Alþýðublaðið - 26.05.1966, Blaðsíða 11
I
Ritstjóri Ö...
VORMÓT ÍR í FYRRAKVÖLD:
Sæmileg byrjun
i
Vormót IR, fyrsta frjálsíþróttamót
sumarsins hér l Reykjav.ík, fór
fram á Melavellinum í fyrrakvöld.
Veður var óhagstætt, kalt og gola
nokkur. Þegar litið er á árangur
mótsins í heild má segja, að hann
sé sæmilegur, þegar miðað er við
aðstæður og þats hve frjálsíþrótta
menn hafa lltið geta æft á braut
í vor. Einnig vantaði ýmsa góða
menn til keppni, þar sem nokkrir
Valbjörn sigraði í
3 greinum á ÍR-mótinu.
Sveitaglíma KR
Sveitaglíma KR verður háð að
Hálogalandi 5. júní nk. Félög inn
an ÍBR hafa rétt til að senda
sveit í mótið. Þátttökutilkynning
ar sendist Rögnvaldi Gunnlaugs
syni, Fálkagötu 2 fyrir 1. júní.
af beztu mönnum okkar eru í próf
um ennþá.
Greinilegt er að Valbjörn er í
betri æfingu nú en sl. sumar. Hann
er mun sterkari og ekki er það
mikil bjartsýni að reikna með
meti frá honum í tugþraut á þessu
ári. Hann kastaði spjóti 61,21 m.
hljóp 100 m. á 11,1 sek. í mótvindi
og stökk 6,52 m. í langstökki.
Þetta er góð byrjun hjá Valbirni.
Ekki er hægt að segja að Jón
Þ. Ólafsson sé í eins góðri æfingu
nú og í upphafi keppnistímabilsins
sl. ár enda hefur lítið verið hægt
að stökkva utanhúss í vor, en hann
stökk vel yfir 1,95 m. sem er þokka
legt afrek hjá Jóni.
Keppni var skemmtileg í 800 m.
hlaupi miili Þórarins Ragnarsson,
ar, sem er í mun betri æfingu nú
en í fyrra og Halldórs Guðbjörns
sonar, en hann var beztur í þess
ari vegalengd í fyrra. Þórarinn
var greinilega sterkari, en gaman
verður að fylgjast með þessari
grein í sumar, því að auk Þórar
ins Ragnarssonar og Halldórs, eru
fleiri líklegir til að ná góðum
tíma í 800 m. hlaupi síðar á keppn.
istímabilinu.
Bestir í kastgreinum voru Guð
mundur Hermannson, sem varpaði
kúlu 15,51 m. og Þórður B. Sigurðs
son og Jón H. Magnússon í sleggju
kasit, sá síðastnefndi er í mikilli
framför. Kringlukast var frekar
slappt, en keppnin í þeirri grein
er spennandi. Þorsteinn Alfreðs
son sigraði að þessu sinni.
Helztu úrslit:
100 m. hlaup:
Valbjörn Þorláksson, KR 11,2
Kristján Mikaelsson, Á 11,5
Þórarinn Arnórsson, ÍR 11,6
Björn Sigurðsson, KR, 11,6
Valbjörn hljóp á 11,1 sek. í undan
rásum og Kristján á 11,4.
Framhald á 15. síðu.
wwwmmiwwwwmmwwwww»
Hermann skorar í leiknum við Akranes.
Valur - „pressulið" í kvöld:
Hvor er betri Her-
manrt eða Baldvin?
■
í kvöld verður háður fyrsti
knattspyrnuleikurinn á þessu
sumri á Laugardalsvellinum,
þar eigast við bikarmeistarar
Vals og Úrvalslið, sem íþrótta
fréttamenn hafa valið. Leikur
þessi er háður í tilefni 55 ára
afmælis Vals, sem var fyrr í
þessum mánuði.
Ekki er vafi á því, að leikur (íerja í landsliðinu í fyrrasum
inn getur orðið hinn skemmti &r.
legasti. Valsliðið er mjög vel Ýmsir ungir og efnilegir leik
menn skipa nu í urvalsliðið, en
leikandi um þessar mundir, tekið verður meira eftir þeim
sennilega það bezta liér nú. þessu sinni en áður vegna
Hermann Gunnarsson, miðherji landsleiksins við Dani (23 ára
Vals verður að öllum líkindum leikmenn og yngri) sem fram
valinn miðherji landsliðsins í fer í byrjun júlí.
sumar og fróðlegt' verður að Eitt er víst, að knattspyrnu
gera samanburð á honum og unnendur eiga von á góðri
Baldvin Baldvinssyni, sem leik skemmtun á Laugardalsvellin-
ur þessa stöðu með úrvalslið um í kvöld, en leikurinn hefst
inu. Sá síðarnefndi lék mið- kl. 20,30.
Þróttur bezta knattspyrnu-
félag Reykjavíkur
Þórarinn Ragnarsson sigraði í 800 m. hlaupi á ÍR-mótinu.
Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts-
fór fram í gærkvöldi, milli Þróttar
og Fram. Leikar fóru svo að Þrótt
ur sigraði með 2:1 og hlaut hinn
eftirsótta titil „Bezta knattspyrnu
felag Reykjavíkur”, er þetta í
fyrsta sinn, sem Þróttur vinur
þennan merkilega íþróttasigur.
Þróttur skoraði bæði mörk sín
í fyrri hálfleiknum og gerðu þeir
Ólafur Brynjólfsson v. innherji og
Haukur Þorvaldsson miðherji
mörkin. Það fyrra á 20. mín. en
það síðara á 44. mín.
Fram skoraði sitt eina mark er
10 mín var af síðari háfleik en
það gerði Erlendur Magnússon
eftir snjalla fyrirgjöf frá v. úth.
Elmari Geirssyni.
Dómari var Valur Benediktsson.
Kynningarkvöld
í körfuknattleik
í kvöld fimmtudaginn 26. maí
heldur Körfuknattleiksdeild KR
eins konar sýni- og kynningarkvöld
á körfuknattleik og er öllum þeim,
sem áhuga hafa á íþróttinni, heim
Framhald á 10. síðu.
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 26. maí 1966