Alþýðublaðið - 15.10.1966, Blaðsíða 6
Ótryggur friður fyrir
botni Miðjarðarhafs
Fjórir ísr.ielskir hermenn biðu
toana og þrír særðust þegar jeppi
þeirra ók á jarðsprengju, sem ara-
bískir hryðj .iverkamenn úr skæru-
liöasveitum ,,þjóðfrelsissamtak
anna“ A1 Fatah höfðu komið fyrir
á ísraelskri grund fyrir nokkrum
dögum
Skömmu síðar sprungu þrjár
sprengjur í Romena-h^erfinu í
Jerúsalem með þeim afleiðingum,
að þrír menn særðust. l>eir, sem
að þessu sprengjutilræði stóðu
munu einnii-: hafa verið félagar í
A1 Fatah, sem hefur bækistöðvar
í Sýrlandi clg Jórdaníu.
Og nú seinast hafa jórdanskir
og írskir. landamæraverðir háð
tveggja tíma orrustu. ísraelsmenn
segja, að landamæraverðir þeirra
hafl villzt inn í Jórdaníu vegna
þoku, Þrír ísraelsmenn munu hafa
fallttt
ísriaelsmenn hafa sent Öryggis-
ráðiriu bréf þar sem Sýrlending-
ar eru sakaðir um að undirbúa á-
rásarstyrjöld gegn ísrael. Ósenni-
legt er talið að ísraelsmenn láti
naegja að senda mótmælaorðsend-
ingar, og búizt er við að þeir grípi
til róttækra gagnráðstafana þá
og1 Þegar. Spennan fyrir botni
Miðjarðarhafs hefur aukizt til
muna undanfarna daga, og hefur
ástandið á landamærunum sjald-
an verið jafnalvarlegt og nú.
★ HÆTTUÁSTAND
Hættan á landamærastyrjöld,
sem haft getur afdrifaríkar afleið
ingar í för með sér, hefur ef til
vill sjaldan verið meiri. Landvarna
ráðherra Sýrlands, Hafez Assad
hershöfðingi, mun nýlega hafa
látiff svo ummælt í viðtölum við
vestræna og austræna diplómata,
aff sýrlenzka stjórnin sé þeirrar
skoðunar, að „styrjöld sé eina úr
ræðið“ og að ,,haukarnir“ í ísra-
el - - þ.e hinir herskárri úr hópi
leiðtoga ísraelsmanna. þeirra á
tneðal Itzhak Rabin hershöfðingi
forseti herráðsins séu fastákveðnir
I aff hrinda af stað slíkri styrjöld
fyrir kosningarnar í Bandarík-
junum í nóvember. Diplómatar líta
þessar viðvaranir eða hótanir al-
varlegri augum en oft láður.
Spennan hefur hvað sem öðru
líður sjaldan verið meiri. Sýrlend
in'gar óttast ísraelsmenn, en einnig
Jórdaníumenn, enda telja þeir að
Hussein Jórdaníukonungur hafi
aldrei sagt skilið við hugmyndina
um að koma á fót stóru ríki Haseje
míta, en svo nefnist ætt hans, og
er hann sagður vilja innlima Sýr
land og írak í þetta r£ki.
Jórdaníumenn óttast bæði ísra-
elsmenn og Sýrlendinga og eru
uggandi um að til stórstyrjaldar
muni draga fyrir botni Miðjarðar-
hafs. Þó lýsti Hussein konungur
því yfir fyrir'fáum döigum að hann
mundi koma „hinni arabísku frænd
þjóð“, Sýrlendingum, til hj'álpar
ef á þá yrði ráðizt, en jafnframt
hefur hann hótað að segja Sýr-
lendingum stríð á hendur, ef þeir
loka landamærunum.
ísraelsmenn óttast að sjálfsögðu
bæði Sýxlendiniga, Jórdaníumenn
og öll Arabaríkin og eru við öllu
búnir,
★ V OPNASENDIN GAR
Það sem gerir ástandið enn al-
varlegra en ella, er, að Rússar
Framhald á 10. síðr
Kortið sýnir landamæri ísraels og Sýrlands, fyrirhugaðar stíflu-
framkvæmdir ísraelsmanna og skurð þann, sem Sýrlendingar em
að grafa til að „stela vatninu“.
HAGKVÆMT
ER
HEIMANÁM
Bréfaskóli SÍS og ASÍ er stærsti bréfaskóli landsins. Hann
býður kennslu í 30 mismunandi námsgreinum nú þegar, en
nokkrar nýjar námsgreinar eru í undibúningi.
#
Námsgreinum skólans má sklpta í flokka. Eftirfarandi grein-
argerð ber fjölbreytninni vitni og sannar lúna miklu mögu-
leika til menntunar, sem bréfaskóliim býður upp á.
I. ATVINNULÍFIÐ:
1. Landbúnaður.
Landbúnaðarvélar og verkfæri. 6 bréf. Kennari Gunnar
Gunnarsson búfræðikand. Námsgjald kr. 350.oo.
Búreikniugar. 7 bréf. og kennslubók. Kennari Eyvind-
ur Jónsson ráðunautur B. í. Námsgjald kr. 350.oo.
