við sjúkra vitjunum, ef hann verður heima hvort eð er. — Gerðu það, Di-di brosti leti- lega til hans. — Ég skal vera blátt áfram dásamleg. Hugo og Jem fóru út í kuld- ann. Það var komin fjara og ölduhljóðið var fjarlægt. Tungl- ið var lágt á lofti. Hugo opn- aði bíldyrnar og hleypti Jem inn og skellti. Hann veifaði úr glugganum til Di-di, sem stóð í dyragættinni. — Því í ósköpunum þurftirðu að gefa þessum unga hvolpi undir fótinn? sagði Hugo reiði- lega um leið og hann kveikti á startaranum. — Enga vitleysu, Hugo, sagði Jem snöggt, eins og hún hafði verið vön, þegar hann var ó- kurteis og geðvondur heima hjá föður hennar — og henni kom það á óvart, að hann skyldi bregðast eins við og hann hafði gert þá. — Fyrirgefðu, sagði hann stuttur í spuna. — Þú veizt hvernig mér líður, Jem. Það fer allt í taugarnar á mér. Ég vildi Hr frísk heilbrigö húö ALÞÝÐUBLADIÐ - 17. febrúar 1966 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.