Alþýðublaðið - 22.10.1966, Síða 4
Bltstjérar: Gylft Gröndal (áb.) og Benedtlct Gröndal. — RttstjómarfuU.
trút: Etður Guðnasan. — Símar: 14600-14903 — Auglýstngastint: 14S00.
ACsetur AlþýOuhústa viö Hverflsgötu, Ileykjavlk. — PreotsmiBja AlþýSu
biaOstns. — Askrtltargjald kr. 05.00 — 1 lausásölu kg>. 7.00 eintukiO.
tttgefandl AlþýSuflokkurinii.
ÞJÓÐVILJINN ÞEGIR
FREGNIR af framferði Rauðu varðliðanna austur í
Kínaveldi hafa vakið athygli og viðbjóð um víða ver-
öld. Menn hafa fylgzt með því dag frá degi, hvernig
herskáir unglingahópar hafa vaðið uppi, misþyrmt
mönnum og menningarverðmætum og haft sig svo
villimannlega í frammi, að jafnvel kommúnistum um
víða veröld ofbýður og þeir hafa látið vanþóknun
sína í ljós án þess að tala nokkra tæpitungu.
Vafalaust finnst flestum hafa keyrt um þverbak, þeg
ar hinir ungu rauðliðar fyrir nokkrum dögum heimt-
uðu að brenna andstæðinga sína á báli. Virðist nú
sótt aftur, en ekki fram í Kínaveldi.
íslenzkir kommúnistar hafa löngum tvístigið á þeim
vegamótum, þar sem leiðir Sovétmanna og Peking-
manna hefur skilið._ Vitað er, að íslenzkir kommún-
istar eru klofnir í tvær fylkingar rétt eins og gerist
hjá skoðanabræðrum þeirra hvarvetna. Fylgja sumir
Kosygin og Bresnév, en aðrir halla sér 'að Maó til
trausts og halds.
Þjóðviljinn, málgagn íslenzkra kommúnista, hef-
ur ekki tekið neina aístöðu í þessum málum og varla
skýrt lesendum sínum frá afrekum ungra rauðliða
eystra, sem þó hafa þótt talsverðum tíðindum sæta.
jEkki er gott að segja hvað veldur þögn Þjóðviljans í
þessum efnum. Vera má, að það hafi sitt að segja, að
Maó bauð einum ritstióra blaðsins til sín fyrir
skömmu og skrifaði sá bók um förina, og kvittaði
þannig fyrir gestrisnina. Annar ritstjóri Þjóðviljans
er nýbúinn að gera víðreist um Rússaveldi í boði Bre-
snévs, og má vera, að beir félagar telji bezt að segja
sem minnst eins og málum er nú háttað, unz útséð
er um Lyktir þeirra deilna, sem geisa með húsbænd-
um þeirra.
En hvað sem skoðunum íslenzkra kommúnista á
atburðunum austur í Kína líður, þá er því ekki að
leyna, að fregnir það'an bera með sér, að fyllsta á-
stæða er að hugleiða alvarlega þá þróun sem nú ríkir.
Forn og merk menningarverðmæti eru eyðilögð, sak-
lausu fólki misþyrmt, stúdentar reknir úr landi, ný
fqrréttindastétt á að sitja fyrir um nám, námsgreinar,
sgm í hávegum eru hafðar með siðmenntuðum þjóð-
úín, eins og sagnfræði, listir og heimspeki, eru set.tar
ýl í horn, eða kenrisla felld niður. Menningarbylting-
ir svonefnda virðist því vera á góðri leið með að vera
ai tdménningarbylting.
Stöðugt berast nýiar fregnir af hermdarverkum
R mðu varðliðanna sem virðast framrn með blessun
o^: samþykki ráðamanna R'auða Kína. Framferði ung-
linganna hefur hvarvetna verið fordæmt, — nema í
naúlgagni íslenzkra kommúnista. Þjóðviljinn þegir
sem fyrr.
4 22. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
í dag kl. 2 hefst málverkasýn
ing Guðmundu Andrésdpttur í
Bogasal Þjóðminjasafnsins. Sýn
ing Guðmundu Andrésdóttur í
viku, er opin almenningi dag
lega fná kl. 2--10.