2. Sjávarútvegur.
Siglingafræði. 4 bréf. Kennari Jónas Sigurðsson skóla-
stjóri Stýrimannaskólans. Námsgjald kr. 650.OO.
Mótorfræði I. 6 bréf. Kennari Andrés Guðjónsson tækni
fræðingur. Námsgjald kr, G50.oo. Um benzínvélar.
Mótorfræði II. 6 bréf. Um diesélvélar. Kennari Andrés
Guðjónsson læknifræðingur. Námsgjáld kr. G50.oo.
3. Viðskipti og verzlun.
Bókfærsla I. 7 bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson, for-
stjóri. Námsgjald kl. G50.oo.
Bókfærsla II. 6 bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson, for-
stjóri. Námsgjald kr. 600,00.
Skipulag og starfshættir samvinnufélaga. 5 bréf. Kenn-
ari Eiríkur Pálsson, lögfræðingur. Námsgjald kr. 200.oo.
II. ERLlEND mál.
Danska I. 5 bréf og Litla dönskubólcin. Kennari Agúst
Sigurðsson skólastjóri. Námsgjald kr. 500.oo.
Danska II. 8 bréf og Kennslubók í dönsku I. Sami kenn
ari. Námsgjald kr. 6OO.00.
Danska III. 7 bréf, Kennslubók III. hefti, lésbók, orða-
bók og stílahefti. Sami kennari. Námsgjald kr. 700.00.
Enska . 7 bréf og ensk lesbók. Kennari Jón Magnússon,
fil. kand. Námsgjald kr, 650.OO.
Enska II. 7 bréf, ensk lesbók, orðasafn og málfræSi. ’
Sami kennari. Námsgjald kr. 6OO.00.
Þýzka. 5 bréf. Kennari Ingvar G. Brynjólfsson yfirkenn-
ari. Námsgjald kr. 650.00.
Franska. 10 bréf. Kennari Magnús G. Jónsson dósent.
Náínsgjald kr. 700.oo.
• . Spænska. 10 bréf og spænskt sagnahefti. Kennari Magn
ús G. Jónsson dósent. Námsgjald kr. 700.oo.
Espéranto, 8 bréf, lesbók og framburðarheftl. Kennarl
Ólafur S. Magnússon. Námsgjald kr. 400.00.
Framburðarkennsla er gegnum útvarpið í öllum erlend-
um málum
III. ALMENN FRÆÐI:
íslenzk málfræði. 6 bréf og kennslubók. Kennari Jón-
as Kristjánsson handritavörður. Námsgjald kr. 650.OO.
Islenzk réttritun. 6 bréf. Kennari Sveinbjöm Sigur-
jónsson skólastj. Námsgjald kr. 650.00.
íslenzk bragfræði. 3 bréf og kennslubók. Kennari Svein
björn Sigurjónsson skólastjóri. Námsgjald kr. 350.oo.
Reikningur. 10 bréf. Kennari Þorleifur Þórffarson for-
stjóri. Námsgjald kr. 700.oo.
Algebra. 5 bréf. Kennari Þóroddur Oddsson yfirkenn-
ari. Námsgjald kr. 550.oo.
Starfsfræðsla. Bókin „Starfsval". Ólafur Gunnarsson sál
fræðingur gefur leiðbeiningar um stöðuval,
IV. FÉLAGSFRÆÐI:
' Sálar- og uppeldisfræði. 4 bréf. Kennari Valborg Sig-
urðardóttir skólastjóri. Námsgjald kr. 400.oo.
Áfengismál. I. 3 bréf. Um áfengismál frá fræðilegu sjóu
armiði. Kennari Baldur Johnsen læknir. Námsgjald
kr. 200.oo.
Fundarstjórn og fundarreglur. 3 bréf. Kennari iEiríkur
Pálsson. Námsgjald kr. 400.OO.
Skák I. 5 bréf. Kennari Sveinn Kristinsson blaðamað-
ur. Námsgjald kr. 400.oo.
Skák II. 4 bréf. Kennari Sveinn Kristinsson, blaðamað-
ur. Námsgjald kr. 400.oo.
TAKIÐ EFTIR. — Bréfaskóli SÍS og ASÍ veitir ungum og
gömlum, konum og körlxun, tækifæri til að nota frístund-
irnar til aö afla sér fróðleiks, sem allir hafa gagn af. Með
bréfaskólanámi getið þér bætt yður missi fyrri námsára, auk-
ið þekkingu yðar og möguleika á að komast áfsam í lífinu.
Þér getið gerzt nemandi bvenær ársins sem cr og eruð ekki
bundinn við námshraða asxnarra nemenda.
BRÉFASKÓLI SÍS OG ASÍ BÝBUR 1ÍBUR VELKOMINN.
Undirritaður óskar að gerast nem. í eftirt. námsgr.:
□ Vinsaml. seridið gegn póstkröfu.
□ Greiösla hjálögð kr. ........
(Nafn)
(Heimilisfang)
Klippið auglýsinguna úr blaðinu og geyniið.
Bréfaskóli SÍS & ASÍ '
Sambandshúsinu Reykjavík.
HAUSSEIN, Jórdaníukonungur, í
erfiðri aðstöðu
I
0 15. okfóber 1966 ALÞÞÝÐ.UBLAÐIÐ