Alþýðublaðið - 23.07.1966, Qupperneq 3
Vegaspotta vantar í f jögur ár
Reykjavík. — P.J. - GbG.
Við náðum í fyrradag tali af
Páli Jóhánnessyni, bónda að
Bæjum á Snæfjallaströnd, og
inntum hann fregna af búskap
manna þeim megin við ísafjarðar-
djúp.
Heyskapur er með seinna móti
í ár vegna langvarandi vorkulda
og undanfarið hefur verið sunnan
og suðvestan átt og þurrkleysur.
Flestir eru byrjaðir að slá en í
dag er ég að hirða fyrstu töðuna,
sagði Páll. Sprettan er góð, en
sums staðar er dálítið kal í túnum.
Flestir bændur hafa bæði sauðfé
og kýr, meðaltalið er 10—20 kýr
og um 250 fjár á hvern bónda. —
Mjólkin er seld til ísafjarðar, en
t)júpbáturinn Fagranes kemur
tvisvar í viku og sækir mjólkina.
Þessi þjónusta er nægileg að vetr-
inum, en að sumrinu þyrftu ferðir
að vera fleiri, því að ekki er
nógu góð aðstaða til að geyma
mjólkina þetta lengi án þess að
hætta sé á, að hún skemmist. —
Djúpbáturinn leggst nú orðið alls
staðar að bryggju. Hver bóndi
kemui' með sína mjólk og tekur
við sínum vörum. ef einhverjar
eru. Bændur eru alveg hættir að
eiga báta sjálfir; þykir það ekki
borga sig. í Djúpi fæst enginn
fiskur, ekki einu sinni þarabút-
ungur í soðið, svo að tilgangslaust
er að eiga bát þess vegna. Og
vanti lækni eða aðra hjálp á öðr-
um tímum, en djúpbáturinn geng-
ur, þá er hringt til ísafjarðar og
málin leyst á þann hátt.
Samgöngur við Snæfjallaströnd
eru ekki nógu góðar á landi og
kenna menn um tómlæti vald-
hafa einu saman. Nú er búið að
brúa Kaldalón, en það mannvirki
kostaði milljónir. Síðan er látið
ólokið við smá vegarspotta, sem
er innan við einn km. að lengd,
en þessi spotti er ófær nema jepp
um og sæta verður sjávarföllum
til að komast þar yfir. Þetta kost-
ar aðeins fáein dagsverk að kippá
í lag, en ekkert hefur verið gert
í fjögur ár, mönnum til stórra
óþæginda, því að vegurinn er að
öðru leyti sæmilegur.
Búið er að raflýsa í Snæfjalla-
hreppi. Sl. haust var tekin í notk-
un vatnsaflsveita, sem hreppurinn
hefur á eigin spýtur komið sér
upp. Þetta er 80 kw. stöð, en hún
sér öllum hreppnum fyrir raf-
magni til ljósa, eldunar og upp-
hitunar. Meira að segja var
lagður sæstrengur út í Æðey oggreiðir hver og einn eftir notk-
kostaði sá spotti á annað hundrað
þúsund krónur. Veitan öll kostaði
um tvær milljónir króna. Þetta er
þó nokkurt átak, þegar þess er
gætt, að í hreppnum eru aðeins
fimm bændur og þar búa aðeins
milli 40 og 50 manns. Rafmagns-
verðið er reiknað eftir mælum og
un. Lætur nærri, að kostnaður sé
svipaður og áður við upphitun,
eldun og ljós, eða 20—25 þúsund
krónur á hvern bæ. Veitan er
byggð við Mýrará, en þetta er eina
vatnsaflsveitan í inn-Ðjúpi. Fáir
munu þeir þó vera, sem ekki hafa
diesel-rafstöðvar nú orðið.
Nýtt jarðhita-
svæði
Reykjavík — OÓ.
NÝTT jarðhitasvæði hefur
myndast á Þeistareyjum á Reykja
heiði. Hefur allur gróður skræln-
að þarna á nokkur hundruð fer-
metra svæði. Er hiti við yfirborð
ið um 60 gráður og víða um og
yfir 100 gráður og leggja gufu-
strókar upp úr jörðinni.
