Alþýðublaðið - 06.08.1966, Page 10
Dagfalöðin
Framhald af 5. síSu.
viö höfum miklu betri lífskjör að
öllu ððru leyti en fólkið sem fyrir
sunnan býr þá virðist eitthvað
vaiita sem dregur heim Reisa
þar verksmiðjur sem ynnu matinn
tilbúinn fyrir erlenda neytendur
í þéim umbúðúm sem þeim henta
.... Við þurfum nýtt og glæsilegt
félagsheimili á hverjum stað, sem
gæti ýtt undir félagslíf á stöðun-
um, einkanlega að vetrinum þegar
lítið er við að vera en myndi strax
skapa betx-i aðstöðu fyrir félags-
anda og samkomur ef félagsheim
ilin væru í viðunandi lagi en það
eru þau að heita má hvergi....
Þá eru áætlanir uppi á Siglxxfirði
og Seyðisfirði og endurbygging
dráttarbrautar í Keflavík....
Leggja verður áherzlu á að fylgj-
ast með hverskonar nýjungum á
sviði vegagerðar og þær síðan hag
nýttar eftir fremsta megni ....
Þessar ráðstafanir verða til þess
að auka trú manna á brezka gjald-
rríiðilinn .... Segir hershöfðing-
ixm að kommúnisminn eigi sér
djápar rætur í íbúum Mið-Jövu . .,
Sdjgir hun að hún hafi verið á
efri hæð hússins er skólasystir
hennar hafi farið til dyra eftjr
að dyrabjöllunni hafi verið hringt
.... Y. ávítaði bandaríska Nó-
belsskáldið fyrir að hafa þegið
þunnu hljóði um styrjöldina í
Vietnam .... Þótt brezka og ind-
verska stiórnin hefðu þó uppi orð
um nýjar friðarumleitanir, þá var
erfitt að koma auga á staðreyndir,
sem líklegar væru til að leiða til
árangurs af slíkum viðræðum ....
LýsCí C. því yfir að öll hernaðar-
bandalög væru tímaskefekja sem
væri ósamrýmanleg sjálfstæði þjóð
anna .... Lítill vafi þykir á því
leika að Sovétríkjunum komi bet-
ur eininuarvfirlvsing er sameining
viðkomandi rfkja Þar var straum
urinn af unglingum að koma út
úr kennslustofunum, hlægjandi,
skrafandi og leggjandi af stað á
skellinöðrum. Gamla húsið sem í
gamla daga hafði verið heiðrað
með nafninu Lærdómshúsið, hafði
nú fengið á sig nýja álmu ....
Hann hlýtur að hafa verið svona
króaður milli tveggja heima, nú-
tíðarinnar og framtíðarinnar ....
Þér sjáið sjálfur hvernig allt hér
er á öfuga endanum... Eg gaf
í skyn fúsleika minn til að ganga
að hverju sem hann hefði að bjóða
.... Hann er búinn að vera liggj-
andi vikum saman .... og eyðir
öllum sinum tíma í að rífast...
Hvorum okkar það var ætlað var
í óvissu. Ég á að hafa fyrirlestur
klukkan fimm ... Var það kannski
orsökin til blóðtappans?
★
Hér að framan hefur sitthvað
verið rætt um efnistök og stfl-
færi blaðanna, fyrir nú utan dæma
safnið sem síðast var í'akið, og
mætti að vísu ræða um þau efni
langt mál enn. Þegar um þetta
mál er f jallað opinberlega er venj-
an sú að leggja mest upp úr því
sem aflaga fer. En tæmandi mál-
farsrannsókn blaðanna mundi ekki
láta sér nægja að tíunda málvill-
ur, málglöp og lýti; hún mundi
reyna að komast að einhverskon-
ar „meðal-málfæri” blaðanna. Slílc
athugun kynni einnig að reynast
fróðlegri en villuskráin öll með
tilhlýðilegum átölum og umvönd-
unum.
Blöðin eru að sönnu misjafn-
lega á sig komin að þessu leytl.
Af þeirri skyndikönnun að dæma
sem hér var lýst virðist Þjóðvilj-
inn sýnu bezt staddur, Alþýðubl.ið
og Tíminn verst; en miklu ýtar-
legri athugun þyrfti til áður en
slíkum tölum væri treystandi til
fulls. Enda mun reynslan sýna
að varlegt sé að fullyrða hvert
blaðanna sé „bezt skrifað”. Öll
blöðin flytja öðrum þræði læsi-
legt efni, eiga á að skipa ritfærum
höfundum. Til eru menn sem er
blaðamennskan íþrótt, jafnvel hin
ævarandi stjórnmáladeila, eins
og Magnús Kjartansson á Þjóðvilj-
anum ,enda bera andstæðingar sig
stundum aumlega undan Magnúsi,
líkast því þegar krakkar fara org-
andi undan „hrekkjusvíni” á göt-
unni. En dæmi Magnúsar sýnir
líka.hve blað getur átt mikið undir
einum manni komið: þegar hann
er ekki viðlátinn eru stjórnmála-
skrif Þjóðviljans óðara komin á
sama mál og hinna blaðanna.
