Alþýðublaðið - 11.10.1966, Page 2

Alþýðublaðið - 11.10.1966, Page 2
McNamara kynnir sér ástandið í Víetnam Sai.ga'.i 10. 10. ^NTBrReuter. Landvarnaráðhrera Bandaríkj- anna, Robert McNamara, kom flug fleiðis til Saigon í dag og hóf strax viðræður við bandaríska herfor ingja í Suður-Vietnam. Fyrst 1 innbrot á mánuði Rvík, — OTJ. Innbrot eru framin svotil mán- aóarlega að Laugabóli í Lauga- dál, þar sem býr einbúi, Gunnar Júlíusson. Laugaból er síðasti bær Snn í dalnum, en Gunnar hefur þar fáeinar kindur og kýr. Lítið er þar fémætt að hafa, og ekk- ert í útihúsunum, en það eru þau sem orðið hafa fyrir innrásum ó- vandaðra manna. Fyrsta innbrotið var framið að- faranótt 18. júní í sumar. Það næsta í júlí, þarnæsta. í ágúst, svo í september, tvisvar og loks núna sl. föstudag. Lögreglan hef ur veitt Gunnari þá aðstoð er hún má, en lítið er hægt að gera ef ekki þrjótarnir eru gripnir á staðnum. Gunnar æskir einskis annars en að fá að vera þarna í friði með bú sitt og er varia hægt að fara fram á minna. jPétur Pétursson, forstjórj, jfyiíiti varamaður Alþýðuflokks- ins í Vesturlandskjördæmi tók Bæti ý. Alþingi í gær fyrir Beni- dibt ÍJröndal, en Benidikt er um •þessar mundir einn af fulltrúum íslands á AllsherjaWþingi Sam- einuðp þjóðanna. Gejr Hallgrímsson borgarstjóri fók^^æti á þingi í gær í stað Framhaid á 15. síðu ræddi hann við sendiherra Banda ríkjanna, Henry Cabot Lodge. Cabot Lodge sagði honum frá ástandinu í stjómmálum, hermál um og efnahagsmálum. Hann var bjartsýnni á hernaðarhliðina en tilraunirnar til að tryggja óbreytt um bor'gurum frið og öryggi, sagði bandarískur talsmaður eftir við- ræðurnar. McNamara dvelst í Saigon í tvo daga 'og 'heldur síðan til vigstöðv anna áður en hann fer heimleiðis 'i fimmtudagskvöldið. Skýrsla hans um Vietnam verður á dagskrá Manilaráðstefnunnar 24. október en Jóhnson forseti sækir ráðstefn una. Flugvélinni, sem McNamara kom með til Saigon frá Honululu, sein kaði, þar sem hún ‘varð að leggja lykkju á leið sína til að sneiða hjá fylkingum risastórra sprengjuþota af gerðinni B-52, sem voru á leið til skotmarka rétt norðan við vopn lausa svæðið á landamærum Norð ur og Suður- Vietnam. Harðir bardagar hafa geisað í nánd við þetta svæði að undanförnu, og í dag tilkynnti bandaríska yfirher stjórnin í Sai'gon að mikill liðsauki hefði verið sendur til nyrztu hér aðg Suður-Vietnam. Jafnframt berast fréttir af hörð um bardögum bandarískra her- sveita og Vietcong við Hung Lac- skaga í Binh Dinh-héraði. Viet congmenn hafa grafið ótal neðan jarðargöng, sem þeir nota fyrir vopnageymslur og dvalarstaði, og til bardaga kom í þessum göngum Seinna gerðu sérþjálfaðir Banda ríkjamenn árás, „James Bond stíl“ á v'gi Vietconíg !á tveimur eyjum undan ströndinni. Bandaríkjamenn irnir klæddust froskmannabúning um og syntu inn í neðanjarðar byrgi skæruliða gegnum neðan- sjávarop. í Saigon hafa sex borgarar í stjórn Nguyen Cao Kys forsæUs ráðherra hótað að segja af sér í mótmælaskyni við vaxandi áhrif herforingja þeirra, sem sæti eiga í stjóminni. Góðar heimildir herma að engin hætta sé á alvar legra deilu fyrir opnum tjöldum þar sem slíkt mundi hafa skað leg áhrif á Manilaráðstefnuna. Námskeiðí finnsku í Háskóla íslands Finnski sendikennarinn við Há skóla íslands, Juha Peura hum. kand., mun hafa byrjendanámskeið í finnsku fyrir almenning í vetur. Þeir, sem vilja taka þátt í nám skeiði þessu, eru beðnir að koma til viðtals við sendikennarann fimmtudag 13, október kl. 20.15 í II. kennslutsofu Háskólans (fyrstu hæð í suðurálmu.) Síðar í vetur mun sendikennar inn halda fyrirlestra um finnska menningu, Nánari tilkynning um það verður birt síðar. „Vietcong morðingjar" Washington 10. 