Alþýðublaðið - 15.05.1966, Page 5

Alþýðublaðið - 15.05.1966, Page 5
Netagerð Jóhanns Klausen, Eskifirði Benedikt Gröndai UM HELGINA MINNINGARORÐ: Tilraunadýr skipulagsins DEILA ER USIN út af skipulagsmálum Hlíðahverfis. Tíminn hefur bent á, að samkvæmt hinu nýja skipulagi eigi að rífa langa röð steinhúsa meðfram Miklubraut sunnanverðri til að breikka göt- una. Er óumdeilanlegt, að samkvæmt lit- prentuðum og skýrum kortum er þetta ætl- unin. Hins vegar segir borgarverkfræðingur, að þetta sé misskilningur, málið verði leyst á annan hátt. Getur hver heilvita maður séð, að þessi hús verða ekki rifin nœstu 50 ár — en það er napurt að verja 25 milljónum í nýtt skipulag og heyra borgarverkfræðing svo segja, að ekkert sé að marka það! Skipulagssaga Hlíðahverfis er raunar merkileg. Þetta var eitt fyrsta borgarhverf- ið, sem reist var frá grunni eftir að þjóðin var'ð bjargálna. Það var teiknað á stríðsár- unum, en þá voru kunn flest meginatriði skipulagsmála, sem nú eru í gildi. Nægir að behda á skipulag Breta- á nýju borgunum, sem þeir ætluðu að reisa eftir ófriðinn, en það var gert á sömu árum. Þrátt fyrir þetta virðist elzta Hlíðahverfið (vestan við Stakka- hlíð) hafa verið teiknað með reglustriku. Fyrst var Miklabraut gerð beint inn nesið. Síðan voru íbúðagötur dregnar samhliða henni. Hafnarfjarðarvegurinn var til og þótti rétt að sýna honum örlitla virðingu. Eskihlíð var dregin með reglustriku samhliða honum. Þver- i götur voru settar hornrétt á Miklubraut. Afleiðingin varð sú, að allar götur hverfisins kölluðu á umferð gegnum það. Bils^úrar voru aðeins við einstaka hús og eru nú stórvandræði vegna rúmleysis fyrir farartækin. Verzlanir voru sett- ar á horn mestu umferðagatna til að draga húsmæður þangað með börnin, enda þótt hugmyndir um verzlunarmiðstöðvar (eins og risið hafa síðar í öðrum hverfum) væru alkunnar. Húsum var raðað til- breytingalítið eins og steinvegg meðfram götunum. Við MiklUbraut sneru tröppur stórhýsanna beint út í umferðina. Bráðelga vatð ljóst, hversu frumstætt og ófullkomið þetta skipu- lag var raunar bvggt á sömu reglum og í borgum Egypta um 3000 árum fyrir Krist Þurfti fljótlega að gera breytingar og síðan má segja, að Hlíðabúar hafi verið tilraunadýr skipulagsins. l'vrst varð að gera hinar alkunnu breytingar á Miklubraut. Nú er komið nýtt skipulag, þar sem svo mikið álag er lagt á þessa einu götu að undrun sætir. Suðurlandsbraut er tekin úr tölu hrað- brauta í bænum og Hafnarfjarðarvegurinn líka, en um Öskju- hlíð ó að koma ný hraðbraut, hvenær sem það verður. Til marks um vinnubrögðin er það, að hin nýja slökkvistöð stendur við Hafnar- fjarðarveg, sem á að lokast í báða enda þarna í brekkunni, en hafa tengigötu yfir í Eskihlíð. Ýmsar tilraurir hafa verið gerðar til að bæta úr glappaskotum skipulagsins í Hlíðunum. Sérstök hliöargata við Miklubraut var naiið- synleg vegna húsanna þar. Flókið kerfi einstefnuaksturs er komið um allt hverfið, óhjákvæmilegt en líka óþægilegt. Sumar götur eru gorðar gangstéttalausar aðrar með eina gangstétt —■ allt tíl- raunir. Nýrri liluti Illíðahverfis, ofan Stakkahlíðar, er að ýmsu leyti skárri, en þó skritinn. Bogahlíð var sýnilega dregin til að láta hana enda í glæsilegum menntaskóla. Hún er eins og steinsteypt renna, sem magnar rok og rigningu — og svo færðu þeir menntaskólann til og varð þá lítið úr dýrðinni! Verzlunarmiðstöð hefur verið sett sem eftirþanki á milli