Alþýðublaðið - 13.08.1966, Qupperneq 8
Dlifi® Crocetti var af ítöiskBim uppruna.
A unglingsárunum í 0hi.® éx hann upp
við siark ©g lögbret, var um tíma hnefa-
leikari, sprúttsali ©g innbr©fsþ|éfur.
Fangelsisvíst eöa iafnvel rafmagnsstóll-
inn blöstu við... i dag mun hann vera
einn vimsælasti ©g dá&asti listamaóur
inn í Sio’lywaod og heitir Dean IVIartin.
g 13. ágúst 1966 - ALÞÝÐU3LAÐIÐ
Dean Martin er á góðri leið með
að verða ókrýndur konungur í
Hollywood, bæði sem leikari og
söngvari,. Hann stjórnar sjónvarps
þætti, sem er í efsta sæti á vin-
sældalistanum Hann er sá eini af
gamlingjunum, sem hefur í fullu
tré við Bítlana og önnur síðhærð
fyrirbæri, um vinsælustu lögin á
listanium. Hann er efítirhóttasti
listamaðurinn í næturklúbhnum,
næst á eftir leiðtoga hans Frank
Sinatra.
Þetta geta svo sannarlega kall
ast blómatimar fyrir ungan mann
á fimmtugasta aldursári, upprunn
inn í Steubenville, Ohio, sem var
atvinnuhnefaleikari 15 ára, sprútt
sali 16 ára, fjárhættuspilari, með
póker sem sérgrein, þegar hann
var 17 ára og á góðri leið með að
hafna í fangelsi fyrir árangursrík
innbrot aðeins 18 ára gamall
Hvað veldur því þá, að Dean
Martin er orðinn eitt stærsta nafn
ið í skemmtanalífinu í dag? Það
eru til fjölmargir, sem syngja bet
ur en Dean, margir sem eru ró-
legri, margir, sem líta betur út en
þessi glaðværi karl og margir, sem
eru betri leikarar.
Hinn frægi leikari Anthony
Quinn, hefur skýrt fyrirbærið
Dean Martin á þessa leið:
„Við erum allir bundnir við regl
ur og ábyrg'ð. Dean er hins vegar
náunginn, sem getur verið haug
fullur ,en komið engu að síður ár
sinni vel fyrir borð og orðið millj
ónamæringur. Hann er í augum
okkar ,þessara klafabundnu þræla
tákn þess mánns, sem getur lifað.í
gleði og glaumi, en samt orðið
stór.”
Snúum okkur nú að þjóðsögunni
um drykkjuskap Dean Martins.
Dean Martin með whiskyglas í
hendinni er vörumerki hans. Hann
liefur líka mótað sviðsstíl sinn
með þessu vörumerki, og hann er
ekki fvrsti Ameríkumaðurinn sem
það hefur gert.
Drykkjusýki Martins er ekki
eins alvarleg og margur hyggur.
Hann drekkur ekki meira en al-
mennt gerist í Ameríku, en þegar
hann drekkur, þá gerir hann það í
augsýn alþjóðar. Það gerist í sjón
varpsþáttum hans og í kvikmynd.
um Það gerir gæfumuninn hjá
Doan og venjulegum manni, að
þegar Dean drekkur, þá sjá um
það bil 50 milliónir manna glasið í
höndum hans. Á þennan hátt hefur
hann skapað mynd sína sem á-
bvrgðarlaus gleðimaður er lifir ein
göngu fvrir brjóstbirtuna Ef Dean
drykki oins mikið og almennt er
talið, þá hefði hann ekki verið
einn hozti tennisleikarinn í Holly
wood og jafnoki atvinnumanna í
golfi. Meistarinn Arnold Palmer
fullvrðir, að Dean hefði gefað orð
ið heimsins hezti golfleikari ef
haun hefði lagt sérstaka stund á
það
-★- ; •
Næstum öll skemmtiatriði Mart
ins í næturklúbbum snúast um á-
fengi að einhverju leyti Hér eru
nokkur sýnishorn af stefnumóti
klíkunnar Sinatra, Sammy Davis
og Dean Martin á sviðinu í Las Veg
as:
Kynning: Háttvirtu gestir, við
kynnum einn bezta söngvara í
heimi, einn bezta leikarann í Am
eríku, einn af rólegustu mönnum
í Las Vegas og mesta drykkju-
rút sem þið hafið nokkurn tíma
séð — Dean Martin.
Sinatra: Dean, allir tala um hvað
þú drekkur mikið Hvers vegna
drekkur þú eiginlega?
Martin: Ég drekk til þess að
gleyma
Sinatra: Til að gleyma (hverju?
Martin: Því hef ég gleymt fyrir
löngu.
★
Mörgum finnst nóg um róleg
heit Martins í sjónvarpsþáttum
hans ,en þau eiga ekki hvað minnst
an þátt í hinum miklu vinsæld\im,
sem hann hefur, og ekkert bend
ir til þess að úr þeim dragi.
Dean gleðst ákaflega yfir því, þar
sem honum hefur tekizt það sem
fyrrverandi félaga hans Jerry Lew
is, mistókst, að halda út vinsæl
um sjónvarpsþætti. Dean er nefni
lega ekkerf hlýtt til þessa gamla
félaga, þrátt fyrir að í tíu ár voru
þeir í samvinnu vinsælustu skop
leikarar í Bandaríkjunum.
Dean verður bitur, þegar hann
er spurður um samband þeirra
félaga:
Nákvæmni Jerry Lewis gerði
mér gramt í geði, og mér fannst
lífið algjörlega tilgangslaust. Við
unnum okkur inn 20 milljónir doll
ara á ári en þetta var hreint víti
Ég varð dauðþreyttur á því, að
vera alltaf í skugganum og leggja
heimskulegar spurningar fyrir
Jerry.
Dean sannaði það fljótt, að
hann gat vel bjargað sér án Jerry
Hann öðlaðist mikla frægð fyrir
kvikmyndaleik í myndum eins og
Bells are ringing. Who was That
Lady. Rio Bravo og síðast en ekki
sízt Matt Helm.
Fyrsta kvikmyndin, sem Dean
lék í upp á eigin spýtur var Min
eilimyndin Some Came Running.
Hann hafði komizt á snoðir um, að
vinur hans Sinatra var á höttun
um eítir leikara, sem gæti leikið
hlutverk fjárhættuspilarans Bama.
Hann frétti um svipað leyti, að Sin
atra, ætlaði að hafa boð inni fyrir
nokkra kvikmyndaleikara. Og Dino
var ekki lengi að átta sig á hlut
unum. Hann fór óboðinn heim til
Sinatra hratt upp hurðinni og hróp
aði með ósviknum suðurríkja-
hreim:
Jæja, skúrkurinn þinn, þú ert
að leita að náunga, sem talar suð
urrríkja málízku, drekkur eins
og úlxaldi og spilar póker eins og
atvinnumaður Þú þarft ekki að
leita lengur Hann stendur fyrir
framan þig