Alþýðublaðið - 29.04.1966, Blaðsíða 11
Hrafnhildur og sveitir
Ármanns settu Islandsm.
Hrafnhildur og Guðmundur í
sérflokki á sundmáfinu
Suiidmót Ármanns á miðviku-
dagskvöld tókst vel, nema að einu
leyti, áhorfendur voru mjög fáir.
Alls voru sett þrjú íslandsmet,
Hrafnhildur Guömundsdóttir, ÍR í
200 m. fjórsundi, synti á 2:41,2
mín., kvennasveit Ármanns í 3x100
m. þrísundi, synti á 4:02,8 mín.
og loks karlasveit Ármanns í 4x50
m. fjórsundi, synti á 2.04,7 mín.
í fleiri greinum náðist mjög góður
árangur. Framkvæmd mótsins var
ágæt.
Hrafnhildur sjaldan betri.
Eins og áður er getið setti Hrafn
liildur Guðmundsdóttir eitt ís-
landsmet í 200 m. fjórsundi, bætti
gamla met sitt um 2,8 sek. Afrek
Guðmundur Gíslason
hennar er nú aðeins 4,4 sek lakara
en Norðurlandamet í 25 m. braut.
Hrafnhildur tók einnig þátt í 200
m. bringusundi og synti á hinum
frábæra tíma 2:55,7 mín., aðeins
l, 1 sek. frá eigin meti. Hrafnhild
ur var sjálf hissa á tíma sínum,
sagðist hafa verið lítið þreytt að
sundinu loknu. — Ég bjóst ekki
við því að tíminn væri svona góð
ur, sagði hún eftir sundið. Norð
urlandamet í 50 m. braut er 2:54,7
mín.
Fjölhæfi Guðmundar.
Guðmundur Gíslason tók þátt
í þrem greinum og sigraði örugg
lega í þeim öllum. Mesta athygli
vakti tími hans í 200 m. bringu-
sundi, en hann keppir sjaldan í
þeirri grein — synti á 2:42,4 mín.
Hin nefnilegi Gestur Jónsson, SH
varð aðeins þriðji, en hann meidd
ist nýlega og gekk ekki heill til
skógar í þetta sinn.
í 100 m. skriðsundi vann Guð-
mundur öruggan sigur, en annað
sæti Guðmundar Þ. Harðarsonar
kom á óvart. Hann náði sínum
bezta tíma, 59,2 sek. Davíð Val-
garðsson varð að sætta sig við
þriðja sæti. -
Þriðja greinin sem Guðmundur
keppti í, var 100 m. baksund, Da-
víð veitti honum allharða keppni
framanaf, en undir lokin var Guð
mundur greinilega betri.
Boðsundsmet Ármanns.
Kvennasveit Ármanns hafði yfir
burði í 3x100 m. þrísundi og
bætti eigið met um 2,9 sek. í 4x50
m. flugsundi karla var keppnin
hörð milli ÍR og Ármanns. Ármann
tók forystu eftir baksundssprett-
inn, en Hörður og Guðmundur
færðu ÍR forystu eftir bringu og
flugsund. Á skriðsundssprettinum,
þar sem Pétur Kristjánsson synti
fyrir Ármann, tóku Ármenningar
forystu og sigruðu á nýju meti,
2,04,7 mín. Sveit ÍR var einnig á
betri tíma en gamla metið, sem
var 2:05,8 mín.
Margt af sundfólki okkar er í
góðri æfingu og líklegt til að bæta
afrek sín til muna, en því miður
eru ekki allir jafnvel undirbúnir
fyrir landskeppnina við Dani í
Reykjavík 20.—21 júlí nk. En
Ennþá er tími til stefnu og ef
allir leggjast á eitt, ætti sigur að
vera mögulegur. Síðast þegar ís
land mætti Dönum í landskeppni
í sundi unnu Danir með einu stigi.
