Alþýðublaðið - 11.10.1966, Blaðsíða 8
ENN ER DEIET UM
MORD KENNEDYS
ÞEGAR Warrennefndin birti
skýrslu sína um morðiti á Kenne-
dy forseta i Dallas í nóvember
1963, tæpu ári eftir að imorðið
var framið, töldu flestir að mál-
inu væri lokið. En að undanförnu
hafa komið fram háværar kröfur
íim það í bandaríska þinginu, að
fyrirskipuð verði ný rannsókn á
forsetamorðinu. Ástæðan er sú, að
út hafa komið margar bækur, þar
sem starfsaðferðir Warrennefnd-
arinnar eru gagnrýndar.
Pyrst eftir að skýrsla Warren-
nefndarinnar kom út, seldist ‘hún
í milljónum eintaka. En í ágúst
sl. seldust aðeins 249 eintök af
skýrslunni. Þetta ber ekki vott
um að áhugi almennings á kring-
umstæðum morðsins hafi dvínað
lieldur að traust manna á skýrsl-
unni hefur beðið hnekki. Samtím-
is þessu eykst sífellt sala þeirra
mörgu bóka, sem út hafa komið
og alltaf eru að koma út um morð-
ið og einkum þó um aðferðir Warr-
ennefndarinnar. í þessum bókum
eru aðferðir nefndarinnar og um
leið niííurstöður hennar dregnar
í efa.
Til þessa hafa komið út níu bæk-
ur um morðið, fleiri eiga eftir að
koma í kjölfarið. Aðeins á þessu
ári hafa eftirfarandi bækur kom-
ið út um morðið: 1 Thomas Buch-
anan: Who Killed Kennedy? (2
Penn Jones Junr.: Forgive My
Grief, 3) Richard Popkin; The
Second Oswald. 4) Sylvan Fox:
The Unanswered Questions About
Kenndy’s Assassination . 5) Weis-
berg: White Wash. 6) Mark Lane:
Rush to Judgement og 7) Edward
Jay Epstein'- Inquest: The Warren
Commission and the Establish-
ment af Truth.
★ EFASEMDIR.
Það eru einkum tvær s’ðast-
nefndu bækumar, sem komið hafa
af stað áköfum umræðum í Banda-
rikjunum um morðið, enda hafa
þær að geyma ítarlegustu lýsing-
arnar á starfi Warrennefndarinn
ar og undarlegum kringumstæðum
í sambandi við morðið. Umræður
þessar eru ekki bundnar við
Bandaríkin. í Bretlandi hafa t.d.
blöð eins og The Times og Ec-
onomist hvatt til þess að rann-
sókn morðsins verði tekin upp
að nýju.
Bók Epsteins er talin bera af
öllum þessum bókum og hefur
hún vakið mesta athygli. Epstein
er ungur menntamaður, sem
stundað hefur nám við Harvard-
háskóla, og upphaflega átti bók
hans að vera doktorsritgerð. Rit-
gerðin átti ekki að fjalla um morð
ið heldur um starfsaðferðir sér-
stakrar nefndar, sem stjórnin
GOODWIN: Vill nýja rannsókn.
skipar. En þegar Epstein vann að
ritgerð sinni rakst hann á svo
margar undarlegar og uggvænleg-
ar staðreyndir um morðið og eink
um og sér í lagi um nefndina,
að bókin varð með allt öðrum
hætti og um leið eftirtektarverð-
ari en gert var ráð fyrir í fyrstu,
Mark Lane, sem hefur sent frá
sér aðra bók um morðið og móð-
ir Oswalds reyndi árangurslaust
að fá til að koma fram sem eins
konar verjandi hins myrta sonar
síns gagnvart nefndinni, gengur
lengra en Epstein í ályktunum
sínum.
.
$ÖÉÍ % W§t # ■
t * s | * **-• í ' V JR i |:v
Morðið á Kennedy forseta.
8 11. október 1966 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ
★ VANRÆKSLUR.