10. (NTB-Re- þyrfti að efast um að meðlim uter — Kanadfskur ofursti á ir svokallaðra þjóðfrelsisfylk- eftirlaunum sem starfaði í al ingar væru leiguþý Norður-Viet þjóðlegu eftirlitsnefndinni í Vi nammanna og kínverskra komm etnam fyrir nokkrum árum, sagði í dag, að Vietcong væri flokkur launmorðingja og að það væri flónska að hleypa þeim að samningaborðinu. R, Houston ofursti sagði í viðtali við vikuritið U.S. News and World Report, að enginn únista. Ofurstinn sa'gði að starf vopnahléijnefifdarinnar sem skipuð er fulltrúum Kanad.i, Indlands og Póllands, væri von laust þar sem fulltrúar Pól verja fylgdu skipunum Rússa og reyndu að torvelda störf nefndarinnar. Fyrir nokkru var verið að setja upp nýja götulýsingu á Suðurlandsbrautinni. Við það tækifæri tók ljósmynd- ari blaðsins þessa skemmti- Iegu mynd. Tækninni hefur fleygt fram á þessu sviði eins og öðrum, og nú er slíkt verk orðið talsvert auð veldara en áður var. (Mynd. Bl. Bl.) LAGOS: Að minnsta kosti 1.000 manns hafa týnt lífi í ættflokkaskærum í Norður- Nígeríu undanfarna daga, skv. góðum heimildum. WASHINGTON: Robert Mc Namara landvarnaráðherra fer til Vietnam á laugardaginn í vikuheimsókn. G uðbrandsbibflía boðin upp í Fyrsta bókauppboð Sigurðar Benediktssonar, verður í dag í Þjóðleikhúskjal]]aranum. Á upp- boðsskrá eru alls 113 númer. Meiri hluti bókanna er úr safni Snæ bjarnar Jónssonar, bóksala Flest- ar bókanna eru ferðabækur á ensku varðandi ísland. Þtá verð ur boðin upp eintak af frmprenti Guðbrandsbiblíu, prentað á Hól um árið 1584. Verkið er heilt nema að tvö blöð eru ljósprentuð Bókin er bundin í skinnband frá 1820. Verður þetta án efa ein dýrasta bók sem hér hefur kom ið á uppboð- Guðbrandsbiblía hef ur einu sinni áður verið á upp boði hjá Sigurði, en það eintak var keypt inn aftur. Þá verða boðin upp nokkur tíma ritasöfn. Meðal þeirra Óðinn, allur Iðunn, gamla og nýja og tímarit Bókmenntafélagsins. Margar ljóða bækur eru í uppboðsskrá. M. a. Rímur af Oddi sterka eftir Örn Arnarson, 1. útgáfa, en í henni voru aðeins 50 eintök. Söngvar og kvæði eftir Jón Ólafsson, gefið út 1877, og tvær ljóðabækur eftfr Stefán frá Hvítadal bundnar sam an eru það Söngvar förumannsins og Óður einyrkjans. Barðist við lögregluna með hníf Rvík, ÓTJ. Óður maður var handtekinn í Hafnarfirði sl. sunnudag og hafði hann þá .gert ítrekaðar tilraunir til að vega lögregluþjónana með hníf. Lögreglan hafði verið kölluð að húsi einu í bænum, laust fyr ir miðnætti til þess að fjarlægja umræddan mann. Hann er enskur að þjóðerni (36 ára gamall) og býr þar ásamt konu sinni. í fyrstu neitaði maðúrinn alger lega að hleypa þeim inn í íbúð- ina, en þegar þeir komust þrátt fyrir það varðist hann af mikilli heift 'og notaði hníf við það eins og fyrr segir. Lögre'gluþjónunum tókst þó að yfirbuga hann og af vopna án þess að meiðsli hlytust af og var þá berserkurinn flutt ur í fangelsi. Hann mun hafður í varðhaldi þar til mál hans verður tekið fyrir. 2 11. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.