Síðastliðinn þriðjudag fór Hjört
ur Tryggvason frá Húsavík um
þetta svæði og tók eftir að allur
gróður var að drepast og sá strax
hvað þessu olli. Um tvö hundruð
metra frá þessu svæði er hvera-
svæði.
Alþýðublaðið hafði í gasr sam-
band við Hjört og sagði hann að
hann hefði á miðvikudag farið
aftur á jarðhitasvæðið og var Ey-
steinn Tryggvason, jarðfræðingur
í för með honurn. En þeir eru
nyrðra
bræður. Gerðu þeir nokkrar athug
anir á nýja hitasvæðinu. Ekki
höfðu þeir hitamæli meðferðis en
stungu fingrunum niður í jörð-
ina og giskuðu á að hitinn við yfir
borð væru um 60 gráður. Víða vaf
auðsjáanlega miklu heitara, en af
skiljanlegum ástæðum mældu
þeir þar ekki með þeirri einu að-
ferð sem tiltæk var. Öruggt má
telja að dýpra í jarðveginum sé
hitinn mm meiri.
Þeistarreykir eru um 40 km.
leið frá Húsavík. Enginn byggð
er þar nærri og staðurinn af-
skekktur. Áður var þó búið á
Þeistarreykjum, en bærinn lagð-
ist í eyði fyrir nær 90 árum.
Hjörtur Tryggvason er glöggur
náttúruskoðandi, og mun liann
halda áfram athugunum á nýja
hita^væðinu og gera fullkomnari
mælingar.
Klúbbarnir Öruggur
akstur orðnir eílefu
Þriðjudaginn 19. júlí, sl. var
haldinn að Hótel Sólberg, Pat-
reksfirði, stofnfundur Klúbbsins
ÖRUGGUR AKSTUR. Fundar-
stjóri var Svavar Jóhannsson
bankastjóri, en fundarritari Ragn
ar Guðmundsson bóndi.
Félagsmálafulltrúi Samvinnu-
trygginga, Baldvin Þ. Kristjáns-
son, fluti framsöguerindi um um
ferðarmál almennt, hugmyndina
með stofnun klúbbanna, og hin
nýju umferðarslysavarnarsamtök
„VARÚÐ Á VEGUM“. Umræður
urðu nokkrar, en að þeim lokn-
um var einróma samþykkt a*
stofna „Klúbbinn ÖRUGGAN
AKSTUR“ á Patreksfirði, fyrir
Vestur-Barðstrendinga þá, er
hlotið hafa viðurkenningu eða
verðlaun Samvinnutrygginga fyr-
ir öruggan akstur um 5 eða 10
ára skeið- Lög voru samþykkt og
stjórn kosin. Hana skipa þessir
menn;
Jóhannes Halldórsson bifreiða-
eftirlitsmaður, formaður, Ragnar
Guðmundsson bóndi, Brjánslæk,
ritari. Erlendur Hjartarson '
smiður, Patreksfirði, meðstjórn-
andi.
Varastjórn skipa:
Jóhann Þorsteinsson, bóndi
Litlu-Hlíð, Barðastrandarhrepþi,
Guðjón Guðbjartsson, sjómaðúr.
Patreksfirði, Guðmundur Gefets-
son, verkamaður, s. st.
Að lokum drukku fundarmenn
kaffi í boði Samvinnutrygginga.
Ók á steinvegg
Það slys varð í gærkvöldi að.
hemlar biluðu i bifreið, sem var
á leið niður Baldursgötu. Lenti
bifreiðin á steinvegg og er mjög
ijla farin. Tvær konur og eitt
barn voru í blfreiðinni og vötii
þau flutt á slysavarðstofuna ióg
önnur konan var flutt á Landa-
kotsspítala að athugun lokinni í
slysavarðstofunni, en konan hlaut':
mikið höfuðhögg við áreksturiiin..!
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. júlí 1966