Alþýðublaðið - 20.03.1966, Page 10
Ismyndun
Framhald af 1. sfðn
er stefnt með Búrfellsvirkjun og
þeim ráðstöfunum, sem ráðu-
nautar Landsvirkjunar leggja til
að gerðar verði til að mæta ís-
vandamálunum.
Niðurstöður ráðunautanna eru í
höfuðdráttum þessar:
1. Framkvæmdir þær, sem fyrir-
hugaðar eru þegar á fyrsta virkj-
unarstigi til að minnka kæliflöt
Þjórsár ofan við Búrfell, munu
draga úr ísmagninu, sem berst að
virkjunjnni. Eftir því, sem virkj-
anir og miðlunarmannvirki í sam-
bandi við þær verða byggðar ofar
i ánni, mun ísmagnið minnka jafn
framt því að vetrarrennslið eykst.
2. Miðað við þær aðstæður, sem
eru í ánni í dag þ. e. a. s. án
miðlunar eða aðgerðar til að
draga úr ísmagninu, þá sýna rann
sóknirnar í Þrándheimi að hægt
er að fleyta öllum ís, sem berst
niðitr ána yfir stíflur og áfram
niður í Þjórsá.
3. Lítið rennsli í Þjórsá sam-
fara miklu ísmagni og þörf á vatni
til útskolunar á ísnum leiðir ó-
hjákvæmilega af sér að draga
verSur steku sinnum úr afköstum
Búrfellsvirkjunar.
Útreikningar byggðir á nýjustu
• líkingum dr. Devike um ísmynd-
anir í íslenzkum ám sýna, að orku
skortur 105MW Búrfellsvirkjun-
ar með orkusölu ,til álbræðslu og
án miðlunar eða aðgerða ofar í
ánni til að mínnka ísmagnið yrði
frá 9 til 15 GWh á ári fyrstu þrjú
starfsár virkjunarinnar eða rúm-
lega 1% af áætlaðri heildarorku-
sölu Landsvirkjunar. Ástæða er
til að ætla að þessir reikningar
séu um of varkárir og orktiskort-
urinn verði mun minni. Eftir að
virkjunin hefur verið stækkuð og
miðlun fcngin úr Þórisvatni mun
orkuskortur við virkjunina einnig
verða lftill.
4. Hægt er að tryggja öllum
notendum ótruflaða orku þegar
á fyrsta virkjunarstigi þ. e. a. s.
frá 105 MW virkjun án miðlunar
og með orkusölu til álbræðslu, þó
ekki sé reiknað með neinum að-
gerðum ofar í ánni til að minnka
kæliflötinn og þó ekki sé reiknað
með meira varaafli en gert hefur
verið hingað til, þ. e. a. s. þeim
35 MW, sem fyrir hendi verða í
haust að viðbættum 20 MW í gas-
túrbinustöð. Þetta á við jafnvel
þó engu vatni væri veitt úr Þjórsá
til virkjunarinnar í þrjá daga sam-
fleytt. Þegar virkjunin verður
stækkuð — og miðlun gerð
í Þórisvatni, er að sjálfsögðu
hægt að tryggja nægilegt rennsli
í Þjórsá bæði til orkuframleiðslu
og útskolunar á ís, jafnvel þó
virkjunin sé stækkuð upp í 210
MW. Til öryggis er þó engu að
síður reiknað með einni 20 MW
gastúrbínustöð til viðbótar, en
þessar st-öðvar gegna einnig því
hlutverki að vera til vara við bil-
anir á línum, vélum og tækjum.
kjörs og vann sigur. Hún var end-
urkjörin árið 1932 — og James
Ferguson var áfram ríkisstjóri
í Texas að öllu nema nafninu.
íþróttir
Framhald af 11. siðu-
57,41 Fejer Ungverjaland.
57,12 Lyachov Sovét.
57,08 Repo Finnland.
57,00 Sarr Bretland.
56,80 Yaras Sovét.
56,60 Hangsvaara Finnlandi.