Báðir leggja fram nógu mikið
af gögnum til að vekja efasemd-
ir og ugg — og sama máli gegn-
ir með höfunda annarra bóka um
morðið. En hvorugur er sannfær-
andi, þegar þeir reyna að draga
í efa, að það hafi verið Oswald,
sem hleypti af skoti, sem varð
forsetanum að bana. Hins vegar
tekst þeim að vekja efasemdir um
hvort Oswald hafi raunverulega
verið einn að verki.
En það sem gefur bók Epsteins
fyrst og fremst gildi, er að hann
bendir á vanrækslusyndir og yfir-
sjónir, sem Warrennefln|rlinni
varð á í rannsókn morðsins, en
nefndin átti í stöðugu t'mahraki
þar sem hún hafði ströng fyrir-
mæli um að ljúka við gerð skýrsl
unnar fyrir forsetakosningarnar
1964, og yfirlýstur ' tilgangur
hennar var sá, að kveða niður
allar sögusagnir um samsæri.
Þetta hafði í för með sér, að
nefndin Ibeindi allri athyglinni
að Oswald en rannsakaði ekki sem
skyldi vísbendingar um, að að
'minnsta kosti einn annar maður
hefði verið samsekur. Af gögnum
þeim, sem virðast gefa þetta til
kynna má nefna: Líkkrufnings-
skýrslu, hina athyglisverðu kvik-
mynd sem tekin var af morðinu
og upprunalegar skýrslur FBI
(alríkislögreglunnar) um morðið.
★ FURÐULEGAR HUGMYND-
IR
Skoðanakönnun, sem gerð hef-
ur verið á vegum Harris-stofn-
unarinnar í Bandar!kjunum, en
sú stofnun notar sömu aðferð og
Gallup - stofnunin ,hefur veitt
eftirtektarverðar og uggvænleg-
ar upplýsingar.
Rúmlega helmingur þeirra, sem
spurðir voru, - - 54 af hundraði
töldu e|i:ki, að Warr^mefndin
hefði saigt allan sannleikann og að
mörgum spurningum væri enn
ósvarað. Yfirgnæfandi meirihluti
er enn þeirrar skoðunar, að Os-
wald hafi hleypt af banaskotinu.
en um það bil helmingur þeirra,
sem spurðir voru, eru einnig
þeirrar skoðunar, að um samsæri
hafi verið að ræða.
Efasemdir hafa aukjzt á þeim
þremur árum, sem liðin eru síð-
an morðið var framið. Samkvæmt
skoðanakönnun, sem Harris-stofn
unin gerði einum rnánuði eftir
forsetamorðið, töldu 74 af hund-
raði að Oswald hefði verið einn
að verki f
Um það eru skiptar skoðanir
hverjir tekið hafi þátt í hinu
hugsanleja samsæri. Sumir. segja
að það hafi verið kommúnistar,
aðrir öfgasinnar til hægri og 2%
þeirra, sem spuröir voru, vörpuðu
fram þeirri vitfirringslegu kenn-
ingu, að Johnson þáverandi vara
forseti hefði skipulagt morðið.
Þetta merkir ef taká má niður-
stöður skoðanakönnunarinni trú-
anlegar, að milljónir Baridaríkja-
manna trúa því, að núverandi for-
seti landsi’ns hafi staðið á bak við
morð fyrirrennara síns. Þetta er
óhugnanlegt og vitfirringslegt
en um leið hættulegt merki þess,
að Warrennefndin hafi ekki kveð
ið niður sögusagnir þær og þjóð-
sögur, er komust á kreik í sam
bandi við morðið, en það var meg
intilgangur nefndarinnar. Einnig
sýnir þetta að hinar mörgu og nýju
bækur um morðið eru farnar að
hafa uggvekjandi áhrif.
★ RANNSGKNAR KRAFIZT
Af þessum ástæðum hefur þing-
maður úr flokki repúblikana í
fulltrúadeild Þjóðiþingsins ,The-
odore R. Kupferman, borið fram
kröfu um, að þingið hefji nýjar
Warrennefndin (talið frá vins
Warren hæstaréttardómari, R