Stigahlíðar og Kringlumýrarbrautar, en bíla- stæði eru þar líti'. Nú hafa skluulagssérfræðingar bæjarins fengið mikla þjálfun með erlendum scifræðingum fyrir 25 milljónir króna. Þá þarf aUð- vitað að gerbreyta Hlíðahverfi enn einu sinni — aðeins 20 ára gömlu. Hverfið á ekkert vegasamband að hafa við Miklubraut, og loka á öllum liliðargötum Lönguhlíðar frá Miklubraut að hring- torginu við Hamrahlíð. Þar á eina leiðin inn í hverfið að verða. Ef til vill verður þetta til bóta. En hvað ætli verði langt, þar tll enn verður öllu umturnað. Látum vera, þótt erfitt sé a0 endur- skipuleggja gömlu hverfin, en það er dýrt spaug fyrir útsvarsgreið- endur, þegar svona gengur með nýju hverfin. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson Ég vil aðeins þakka fyrir mig, því ég á honum skuld að gjalda. Svo oft hefur hann tekið greinar stúf eftir mig í ,JIornið“ sitt þeg ar mér hefur íegið eitthvað á hjárta. Hann stakk því aldrei und ir stól, þó þe~sar greinar væru imdir dulfcefþi. Ég reyndi að vanda þær svo að þær særðu ekki neinn persónulega. „Hannes á horninu" gerði við þær rínar athugasemdir og líkaði mér það yfirleitt vel. Það er svona léttir að segja hlutina einhverjum og fá ráðleggingar hjá þeim sem hafa góðan skilning og velvilja, en það hafði V.S.V. í ríkum mæli, — En hvert eigum við nú að snúa okk ur með kvörtunarlistann? Við fökmim því vinar í stað, þar sem „Hannef á horninu" var. Ýmsum okkar finnst að íslenzk blaðamennska verði fátækari eftir netna að einhver tæki upp merki háns, og það myndi margan gleðja. ■Vilhjálmur S. Vilhjálmsson var míkill mannúðarmaðúr, gáfaðm- og mikilvirkur rithöfundur og skérrimtllegur útvárpsmaður. Með þvi síðasta sem hann stakk upp á í „Hörninu sinu“ var það, hvort ekki væri reynandi að fá Alfreð Elfasson fyrir borgarstjóra næsta kjörtímabil. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson var mikill gæfumaður þrátt fyrir híð langvarandi heilsuleysi æskuár- anna ,sem settu sitt mark á hann en sem hann bar með æðruleysi. Og að síðustu var liann svo lán samur að þurfa ekki að rogast með byrði ellinnar, heldur hafði hann skjót vistaskipti, og var það í hans anda. Ég hygg, að gamlir samstarfsmenn hans við Alþýðu blaðið ,þeir sem á undan em farnir og svo ættingjar hans, háfl- fagnað honum, svo góðum liða manni sem hann var, því allsstaO ar er nóg að starfa guðs um geim, hverju megin sem verið er vi?f tjaldið. Að endingu vil ég biðja Vil- hjálmi og eftirlifandi ástvinuni hans allrar blessunar guðs. K.K. KoparpÍDur og Rennilokar, Fittings, Ofnakranar, Tengikranar Slöngttkranar, Blöndnnartæki, Burstafell byggingarvöruverzlun, Kéttarholtsvegi 3. Siml 3 88 40. Síldveiðiskipstjórar - útgerðarmenn Auglýslngasimi ALÞÝÐUBLAÐSINS «r 14900 Höfum flestar útgerðarvörur til síldveiðanna, svo sem alls konar lása og vírklemmur, snurpuhringi, blakkir úr tré og jámi, gálga- bl'akkir, hálflása, lásavír, hlífivír, snurpuvír og alls konar tógverk úr sísal, hampi og gerviefnum. Tökum varanætur til geymslu og viðgerða. Önnumst nótaviðgerðir á Eskifirð i, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík, eftir ástæðum. Ef skipshöfnin tekur sér frí einhvem tíma sumars þá sjáum við um skipið á meðan. hvomig sem þðr íerðist ferðatrygging ALMENNAR f TRYGGINGAR % PÓSTHÚSSTRÆTl í . SÍMI 17700' ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. maí 1966 5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.