Alþýðublaðið - 23.04.1966, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.04.1966, Blaðsíða 1
Laugardagur 23. aprfl 1966 - 46. árg. - 90. tbl. - VERÐ 5 KR. Sumri heilsað Sumri var fagnað með há- tíðahöldum, þótt veðrið væri heldur óhagstætt. Mikill mannfjöldi safnaðist saman í Miðbænum, þegar skemmti- atriði voru flutt þar. Á mynd inni skemmtir Jón Gunn- laugsson á nýstárlegu ,loft- sviði.” — Mynd: JV. Svisslendingar gangct að skilyrði Alþýðuflokksirts: ÞAÐ VAR opinberlega staðfest á Alþingi í gær, að íslenzka álbræðslan h.f. í Straumsvík muni ekki ganga í samtök íslenzkra atvinnurekenda. Hefur þar með verið gengið að skilyrði Alþýðuflokksins varðandi áhnálið. Þotukaup Fl ákveðin: Hlutaféð þrefaldað Jóhann Hafstein iðnaðarmála- ráðherra' tók til máls við 3. um ræðu um álsamningana í neðri deild í gær. Skýrði hann meðal annars svo frá, að Alþýðuflokkur Einn lézt og tvennt stór- slasaðist Reykjc.vík. — ÓTJ. UNGUR piltur beið bana í bil- slysi í Vestmannaeyjum í fyrrí- nótt, oci jarþetjar sem með honum voru, slösuðust alvarlcga. Ekki er gerla vitað hvernig slysiö vildi til.Það skeði A Heiðaveginum er Volkswagen bifrcið, sem í voru þrír piltar ocj tvær stúlkur ók aftan undir kyrrstæða vörubif- reið. Ökumaðurinn beið þegar bana við árcksturinn og önnur stúlkan og annar hinna piltanna, slösuðust svo alvarlega, að þau voru flutt til Reykjavíkur með sjúkraflugvél í gærmorgun. — A8 beiðni lögreglunnar í Vestmanna- eyjum verða nöfn þeirra ekki birt að sinni. inn liefði skrifað sér bréf 15. apríl síðastliðinn, þar sem skýrt var formlega frá skilyrði þvi, sem miðstjórn flokksins setti fyrir stuðningi við álfrumvarpið. Ósk- aði Alþýðuflokkurinn þess, að fengin yrði staðfesting viðkom- andi aðila á þvi, að þeir gengju að þessu skllyrði. Iðnaðarmálaráðherra skrifaði Swiss Aluminium Ltd. í Ziirich í Sviss samdægurs og sendi þeim af rit af hréfi Alþýðuflokksins Nú hefur ráðherra borizt bréf frá Swiss Aluminium Ltd, dag- sett 19. apríl, þar sem grengið er að skilyrðinu. í bréfinu segir, að með tilvísun til bréfs ráð- herra staðfestist það, að tslenzka álbræðslufélagið muni ekki ger- ast meðlimur vinnuveitendasam- taka á íslandi. Jóhann Hafstein rakti í ræðu sinni ýms atriði, sem deilt hef ur verið um varðandi álsamning- ana og hrakti ýmsar fullyrðingar andstæðinga. Taldi hann meðal annars upp fjölmörg dæmi um notkun gerðardóma í skiptum milli ríkis annars vegar og þegna ríkis eða einkaaðila hins vegar. Fer notkun slíkra gerðardóma ört vaxandi um allan heim, og for- dæmi varðandi þá eru mörg í Ev rópu og Ameríku. Fundum var haldið áfram í gær kvöldi og var ætlunin að ljúka Framhalð á 14. síðu. Reykjavik. —• GbG. Eins og skýrt var frá í blaðinu á fimmtudaginn, hefur verið lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um heimild fyrir ríkisstjómina að ábyrgjast lán til Flugfélags íslands vegna kaupa á Boeing þotu af gerðinni 727. Gert er ráð fyrir, að lánsupphæðin nemi 80% af kaup- verði vélarinnar, en með nauðsyn legum varahlutum og tækjum mun heildarverð hennar vera sem næst 297 milljón króna. Hámark ábyrgð arinnar verður samkvæmt því 258 milljónir króna. í frumvarpinu er þess getið, að í ráði sé að þrefalda hlutafé fé- lagsins, úr 20 milljónum í 60 milljónir króna. Hlutafjáreign rík- issjóðs er nú 26 milljónir eða um 13%. Gerir frumvarpið ráð fyrir að fjármálaráðherra hein.ilist að auka hlutafé ríkisins hlut.allslega jafn mikið. í greinargerð kemur fram, að ríkisstjórnin vill fyrir sitt leyti stuðla að framgangi málsms með veitingu ríkisábyrgðar til kaupa á flugvél þessari, eða hverri þctrri tegund annarri, er éigi væri dýr- ari en Bóeing 727. Ér á það bent, að ör þróun í flugsamgöngmm Framhald ð 15, síðu Lifir með gervihjarta Houston, Texas. 22. apríl. mtb-reuter). — Læknar ótt- ast að Marcel Derudder, 65 ára, sem lífinu er haldið í með gervihjarta, hafi skaddast á heila, þar sem hann hefur ekki kómizt til meðvitundar eftir hinn sögulega uppskurð sem hann gekk undir í gær, en þá var gervihjartanu, sem er úr plasti, komið fyrir. Læknarnir segja, að annars líði Derudder vel eftir atvikum. Gervihjartað er I aðalatrið- um rafknúin dæla, sem teklð hefur við um það bil 60% af starfsemi hjartans. Blóð það, sem undir venjulegum kring- umstæðum færi um hið skadd- aða vinstra hjartahólf Derudd- ers, fer gegnum gervihjartað og síðan aftur til aðalslagæð- arinnar. Vinstra hjartahólfið sem framkvæmir mestalla dælustarfsemi hjartans, fær þannig að hvílast og læknast. * Læknarnir vona, að gervi- hjartað lengi líf Derudders og veki von hjá þúsundum ann- arra hjartasjúklinga. Ef aðgerð in gengur að óskum fá læknar um heim allan nákvæmar upp- lýsingar um hana. Það er hinn heimskunni hjartasjúkdóma- læknir Michael Debakey, sem Framhald á 14. sfðn ÍSAL GENGUR EKKI í AT- VINNUREKENDASAMTÖK

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.