Alþýðublaðið - 24.06.1966, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 24.06.1966, Qupperneq 7
Frá aðalfundi Bók- bindarafélagsins AÐALFUNDUR Bókbindarafé- Jags íslands var haldinn 26. maí sl. Á fundinum flutti formaður félagsins, Grétar Sigurðsson, skýrslu um störf félagsins á liðnu ári. Á árinu 1965 gerði félagið nýja kaupsamninga og tóku þeir gildi 1. okt. og gilda til 1. október í ár. Samningar þessir voru að mestu leyti samliljóða samningum þeim er önnur stéttarfélög bóka- gerðarmanna gerðu þá. Merkasta ákvœði hins nýja samnings var, að kaup nemenda var hækkað veru- lega og hafa nemar nú 45% af kaupi sveina á 1. námsári, 55% á öðru ári, 65% á þriðja ári og 75 % af kaupi sveina á fjórða ári. Blað félagsins, Bókbindarinn, kom út einu sinni á starfsárinu. Þá kom út fyrsta örk af Bók- bindaratali og er gert ráð fyrir að önnur örk komi á þessu ári. Ritstjóri Bókbindaratalsins er Svanur Jóhannesson, varaform. félagsins. Haldið hefur verið áfram viðræð- um við önnur samtök bókagerðar manna til undirbúnings að stofn- un sambands bókagerðarmanna. Á árinu var hafinn vísir að fræðslustarfsemi og haldið nám- skeið um fundarstjórn og mælsku list fyrir félagsmenn. Orlofsheimili félagsins í Ölfus borgum tók til starfa á sl. sumri. Félagið keypti á sl. ári húsnæði til starfsemi félagsins, að Óðins- götu 7, ásamt 7 öðrum stéttar- félögum. Þar er skrifstofa félags- ins og önnur starfsemi og er þeg- ar hafinn vísir að rekstri sameig- inlegrar skrifstofu ásamt 4 öðrum stéttarfélögum, Á árinu var þess minnzt að liðin eru 60 ár síðan fyi'stu samtök bókbindara voru stofnuð hér á landi, þ. e. árið 1906. Bauð félag- ið þá öllum meðlimum sínum og mörgum gestum til hófs í félags- heimilinu. Stjórn félagsins skipa nú: Form. Grétar Sigurðsson. Vai-aform. Svanur Jóhannesson. Ritari Eggert Sigurðsson. Gjaldkeri Olferd Naapy og formaður kvennadeildar fél. Guðrún Haraldsdóttir. Helgi H. Helgason, sem um mörg ár hefur setið í stjórn fé- ; lagsins, gekk nú úr stjórn félags- i ins vegna breytinga á atvinnu sinni, voru honum færðar þakkir fyrir margháttuð störf hans í þágu félagsins. Fjárhagur félagsins er góður, skuldlaus eign rúmlega 1 millj. króna. Árgjald félagsmanna: — Sveinar greiða kr. 60 á viku og aðstöðarstúlkur kr. 30,00 á viku. Brauðhúsið Laugravegl 126 ■— Sími 24631 ★ Allskonar veitingar. ★ Veislubrauð, snittur. ★ Brauðtertur, smur) brauð Pantið tímanlega Kynnið yður verð og gæði. Fjögur ný frímerki NÝ FRiMLRKI, 4 stykki með landslagsmyndum úr hverjum landsfjórðungi verða gefin út 4. ágúst n.k. Myndirnar eru af Lóndröngnm. frá Mývatni, af Búlandstindi og Dyrhólaey. Verð gildi merkjimna verður kr. 2,50, 4,00, 5.00 og 6,50. Þa^ eru öll prentuð í mörgum litum og hefur blaðið það eftir aðílum, sem séð nafa merkin. að þau muni vera einhver hin fegurstu, sem hér hafa verið gefin út. Merkin eru sólprentuð hjá Cour- voisier S 'A í Chaux-de-Fonds í Sviss og eru 50 merki í örk. MMMWWWiMWW,WWWWM»MWWM*M*WMMWWMM Myndin var tekin er samningar um verklegar framkvæmdum við Búrfell voru undirritaðir. Á mynd. ínni eru talið frá vinstri: Kay Langvad, Jóhannes Nordal, Eirjkur Briein, Árni Snævarr, Jón Marías son og Sveinbjörn Frímannsson. Standandi frá vin kri: Árni Grétar Finnsson, Geir Hallgrímsson, Birg ir ísl. Gunnarsson, Sigurður Thoroddsen, Þorsteinn Sigurðsson, Baldvin Jónsson og Halldór JónatansSon Kópavogur y ;ð Blaðburðarbarn vantar í Austurbæ. Upplýsingar í síma 40753. Auglýsingasíml ALÞÝDUBLAÐSINS er 14900 Samband kaupfélaga í Danmörku hélt nýlega up á það, að um þessar mundir eru liðin citt hundrað ár síðan fyrsta danska kjupfélagið var stofnað. Formað.tr sambandsins sést hér leggja krans á minnrsvarða séra H. Chr. Sonnes í Thisted, er stofnaði fyrsta kaupfélagið. > ALþÝÐUBLAÐIO — 24. júní 1066 |S

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.