Alþýðublaðið - 24.06.1966, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 24.06.1966, Blaðsíða 15
Skotfélag Framh. af 11. síðu. 81 eða alls 367, en þriðji varð Jóliannes Christensen 97 88 94 87 eða 366 stig. Það sem vakti athygli í þessari keppni var hve jafnvígir sumir skotmenn eru orðnir í hinum fjórum stellingum sem eru þó mjög miserfiðar. Til þess að ná j’fir 80 stigum stand- andi þarf að hæfa depil á stærð við 25-eyring 10 sinnum i röð á nærri 25 m. færi. Annað sem vak- ið hefur athygli er live lítt sigr- andi hið alkunna tríó bræðranna Valdimars og Sverris Magnússona og frænda þeirra Ásmundar Ól- afssonar er því undanfarin miss- eri liefur einhver þeirra ætíð geng ið með sigur af hólmi í öllum meiri háttar keppnum. Hin árlega vorkeppni í öllum flokkum sem jafnan fer fram að loknum vetraræfingum var haldin hinn 4. maí. Keppt er í 4 stelling- um. Hér fer á eftir skrá yfir keppnisárangur efstu manna í hverjum flokki. Meistaraflokkur: Röð talna: Liggjandi, sitjandi, hné og standandi: Ásmundur Ólafsson 100 98 85 86 eða alls 369 stig. Jóh. Christensen 100 96 92 74 eða alls 362 stig. Sigurður ísaksson 97 95 89 76 eða alls 357 stig. 1. flokkur: Egill J. Stardal 93 87 80 80 eða alls 340 stig. Björgvin Samáelsson 97 86 81 63 eða alls 327 stig. Karl Olsen 100 86 78 61 eða alls 325 stig. II. flokkur: Aðalsteinn Magnússon 92 92 73 54 eða alls 311 stig. Viktor Hansen 88 78 71 41 eða 'alls 278 stig. Þátttakendur voru alls 15. Mót- stjóri varð Bjarni R. Jónsson. Árshátíð félagsins sem jafnan er haldin að loknu vormóti fór fram að þessu sinni í Skíðaskálan- um I Hveradölum. Var hún með fjölmennasta móti og tókst vel að vanda. Voru þar veitt verðlaun f.vrir unnin afrek undanfarandi æfingatímabils. Félagið hefur nú hafið sumar- starfsemina fyrir nokkru, en þá fara æfingar fram á útisvæði fé- lagsins í Leirdal. Verða að minnsta kosti 3 mót haldin í sumar. Keppt verður 2. júní um veglegan grip sem Gunnar Sigurgeirsson, eig- andi Sportvöruhúss Reykjavíkur hefur gefið til keppni með stórum veiðirifflum. Enfremur verður keppni hinn 25. júní á 50 metra færi með cal. 22 og loks.ær áætl- að að hefja keppni í Skeet. þ. e. skotið með haglabyssum á fljúg- andi leirskífur. Það mót er áætl- að 29. júní um kvöldið, ef veður leyfir. Verður þá keppt um verð launagrip sem Níels Jörgensen verzlunarstjóri í Goðaborg liefur gefið félaginu. Nýlega var stofnað Skotfélag Hafnarf jarðar og hefur félagið liáð eina keppni við menn frá því fé- lagi. Félagið fagnar því að þeim skuli fjölga sem æfa vilja skot- fimi sem íþrótt og hlakkar til samstarfs við hið nýstofnaða fé- lag. Heyrzt hefur að fleiri slik félög séu í uppsiglingu í öðrum kaupstöðum og vildi Skotfélagið gera sitt til þess að svo mætti verða. Stjórn félagsins hefur lengi verið með áform á prjónun- um að reyna að koma á keppni við erlend skotfélög en úr því getur þó tæplega orðið fyrr en æfingaraðstæður batna innan húss. Sem stendur hefur Hitaveita Reykjavíkur hið fyrirhugaða æf- ingapláss til umráða sem vörulag- er, en vonandi rætist svo úr fyrir henni að slíkt þurfi ekki að standa íþróttum fyrir þrifum. Körfubolti Framhald af 11. siðii- Þótti sú ferð takast mjög vel og er því endurtekið í ár og nú leik- ið á íslandi og Skotlandi. Liðið kemur til Keflavíkurvall- ar í dag, miðvikudag, leikur við unglingaúrvalið á föstudagskvöld, en fer til Skotlands á laugardags morgun með Flugfélagi íslands. Úrvalslið KKÍ er þannig skipað: Gunnar Gunnarsson, KR Kolbeinn Pálsson, KR Kristinn Stefánsson, KR Agnar Friðriksson, ÍR Arnar Guðlaugsson, ÍR Hallgrímur Gunnarsson, Árm. Sig. Örn Thorarensen, KR Skúli Jóhannsson, ÍR Anton Bjarnason, ÍR Kristinn Sigurðsson, Árm. Landsmót Framhald aí i. slðu lægt er hóll nokkur, sem þjóriá mun sem