Alþýðublaðið - 23.04.1966, Side 11

Alþýðublaðið - 23.04.1966, Side 11
f ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. apríl 1966 \% t=RitstiórTÖrn 96 keppendur í Víða- vangshlaupi Hafnarfjarðar Ilalldór Guðbjörnsson, KR sigrar í 51. Víðavangshlaupi ÍR. Mynd: JV. Frá 57. víðavangshlaupi ÍR: KR og Skarphéðinn sigr- uðu í sveifakeppninni HALLDÓR GUÐBJÖRNSSON, KR. SIGRAÐI Víðavangshlaup Hafnarf jarðar 1966 fór fram á sumardaginn fyrsta, og urðu úrslit sem hér segir: Drengir 17 ára og eldri: Ólafur Valg. FH 5:30,7 Trausti Sveinbj.son, FH 5:40,0 Gunnar Kristj. SH 5:55,2 Ólafur kom á óvart með að sigra Trausta, sem hefur unnið bikarinn sl. tvö ár. Ðrengir 14—16 ára: Hafsteinn Aðalsteinss. FH 5:43,0 Helgi M. Arthursson, FH 6:11,0 Dýri Guðm. FH 6:24,7 Hafsteinn bar af í þessu hlaupi og hljóp skemmtilega. Drengir 13 ára og yngri: Viðar Halldórsson, FH 3:59,4 Daníel Hálfdánarson, FH 4:01,0 Ágúst Ólafsson, FH 4:05,4 Viðar sigraði auðveldlega, og vann bikarinn til eignar. Stiilkur 12 ára og eldri: Oddný Sigurðard. FH 4:18,7 Elízabet Ingibergsd. FH 4:28,3 Guðrún R. Pálsd. FH 4:35,6 Oddný sigraði einnig í fyrra. Stúlkur 11 ára og yngri: Ingibjörg Elíasd. FH 4:27jO Rós Lára Guðl. FH 4:51,1 Svanhvít Magnúsd. FH 4:53,5 Alls tóku 96 þátttakendur þátt í Víðavangshlaupinu. HALLDÓR GUÐBJÖRNSSON, KR, sigraði i 51. Víöavangsh laupi ÍR, sem fram fór á sumardaginn fyrsta eins og venjulega. Hlawp- ið hófst í Hljómskálagarðinum og lauk við Miðbæjarbarnaskólann. Baráttan var allhörð milli Hall- dórs Guðbjörnssonar og félaga hans, Agnars Levy. Agnar var á undan, þegar hlaupararnir komu á Fríkirkjuveginn, en Halldór átti betri endasprett og sigraði í fyrsta sinn í Víðavangshlaupi 'ÍR. Baldvin Þóroddsson, KA, varð þriðji í hlaupinu, en hann er mjög efnilegur hlaupari. KR-ingar sigruðu örugglega í sveitakeppni 3ja manna, en Skarp- héðinn í sveitakeppni 5 og 10 MQffAfRLT Það verða Real Madrid og Part izan^ Belgrad, sem leika til úr- slita í Evrópubikarkeppninni í knattspyrnu. Real vann Inter sam anlagt í tveim leikjum anlagt 2:1 í tveim leikjum. Part- izan vann Manchester Utd. með sömu markatölu. raanna. KR vann bikar, sem Þjóð- I viljinn gaf 1964 í annað sinn..Aft- ! ur á móti unnu Skarphéðinsmenn til eignar bikar, sem keppt er um í sveitakeppni 5 manna, en hann gáfu starfsmenn íþróttavallanna. í sveitakeppni 10 manna vann Skarphéðinn til eignar bikar, sem ÍR gaf. í kaffisamsæti eftir hlaupið voru verðlaun veitt og þar flutti Sig. Gunnar Sigurðsson, formaður ÍR ræðu. Hann hvatti unga fólkið til að standa vörð um íþróttirnar og fé- lög sín. Keppnin er hörð um æskulýðinn, sagði Gunnar, og því miður láta margir freistast til að leita sér ánægju á miður heppi- legum stöðum. íþróttafélögin standa öllum opin og þar geta all- ir fengið verk að vinna, og iðkað íþrótt við sitt hæfi. Auðvitað verður æskufólkið að skemmta sér og dansa og formaður ÍR sagðist síður en svo vera á móti dansi, en unga fólkið fær ekki heilbrigða skemmtun á veitingahúsunum, þar sem vín er haft um hönd. Það er í hinu félagslega starfi, þar sem allir eru þátttakendur og hér hafa öll íþróttafélög og æskulýðs- félög