Alþýðublaðið - 22.05.1966, Page 3
- segir Emil Jónsson,
formaður Alþýðuflokksins
í DAG liggur mikið við, að allir þeir, sem að-
hyllast hugsjónir jafnaðarstefnunnar sýni það í
verki með því að kjósa Alþýðuflokkinn, sagði Emil
Jónsson, formaður flokksins í viðtali við blaðið.
Við vitum, að jafnaðarstefnan á sér víðtækan
stuðning meðal íslendinga og hún er þýðingarmikill
þáttur í lífi þjóðarinnar, þáttur sem fáir mundu vilja
sleppa. Umbætur eins og almannatryggingar verða
ekki tryggar og munu ekki þróast eðlilega á Itomandi
árum, nema Alþýðuflokkúrinn liafi kjörfylgi til að
standa um þær vörð.
Alþýðuflokkurinn hefur á síðustu árum haft
aðstöðu til þess, ekki sízt með þátttöku í ríkisstjórn,
að koma fram miklum umbótum á tryggingamál-
um, húsnæðismálum, kjaramálum vinnandi fólks og
menntamálum. Þessum málum hefur verið þokað
fram af því að Alþýðuflokkurinn hafði sterka að-
stöðu í samstarfi við aðra flokka. Þessi aðstaða hans
verður að endurnýjast með atkvæðum kjósenda !
hverjum kosningum, hvort sem kosið er til hæjar-
stjórna eða Alþingis. Vil ég heita á alla þá, sem telja
áhrif jafnaðarstefnunnar til góðs hér á landi að veita
okkur nú öflugt brautargengi, sagði Emil. ,
Alþýðuflokkurinn hefur starfað í 50 ár og haft
margvísleg áhrif í sveitarstjórnarmálum og lands-
málum, sagði Emil Jónsson ennfremur. Reynslan hef
ur sýnt, að starf flokksins hefur verið árangursríkt
og farsælt, og starfsaðferðir hans, að vinna stuðn-
irtg fólks við málefnin eftir lýðræðislegum leiðum
og vinna ávallt af fullri ábyrgð, eru hinar réttu. Klofn
ingur, yfirboð og ábyrgðarleysi hefur aðeins orðið
til þess að veikja mátt íslenzkrar alþýðu og samtaka
hennar.
í dag verður hörð kosningabarátta í kaupstöðum
og kauptúnum um land allt, sagði Emil að lokum. Ég
treysti Alþýðuflokksfólki og öðrum stuðningsmönn-
um flokksins til að láta sitt ekki eftir liggja og gera
sigur flokksins sem mestan.
t): *
i *
t /
; t
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. maí 1966,. 3