HELZTU ÚRSLIT :
100 m. skriðsund karla:
Guðm. Gíslason, ÍR 58,1
Guðm. Þ. Harðarson, Æ 59,2
Davíð Valgarðsson, ÍKB 59,6
Logi Jónsson, KR 1:20,0
200 m. bringusund kvenna:
Hrafnh. Guðmundsdóttir, ÍR 2:55,7
Matth. Guðmundsdóttir, Á 3:16.2
Sigrún Siggeirsdóttir, Á 3,19,7
100 m. skriðsund stúlkna:
Hrafn. Kristjánsdóttir, Á 1:06,5
Guðfinna Svavarsdóttir, Á 1:15,7
Sigrún Siggeirsdóttir, Á 1:20,1
Sæunn Strange, SH 1:21,1
50 m. skriðsund drengja:
Pétur Einarson, SH 29,2
Kristinn Ingólfson, Á 30,4
Páll Björgvinsson, Æ 30,4
Eiríkur Baldursson Æ 31,2
200 m. bringusund karla:
Síbasta skíöamótið
í Hammgili í vetur
Síðasta skíðamótið í Hamragili
á þessum vetri fer fram á morgun
laugardag og hefst kl. 15,00. Þett
að er innanfélagsmót ÍR í svigi
kvenna, stúlkna og drengjaflokk
um. í þessari keppni er boðið til
þátttöku skíðafólki úr öðrum fé
lögum, og fer skráning fram á
mótsstað kl. 14,00. ÍR væntir þátt
töku sem flestra gesta. Keppni
í svigi karla á ÍR-mótinu fór fram
í janúar, en vegna veðurs varð
ékki úr keppni í ofangreindum
flokkum.
ÍR-meistari í svigi karla varð
Þorbergur Eysteinsson í annað
skipti í röð, og ef hann verður
J>að líka næsta ár vinnur hann
hinn 23 ára gamla ÍR-bikar til
eignar.
Að lokinni keppni í kvenna-
flokki á morgun verður efnt til
svigkeppni fyrir karla og er öil
um heimil þátttaka.
Skíðafæri er nú með ágætum
nægur snjór bæði til að renna
sér í brekkum og einnig til göngu
ferða um fjöll og dali, og búast
má við að skíðafæri haldist ágætt
langt fram í næsta mánuð, jafnvel
þótt dálítið rigni eða sólfar verði
mikið, snjór hefir ekki verið jafn
mikill í fjölda ár, og ætti fólk að
notfæra sér snjó og sólskin í
ríkum mæli.
Guðm. Gíslason, ÍR 2:42,4
Árni Þ. Kristjánsson, SH 2,47,2
Gestur Jónsson, SH 2:50,8
Framhald á 15. síðu.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, ÍR
Geir Hallsteinsson einn bezti leikmaður FH.
Úrslit í I. og
. deild í kvöld
í kvöld verða úrslitaleikir í I.
og II. deild íslandsmótsins í hand
knattleik. Víkingur og þróttur
leika í II. deild og Víking nægir
jafntefli til að hljóta sæti í I.
deild næsta ár. Sigri Þróttur verða
félögin þrjú Víkingur, ÍR og Þrótt
ur enn jöfn að stigum, þar sem
ÍR vann Þrótt ú þriðjudag með
27:22, eða sömu markatölu og
víkingur vann ÍR kvöldið áður.
í I. deild leika Fram og FH til
úrslita um íslandsmeistaratitilinn.
Ekki er gott að spá neinu um þann
leik, FHingar voru slappir á sunnu
dag, er þeir mættu Fram og hafa
sjálfsagt fullan hug á að gera
betur. Framliðið er einnig gott og
hefði sjálfsagt ekkert á móti því
að sigra nú, en FII sigraði í mót
inu í fyrra.
Keppnin hefst að Hálogalandi
kl. 20,15.
Dómstóll HSÍ felldi úrskurð í
gær í kæru KR vegna leiks við
FH í I. deild, þar sem of léttur
knöttur var notaður. Dómstóll
IIKRR liafðj fellt þann úrskurð
að leikur skyldi fara fram að nýju
en dómstóll HSÍ hnekkti þeim.
dómi, þanig að leikurinn gildir.
MMMUHHMMMMMMmUWt
Glasgow Rangers
varö skozkur
bikarmeistari
I fyrrakvöld léku Glasgow
og Celtic til úrslita í skozku
bikarkcppninni. Leiknum
lauk með sigiri Rangers 1:0 ,
en Rangers hefur ekki tapað
í skozku bikarkeppninni í
36 ár. Markið gerði Daninn
Kaj Johansson, er Cheltic
mrakvörðurinn haföi hálfvar
ið, en Johansson var vel stað
settur og boltinn hrökk til
hans og hafnaði í netinu.
Þetta gerðist, þegar 25 mín.
voru liðnar af síðari hálflcik.
Celtic átti meira í leiknum,
en tókst ekki að skora.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29. apríl 1966 %£