Alþýðublaðið - 08.09.1966, Side 9
Gunnar Frederiksen.
— Við hverja hefur þér fallið
bezt.
— Ég kann nú bezt við Dani
allra útlendinga. Þeir eru heið-
ursfólk. Og það er dálítið ein-
kennileg tilviljun, að þeir, sem
tala verst um Dani, þekkja þá
yfirleitt ekkert. Ég man t. d. eft-
ir manni einum, sem ég var meö
í samkvæmi, hann átti ekki nógu
sterk orð yfir ómennsku danskra
og úthúðaði þeim á alla vegu. Við
nánari athugun kom í ljós, áð
maðurinn hafði aldrei til Dan-
merkur komið, kunni varla órð í
dönsku og þekkti engan Dana per-
sónulega. *
í farþegarýminu ganga flug-
freyjurnar um beina og hafa ær-
ið að gera, enda virðist næring-
arþörf farþeganna mikil þær stund-
ir, sem flugferðin varir. Okkur
tekst þó að taka eina þeirra, Þór-
hildi Þorsteinsdóttur, tali smá-
stund.
— Ég byrjaði sem flugfreyja
hjá félaginu árið 1963, en hafði
áður starfað á skrifstofu þess í
fimm ár.
Ingólfur Guðmundsson
i
— Byrjið’ þið strax í utanlands
flugi?
— Nei, fyrst fljúgum við ein-
göngu innanlands.
— Er innanlandsflugið eins
skemmtilegt?
— Það er ekkert síður, einkum
eftir komu Friendship-skrúfuþot-
anna.
— Hver finnst þér fallegasta
flugleiðin innanlands?
— Leiðin á milli Reykjavíkur
og Hornafjarðar.
— Kemur það ekki stundum
fyrir, áð þið verðíð að dúsa dög-
um-sáman úti á landi vegna veð-
tfrS?
— Það á sér einstaka sinnum
stað, einkum í mesta skammdeg-
inu, þegar veður breytist oft fyr-
irvaralitið. í eina skiptið, sem ég
hef orðið fyrir slíku, þá var það af
öðrum sökum. Það var í desem-
ber 1963, að við urðum að vera
um kyrrt á Egilsstöðum dögum
saman vegna verkfalls Dagsbrún-
ar. Við vorum búin að sætta okk-
ur við það að halda jólin hátíðleg
fyrir austan, en svo leystist deilan
og við komum suður 21. desember.
Frægasta klukka Lundúna og heimsins, Big Ben.
Þórhildur Þorsteinsdóttir.
— En nú flýgur þú eingöngu á
millilandaleiðum?
— Já.
— Eru farþegarnir ekki mis-
jafnlega erfiðir viðfangs?.
— Það má ef tii vill orða það
svo. íslendingar kaupa mest allra
farþega, engu líkara en að
krepputímar ríktu í landinu, og
þannig má segja, að þeir séu erf:
iðari en útlendingar, þótt það sé
hins vegar ánægjulegt hve al- -
mennt það er hér á landi, að fólk
fari á milli landa og án þess-að-
vera n.ýztu nöf f járhagslega. Ann-
ars verð ég, að segja .það,, að ÍBret-•
ar finnast mér beztu farþegarnir,
sökum kurteisi og ljúfmennsku,
sem er þeim svo eðlileg.
— Ber það aldrei við, að far-
þegi bryddi á bónorði Við flug-
freyju?
— Það held ég ekki. Þetta eru
ekki það langar flugleiðir, að tími
sé til að fara inn á svo „intím”
svið. Aftur á móti er ekki óal-
gengt, að farþegar, einkum út-
lendingar, bjóði flugfreyjum út
eins og það er kallað. Það er hins
vegar rétt að það fylgi með, að
slík boð eru yfirleitt ekki þegin!
— Eruð þið aldrei hræddar við
að fljúga?
— Nei, hreint ekki, við treyst-
um út í æsar okkar ágætu flug-
mönnum. Við höfum oft Ient í
slæmum veðrum, sérstaklega í
innanlandsflugi og það hvarflar
aldrei að okkur ótti. Það er eng-
in ástæða fyrir fólk að vera
hrætt við að fljúga, þar sem ör-
yggi í flugvélum er mun meira en
mpð samgöngutækjum á jörðu
niðri. — —
Skömmu síðar biður Þórhildur
farþega að spenna á sig öryggis-
heltin, og „Skýfaxi” lendir á
Lundúnaflugvelli, mjúklega — og
örugglega.
Frá Sjúkrasamlðgi Reykjavíkur
Vegna tíðra fyrirspurna frá samlagsmönn-
um hefir samlagið látið prenta skrá um
helztu greiðslur, sem samlagsmönnum ber
sjálfum að inna af höndum fyrir læknis-
hjálp. Skráin er afhent í afgreiðslu samlags
ins, Tryggvagötu 28.
Sjukrasamlag Reykjavíkur.
Læknisstaða
Staða sérfræðings í lyflækningum er laus
til urnsóknar við lyflæknisdeild Land-
spítalans. Laun samkvæmt samningum
Læknafélags Reykjavíkur og stjórnar-
nefndar ríkisspítalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
námsferil og fyrri störf sendist stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna, Klapparstíg 29. fyr
ir 10. október 1966.
Reykjavík,7.september 1966.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
óskast að Sjúkrahúsi Hvítaba’ndsins.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan í
síma 13744. k
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Hluthafafundur
í Bræðslufélagi Keflavíkur hf. verður hald-
inn í Aðalveri, Keflavík laugardaginn 10.
sept. 1966 kl. 2.30 eftir hádegi.
Fundarefni: Tilboð í hlutabréf hluthafa.
Áríðandi að allir hluthafar mæti, eða feli
öðrum hluthöfum lögleg umboð.
STJÓRNIN.
mikiö úrval
8. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 0