Og broslegt er varnarleysi
blaðsins sé Magnús ekki næsti.
Nú síðast stendur Þjóðviljjnn
uppi höggdofa fyrir Freysteini
Þorbergssyni.
Það sætir ekki tíðindum að fyrir
beri Iæsilega grein í dagblaði —
né heldur málglöp og villur út af
fyrir sig. En það vekur furðu við
blaðalesturinn að ekkert blaðanna
virðist setja sér né upfylla neina
tiltekna lágmarkssskröfu um með
ferð máls, fremur en efnisval eða
meðferð efnisins. Því er það að
„blaðamál” er hnjóðsyrði í ís-
lenzkuoglökheimildaðvísa
lenzku og lök heimild að vísa til
um hvaðeina „að það standi í blöð-
unum”.
Þingmenn
Framhalð af 1. síðn
aði m. a. Heilsuverndarstöðina og
ýmsa skóla.
Utan Reykjavíkur mun hópur-
inn heimsækja Borgarfjörð, Nes-
kaupstað, Akureyri, Mývatnssveit
og fleiri staði.
Þetta er ekki opinber heim-
sókn, heldur mun einhvers
konar ferðaklúþbur innan sænska
Ríkisdagsins standa að ferðinni.
Handbók
Framliald af bls. 3
Ú. Magnússon gatnamálastjóri um
frárennsliskerfi og Bárður Daniels
son verkfræðingur um brunavarn
ir. Birt er ávarp er Hörður
Bjarnasón formaður Skipulags-
stjórnar ríkisins flutti við fundar-
setttingu.
Formála að lxandbókinni skrifar
Páll Líndal borgarlögmaður, full
trúi Sambands íslenzkra sveitarfé
laga í Skipulagsstjórn ríksins. Seg
ir þar m.a. um útgáfuna:
„Skipulagsmál hafa til skamms
tíma ekki notið þess skilnings, sem
þau verðskulduðu, hvorki hjá
valdamönnum eða almenningi.
Meðal annars þess vegna hafa víða
orðið slæm mistök, sem erfitt verð
ur að bæta úr. Það er hins vegar
hygginna manna háttur að læra
af í-eynslunni og láa eig<n víti
annarra til vai'nar verða.
Til þess að koma fyrir frekari
mistök er eitt virkasta ráðið að
auka fræðslu um skipulags- og
byggingarmál. Ráðstefnan, sem
áður getur, var tilraun til að bæta
úr að þessu leyti.
Ég vonast til þess, að sömu að
ilar muni, áður en langur tími líð
ur, boða að nýju til ráðstefnu um
þessi mál og styi’kja þar með þann
grundvöll, sem þegar hefur verið
lagður, að bættum starfsháttum
um meðferð skípulags- og bygging
armála á íslandi.”
iltvarpið
Langardagur 6. ágúst
7.00 Moxlgunútvarp
12.00 Hádegisútvarp,
13,00 Óskalög sjúklinga
Þorsteinn Helgason kynnir lögin.
15.00 Fréttir,
Lög fyrir ferðafólk
— með ábendingum og viðtalsþáttum
um umferðarmál.
Andrés Indriðason og Pétur Sveinbjarnar
son sjá um þáttinn.
16.30 Veðurfregnir <
Á nótum æskunnar
Dóra Ingvadóttir og Pétur Steingríms-
soíi kynna létt lög.
17,00 Fréttir.
Þetta vR eg heyra
Étú Ágústa Snæland velur sér hljómplöt-
ur.
18,00 Söngvar I léttum tón
Burl Ives syngur lö|g éftir Irving Berljn,
Roger Wagner kórinn syngur amer{sk
þjóðlög. Marlene Dietrieh syngur tvö lög
úr Bláa englinum og, Frank Sinatra syng
ur með hljómsveit Count Basie.
18.45 Tilkynningar
19.20 Veðurfregnlr.
19.30 Fréttir
20,00 í kvöld
Brynja Benediktsdóttir og Hólmfríður
Gunnarsdóttir sjá um þáttinn.
20.30 Samkór Vestmarmaeyja, lúðrasveit staðar
ins ásamt einsöngvaranum Reyni Guðsteins
syni synlgja og leika lög eftir Oddgeir
Kristjánsson.
Martin Hxmger stjórnar og leikur með á
píanó.
20,55 Gengið á gleymdar slóðir
samfelld dagskrá I samantekt séra Krist
jáns Róbertssonar, Auðar Guðjónsdóttir og
Aðalgeirs Kristjánonssonar.
22,00 Fréttir og veðurfregnir,
22.15 Danslög.
24,00 Dagskrárlok,
10 6. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Tvö umferðaslys
Tvö umferSarslys urðu í R-
vík í gær. Um kl. 13 varð Gunn-
ar Hallgrímsson, Fellsmúla 9, fyr
ir strætisvagni á móts við Múla
v. Suðurlandsbraut. Meiðsli voru
ókunn. Og um kl. 19 varð Haf-
steinn Sölvason fyrir bifreið við
Sætún 4 og brotnaði á hægra
fæti. Hann var fluttur á Lands-
spítalann.