mikilvægt verk að vinna, — sagði formaður ÍR. Hafsteinn Þorvaldsson úr stjórn Skarnhéðins flutti ávarp og þakk- aði ÍR framkvæmd þessa merka hlaups. Hann hvatti félög og banda lög í nágrenni Reykjavíkur til að efna til víðagangshlauns hjá sér þennan dag. íþróttahreyfing- in væri fátæk af erfðavenjum og þess vegna ættu allir íþróttamenn að stefna að því að taka þátt í þessu hlaupi, sem efnt var til af miklum stórhug og háð hefur ver- ið óslitið í 50 ár. Ú r s 1 i t : Halldór Guðbj. KR 7:58,8 Agnar Levy, KR 8:00,8 Baldvin Þóroddsson, KA 8:04,5 Marinó Eggertsson, KR 8:11,5 Mart. Sigurg. HSK 8:39,9 Jón Sig. HSK 8:43,6 Jón Gunnlaugsson, HSK 8:53,0 Guðm. Guðm. HSK 9:10,0 Jón ívarsson, HSK 9:27,0 Þorv. Hafsteinss, HSK 9:28,0 Jón Stefánsson, HSK 9:43,0 Berþór Halld. HSK 9:51,0 Sig. Jónsson, HSK 9:52,0 Hafsteinn Þorv. HSK 11:40,0 Sveitakeppni 3ja manna: Sveit KR 6 stig Sveit HSK (a) 15 stig Sveit HSK (b) 24 stig Sveit HSK (c) 33 stig Sveitákeppni 5 manna: Sveit HSK (a) 10 stig Sveit HSK (b) 40 stig Sveitakeppni 10 manna: Sveit HSK 50 stig Drengjahlaup Ár- manns á morgun Hið árlega Drengjahlaup Ár- manns fer fram á morgun, sunnu- dag. Hlaupið verður í Hljóm- skálagarðinum og umhverfis Há- skólavöllinn Þátttakendur og starfsmenn eru beðnir að mæta á Melavellinum kl. 1,15 e. h. Vormót Ármanns fer fram í dag Þeim hluta Vormóts Ármanns 1966, sem fresta varð á sumar- daginn fyrsta, þ.e. keppni í A.H. og C-flokkum karla verður hald ið áfram í Jósefsdal laugardaginn 23. apríl og hefst keppni kl. 5 e.h. Eru það vinsamleg dlmæli miðstjórnarinnar að keppendiaf mæti stimdvíslega. Tveir landsleikir í knattspyrnu fóru fram á miðvikudag. Belgía sigraðj Frakkland 3:0 í París, en Sviss og Sovétríkin gerðu jafn- ' tefli 2:2 í Basel. Fjórðungsglíma Sunhlendinga Fjórðungsglímumót Sunnlend* ingafjórðungs verður háð í Sam- komuhúsinu að Garðaholti laug- ardaginn 30. apríl og hefst kl. 4 eftir hádegi. Er þetta í fyrsta sinn sem fjórO ungsglímumót Sunnlendingafjórð- ungs er haldið. Verður keppt um glæsilegt glímuhorn sem Mjólkur bú Flóamanna hefur gefið til þess- arar keppni. Auk þess verða þrenn önnur verðlaun. Ungmennasamband Kjalarnes- þings sér um keppnina að þessu sinni. Þátttökutilkynningar berist fyrir 28- apríl næstk. til Sigurðar Geirdal form. Umf. Breiðabliks 1 Kópavogi eða formanns Ung- mennasambands Kjalarnesþinga, Úlfars Ármannssonar. Frá skíðamóti Menntaskólans HIÐ árlega skíðamót Mennta- skólans í Reykjavík var haldið í Hamragili við ÍR-skálann og hófst mótið kl. 4 e. h. Mót þetta var svigmót og er keppt um bikar, sem Skíðadeild ÍR gaf til keppni í svigi karla. Gísli Erlendsson 5- R vann bikarinn í annað skipti, áður hafa unnið bikarinn Júlíus Magnússon og Ingólfur Eyfells, en þetta er fjórða árið, sem keppt er Jum þennan bikar. Mótsstjóri va* i Sigurjón Þórðarson, formaður Skiðadeildar ÍR og brautarstjórl Valdimar Örnólfsson. 7 keppend* ur voru skráðir til leiks, en að- eins 3 luku keppni, enda veðuí mjög óhagstætt til keppni. Úrslit urðu þessi: Gísli Erlendsson, 5-R 75.9 Trausti Eiríksson, 6-U 84.0 Bragi Jónsson, 4-R 90.9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.