Flóttamenn
Framh. af bls. 1.
hermanna, sem bækistöð
höfffu í grenndinni, á flótt
anum. Þá upphófust hörff
vopnaviffskipti en vegna
glundroffans í liffi anstur-
þýzku varffanna eftir vopna
viffskiptin tókst öffrum flótta
manninum aff fela sig bak
viff tré og runna og komast
inn á bandarískt hernáms-
svæffi. Flóttamennirnir störf
uffu báffir í austur-þýzku
landamæra lögreglunni og
sá sem komst undan var 22
ára.
Opna
Framhald úr opnu.
Þegar Ferguson nokkur bafði ver-
ið kjörinn ríkisstjóri í Texas árið
1916 gerðist nokkru síðar sá at-
burður, sem varð þess valdandi, að
hann varð að segja af sér og jafn
framt var hann útilokaður frá
frekari þátttöku í stjórnmálum.
Árði 1924 bauð svo eiginkona
hans sig fram til ríkisstjórnar-
500 mílur
Framhald af 2. síffu
venjulegu slóðir áður en veiðin
hefst. Þá vilja þeir að viss svæði
í Breiðafirði verði alfriðuð fyrir
netum. Óttast þeir nú mjög að
Breiðafjarðarins bíði sömu örlög
og ananrra veiðisvæða hér við
land þar sem ekki er á vísan að
róa lengur.
Þá eru menn uggandi vegna hinna
ar miklu loðnuuppripa hjá flotan
veiði geti baft áhrif á göngur góð
fiska, isem lifa mikið af þeim fiski.
Dagblöðin
Framhald «f 2. síffú.
ríkisvaldið mundi láta í té yrði
fyrst og fremst að beinast að litlu
blöðunum. Bent var á að stjórn-
in þyrfti aff auka auglýsingar að
mun, en jafnframt á þann vanda,
sem það ef til vill mundi skapa
litlu blöðunum er gott efni yrði
að víkja fyrir auglýsingum í rík-
um mæli.
Lögð var áherzla á það á þess-
um fundi, að blöðin yrðu að opna
dálka sína mönnum með ólíkar
pólitískar skoðanir, og að stór-
auka yrði samvinnu blaða bæði á
sviði tækni og dreifingar, m. a.
til að vinna gegn blaðaeinokun.
50 íslenzkir skemmtikraítar A
í Austurbæjarbíó sunnudaginn 20. marz kl.
7 (í dag).
Aðgöngumiðar í Austurbæjarbíó frá kl. 1.
Úr umsögnum blaðanna: Ánægjuleg kvöldstund.
... skemmtileg tilbreyting í hversdagslífinu.
. kærkomið tækifæri til upplyftingar.
. allir fóru ánægðir heim ..“ (Morgunblaðið).
. eitthvað fyrir alla ..“ (Þjóðviijinn)
. vart mun hafa sést jafn fjölbreytt skemmtiefn fiyrr ..
. vinsælustu skemmtikraftar sem upp á er boðið í
Reykjavík í dag ..“ (Vísir).
Skrifstofa skemmtikrafta
Pétur Pétursson.
átvarpið
Sunnudagrur 20. mai-z
OOOOOOOOOOOOOOOOOOObOÓÓO OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO1
15.30 í kaffitímanum.
16.30 Enduitekið efni
a. Haraldur Ólafsson fil. kand. flytur
erindi um frumibyggja Eskimóa á Græn-
land (Áður útv. 17. ágúst s.l.)
’b. Grænlenzki útvarpskórinn syngur nokkur
lög. (Áður útv. 27. jan, s,l.),
c. Ingimar Óskarsson spjallar um þorskinn,
17.30 Barnatími: Helga og Hulda Valtýsdætur.
18.30 Veðurfregnir.
18.30 íslenzk sönglög: Magnús Jónsson syngur
18.55 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Jón biskup Vídalín — þriggja alda minn
ing.
Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson prófassor
flytur fyrra erindi sitt:
Ævi og athafnir.
20.30 Úr tónleikasal: Quatuor Instrumental
de Paris
að samleik í hátíðarsal Háskólans 28. f.h.
21.00 Á góðri stund
Hlustendur í útvarpssal með Svavari
Gests.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög.
23.30 Dagskrárlok.
8.30 Létt morgunlög:
8)55 Fréttir — Útdráttur úr forustugreinum
dagblaðanna.