áhorfendasvæði. Sérstakt hringsvæði hefur verið útbúið fyrir sýningu kynbótahrossa og þar verður dómpallur á tveim hæð um: sú neðri fyrir fréttamenn en þar munu tveir menn þjóna sem upplýíingastjórar um allt, er varðar gang mótsins og einstaka keppendur, m.a. hafa á reiðum höndum fjölr. upplýsingar fyr- Frá þessu svæði mun svo ganga an Hólastaðar þar sem Víðines á fellur um velli, verða bílastæði og tjaldstæði fyrir ge-ti mótsins Frá þessu svæði mun svo ganga fólksflutningavagn, sennilega á 10 mínútna fresti gegnum lilað i ið á Hólum og á sýningarsvæðið Tialdstæðið verður 'kipulagt með aðstoð skáta frá Sauðárkróki, þann ig að tjöld hvers félags verða á sínu afmarkaða svæði og tjöld in tölusett. Fyrir aðkomuhross verða til reiðu 5 girðingarhólf, eUt fvrir hvern landchhita. Félög in verða siálf að siá um gæzlu he"tanna. Þá ere og í grenndinni stór sk’larétt. svo að aðstaða fvr ir hrossin ætti að verða ágæt. Gert. er ráð fvrir. að aðkomuhross skinti nokkrum búsundum. Mótið fer fram með venjuleg um hætti, en til 'kemmtunar verð ur efnt tii naglaboðreiðar milli Norðlendinga og Sunnlendinga. Dansað verður á laugardags- og sunnudagskvöld i Héðinsminni í Blönduhlíð og í Blfröst á Sauðár króki og einnig að Húnaveri í Bólstaðahlíð, en á Hólum verður , engin aðstaða til dansleikja. Mess að verður að Hólum á sunnudags morgun og síðar um daginn mun landbúnaðarráðherra ávai’pa móts gesti. Mikil þáttaka mun verða í lahds mótinu áætlað 5—6 þúsund Hópar manns munu koma ríðandi Úr öllum landsfjórðungum. Stærsti hópurinn, sem ríða mun í einni lest norður, er á vegum Fáks 30 — 40 manns, hvor með 3—4 til reiðar Ætla þeir Fáksmenh sér viku til ferðejrinnar. Þeith mun fylgja bíll sem flytur fdr angur og kemur í áningarstaði með tjöld og matföng. Farið verð ur um byggðir undir leiðsögn Páls Sigurðssonar, Fornahvammi, eto hann mun fundvís á gamlar reið götur og góðar, svo að ekki verð ur þræddur bióðvegurinn alla léið ina. Um 40 kvnbótahestai’ munu koma til mótsins, sumir með af kvæmum; 55 hrysur og 63 gæðing ar geta kom'ð. Kapnreiðahestár verða um 50, eða alis um 200 hestar sem koma fram á mótinU. Stjórn Landsfambands liestá manna væntir bess. að landsmót ið megi bera menningarlegan svip ■og að það verði mönnum til S- næg.iu og hinum fornfræga Hóla ‘’tað til sóma. ^mnin^ar Framhald af 1. sfðu fyrst fjalla á ný um þetta ramma samkomulag, en svo verður vænt anlega tekið tii við að ræða önn ur atriði samninganna. Samtök ungra jafnaðarmanna á Norðurlöndum hafa ákveðið að efna til tj aldbúðamóts dagana 13. — 23. júlf á eyjunni Útey sem er um 40 km frá Osló. Á þessari fögru, skógi vöxnueyju munu koma saman um 1500 ung- menni frá Norðurlöndum og víðar að úr Evrópu. Á Útey er ákjósanleg aðstaða til útiíþrótta, — fullkomnir knattspymu-, han dknattleiks-, og körfuknattleiksvellir. Auk þess eru fyrirhugaðar stuttar ferðir um nágrennið og til Oslóar. Á hverju kvöldi mun verða efnt til fjöl- breyttrar kvöldvöku og munu ýmsir þekktir norrænir jafnaðarmenn, stjórnmálamenn og íþróttamenn, heim- sækja mótið. Þátttökugjaldi er mjög stillt í hóf, heildarkostnaður íslenzks þátttakanda er AÐEINS KR. 7.367,00 þar innifalin flugferð heimn og heim dvalarkostnaður allur og þátttökugj ald ásamt leigu á viðleguútbúnaði. Þetta er tvímælalaust ein ódýrasta og skemmilegasta utanlandsferð sem íslenzku æskufólki gefst kostur á nú í sumar. Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Samhands ungra jafnaðarmanna, Hverfisgötu 8—10, Reykjavík símar: 1-50-20 og 1-67-24. (WMWWW*W*WWWW»WmVWWWWWViWWWWMWlWWWMWWWWW4MMmilWWWiWWW»WWimWWMimWWMWWWW»WmiWMi ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. júní 1966 15* S umarbúðamót norræns æskufólks / Utey

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.