Spiegel
Framhald af 2. sjðu
aðgerðanna gegn blaðinu
var sögð sú, að í greininni væri
skýrt frá hernaðarlegum leyndar
málum.
Spiegel-málið svokallaða fékk
brátt alvarlegar, pólitískar afleið
ingar, og leiddi að lokum til
stjórnarkreppu, þegar Franz- Jo-
sef Strauss, landvarnarráðhera
sagði af sér. Strauss mun hafa
átt mikinn þótt í því að skipu-
leggja aðgerðir lögreglunnar, að
því er fullyrt var.
Lögreglan
Framhald af bls. 3
lögreglumenn. í umferðardeild-
inni starfa nú 24 lögregluþjónar,
í slyifu'aiinsóhnardeild eru 4
menn og 6 lögreglumenn eru í
vegaeftirliti og starfa þeir víða
um landið eftir því sem þörf kref
nr hverju sinni. AIIs hefur deild
in sjö bíla til xxmráða og níu bif-
hjól.
Þegar byggingin vergur full-
gerg verða þar til húsa auk um-
ferðardeildar og annarra deilda
lögreglunnar, sem sjá um lög-
gæzlu, rannsóiknarlögreglan og
ein hæð hússins verður notuð af
Landhelgisgæzlunni.
Alþýðublaðið hafði í gær sam-
band við Óskar Ólafsson, yfir-
mann umferðardeildar lögreglunn
ar. Sagði liann, að þótt hér væri
aðeins um bráðabirgð'ahúsnæði
að ræða, væri það mikil bót á því
sem áður var. Hefðu starfsskil-
yi-ði deildarinnar batnað mjög,
þaff er aff segja innanhúss.
Verkefni umferffalegregluþjóna
væru óíæmandí og sífellt bættust
við ný og ný vandamál, sem þarf
að leysa.
Sagffi Óskar aff mikill þáttur
starfseminnar, væri aff fylgjast
meff framkvæmdum í horginni
éins og götulagningum og hús-
bvtrgingum. Oft væru baff heilar
götur sem rifnar væru upp,
vegna framkvæmda af ýmsu tagi,
og væri há verkefnj umferðardeild
ar að sjá um aff umferffln tefff-
ekki alltof mikiff af þessum
völdura.
Að'spurffur kvaff Óskar mestu
vandræffin í umferffinni skapast
af kæruleysi. Er þá bæði átt viff
kæruleysi ökumanna og gangandi
vegfarenda. Þetta kæruleysí kem
ur fram í ýmsum myndum, bæffi í
sjálfri umferffinni og eins Iivern
ig menn skildu viff bíla sína í al-
gjöru hirffuleysi og til trafaja öðr
um ökutækjum.
Óskar hefur nú starfaff viff lög-
gæzlu í 23 ár. Kvaff hann þau
störf hafa breytzt mjög á þessum
tíma, eins og revndar önnur sviff
þjóðlífsins. Bifreiffaeign, og þar
af Ieiðandi nmferff hefur aukizt
gífurlega, einkarlega á síðari ár-
um. Þar á m«ti kemur aff miklu
fleiri affilar skinta sér af umferff
ar- og skltwlagsmálnm í sambandi
viff hana nú en áffur var.
Meff siankinnl umferff þarf
meiri lögvæzlu og umferffarsitjórn.
En nú er «vo háttaff að erfitt er
að fá menn til að stunda lög-
gæzlustörf. r>æði á hessu svi'ði og
öffrum og háb- man.nekla nokkuð
störfum Inereelunnar og eru uppi
ráðagerðlr fii úrhóta.
Hópferðir til að
skoða garða
Garyrkjufélag íslands gengst fyr
ir hópferðum í ágústmánuffi til
að skoða fallega einstaklingsgarffa
í Hafnarfjrði, Kópavogskaupstað
og Reykjavík, og ennfremur grasa
garffinn í Laugardal.
. Öllum er heimi þátttaka í þess-
um hópferðum.
Mörgum mun vera hugleikiff að
skoða marga fegurstu garða R-
víkur og gefst hér gott tækifæri
til þess. Einnig eru fallegir garðar
í Kópavogskaupstað og sjálfsagt
munu margir nota þetta einstaka
tækifæri til þess að skoða garð-
ana í Hafnarfirði með sínu sér-
stæða og margbreytilega lands-
lagi.
Hér kemur svo áætlunin:
Laugard. 6. ágúst:
Farið frá Miðbæjarskólanum kl.
2 e.h. til Kópavogskaupstaðar og
Hafnarfjarðar.
Laugard. 13. ágúst.
Farjð frá Miðbæjarskólanum kl.
2 e. h. og skoðaðir garðar i R-
vík,
Laugard. 20. ágúst..
Mætt.Við grasgarðinn í Laugar
dal kl. 2 e. h. og garðurinn skoð-
aður. * .
í öllum þessum ferðum verða
valin kunnir leiðsögumenn.
Maðurinn mirm
Björn Friðriksson
t'yrrverandi tollvörður andaðist.5, þ.m.
Ólöf Marfa Sigurvaldadóttir.