9.10 Veðurfregnir.
9.25 Morgunhugleiðing og morguntónleikar
12.15 Hódegisútvarp.
13.15 Jarðskjálftar og byggingarmannvirki
Júlíus Sólnes verkfræðingur flytur há-
degiserindi.
14.00 Vígsla Garðakirkju á Álftanesi
fBisíkup íslandg, heitra Sijgurbjörn Ein-
arsson, vígir kirkjuna. Séra Garðar Þor-
steinsson prófastur prédikar og þjónar fyr
ir altari með biskupi.
Vígsluvoitar auk prófasts: Séra Bami Sig
urðsson á Mosfelli, séra Björn Jónsson í
Keflavík og séra Kristinn Stefánsson frí-
kirkjuprestur í Hafnarfirði.
Kirkjukór Garðasóknar syngur.
Organleikari: Guðmundur Nordahl.
Ofsóttur
Framhald úr opnu.
AUÐVELDARA OG ÓDÝRARA
í hinni athyglisverðu bók sinni
skýrir Nader frá því, hvers vegna
og hvernig bílar valda fjörtjóni.
Hann hefur Ieitazt við að gagnrýna
hina hefðbundnu baráttu fyrir
umferðaröryggi, sem — með bless-
un framleiðenda — leggur höfuð-
áherzlu á að breyta háttum öku-
manna, þó að miklu auðveldara
og ódýrara væri að breyta bílun-
um.
Það vekur nokkra von um ár-
angur, að hinn ungi lögfræðingur
hefur samúð Johnsons forseta. Sé
það á valdi Johnsons, þá mun De-
troit innan skamms verða neytt
til þess að framkvæma þær ör-
yggisreglur, sem nauðsynlegar
eru taldar. En andstæðingar
Johnsons, Kennedys og Naders
hafa ótrúlega mikil ítök vestan
hafs.
trássi viff fyrirskipanir indónes-
iskra yfirvalda. í hópi Kínverjanna
voru sex fuiltrúar frá sendiráffi
Peking--«tjórnarinnar. Einn Kín-
verjanna Starfsmaffur fréttastof!
unnar Nýja Kína, var handtekinn.
Skömmu áður en flugvélin átti
að leggja af stað til Pnompenh
í Kambódíu viar stprfsmönnum
flugvallarins skýrt frá því að Kín
verjarnir. reyndu að komast úr
landi með ólöglegum hætti. Kín
verjarnir neituðu að snúa aftur
til farþegabyggingarinnar og sett
ust undir flugvélina. Þá upphóf
ust heiftarleg áflog, en flugvélin
hóf sig á loft að lokum án Kín
verjanna þótt sendiherra Peking
stjórnarinnar mætti í eigin per
sónu á flugvellinum.
Kínverzkir dipJó-
matar í áflogum á
Djakarta-flugvelli
Djakarta 18. marz (NTB-AFP.)
Indónesískir flugvallarstarfs-
menn lentu í heiftarlegum áflog
um í dag viff nokkra kínverska
borgara er reyndu aff laumast frá
Djakarta í tékkneskri flugvél í
Flugvellinum
í Tokyo lokað
TOKYO. 19.- marz. (ntb-reuter).
ALLAR lendingar á Tokyo-flug-
velli voru bannaðar í eina og
hálfa klukkustund í morgun vegna
bilunar á ratsjárkerfi flugvallar-
ins. Tvær flugvélar, sem áttu að
lenda í Tokyo, lentu á flugvöllum
í grenndinni.
Aðeins ein flugbraut flugvallar
ins er opin dag og nótt um þessar
nupidir. Hin flugbrautin er lokuð
fyrir næturumferð þar sem raf-
kerfi flugvallarins eyðilagðist er
kanadisk flugvél hrapaði fyrir 2
vikum og 64 manns fórust.
oooo o oooooooooooooooo ooc X><xxxxxxxxxxxxxxxxx><xxx>
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa
Ásgeirs Jónssonar
rennismiffs.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði Borg-
arspítalans.
Jón Ásgeirsson, Gunnþórunn Markúsdóttir,
Steinunn Ásgeirsdóttir, Þórhallur Leósson,
Einar Ásgcirsson, Karlotta Karlsdóttir
barnabörn og • bamabarnabörn.
19 2a marz 1966 - ALÞVBUBLAÐID