Þetta er þriðja einkasýning
Guðmundu, þar sem hún sýn
ir 21 málverk og 4 vatnslita
myndir. Eru öll þessi verk til
sölu. Guðmunda hefur haldið
einkasýningu á verkum sínum
með íy.mm ára mlillibili; sú
fyrsta var 1956 og önnur í Boga
salnum 1961. Auk þess hefur
hún tekið þátt í mörgum sam
sýningum, bæði erlendis og hér
heima. Verk hennar komu fyrst
fram fyrir almenning á septem
bersýningunni 1952. Guð
munda hefu." jafnan haldið sig
að nonfíguratívu stefnunni í
verkum sínum. Á þessari sýn
ingu eru flest öll málverkin mál
uð á síðustu tveim árum.
Guðmunda vinnur á teikni
stofu hjá raforkumálaskrifstof
unni og hefur nýlokið gerð dýpt
arkorts af svæðinu umhverfis
Surtsey.
■■ JULWF""*
Kðmb
★ ER ÆSKAN SPILLTARI EN FYRR?
Til okkar hringdi á ritstjórnina í gær full-
orðinn maður, sem bað okkur að koma því á fram-
færi, að vafalaust hefðu margir orðið hissa á þeim
ummælum stjórnanda sjónvarpsþáttarins „Æskan
spyr,” að æskan í dag væri spilltari og verr á vegi
stödd en nokkru sinni fyrr.
, Mér fundust þessi ummæli stórfurðuleg,
sagði maðurinn. Ég veit ekki betur, en allt frá dög-
um Grikkja og Rómverja hafi eldri menn haft
æskuna á hornum sér og sagt, að hún væri að
fara með allt til fjárans, en allt hefur þó blessazt
fram á þessa daga. Mér fannst það þess vegna svo
íurðulegt, að ég get ekki orða bundizt að lieyra
ungan mann halda þessari staðhæfingu fram í
sjónvarpinu, enda kom í ljós, að hann átti sér
ekki formælendur meðal annarra þátttakenda í
þættinum.
★ MYNDARLEGT ÆSKUFÓLK.
Ég held, að æskufólk hafi sjaldan verið
myndarlegra og bráðgerara en einmitt í dag. Unga
fólkið hefur það betra en nokkru sinni fyrr, að
vísu misnota ýmsir aukin fjárráð, en þannig hefur
það alltaf verið, að ef meira ber á því í dag, þá er
það vegna þess að æskan er fjölmennari og hefur
síg meira í frammi en áður. Bítlahár og gadda-
vírsmúsik eru tízkufyrirbrigði, sem án efa hverfa
áður en langt um líður, og óþarft er að hafa á-
.hyggjur . af þeim fyrirbærum.
Dagblöðin hafa undanfarin ár gert mikið
úr ólátum æskufólks um helgar á sumrin, allt of
mikið að því ég held. Þannig hefur blöðunum
teikzt að nokkru að setja blett á æskuna. það er
æsifréttaþorstinn í blaðamönnunum, sem á sök á
þessu. Heilbrigt æskufólk þarf að fá útrás fyrir
athafnasemi sína og fjör, ef ekki með góðu, þá með
illu. Það sem skapað hefur þessi lielgarvandamál,
er fyrst og fremst það, að hvorlci bæjaryfirvöld
né ríkið hafa gert nóg fyrir æskufólkið. Það vant-
ar hér staði, þar sem það getur komið saman og
skemmt sér, og er mikil höfuðskömm, að þetta
skuli hafa verið vanrækt svo mjög sem raun ber
vitni.
í umræddum þætti var tóbaks- og áfeng-
isneyzla gerð að umræðuefni. Mín skoðun er sú,
að ekkert geti stöðvað æskufólk í því að prófa að
neyta tóbaks og áfengis. Það er aðeins eðlileg for-
vitni, að reyna þetta, sem fullorðna fólkið virðist
margt hafa svo mikið dálæti á. Þótt áróður sé
hafður uppi gegn skaðseminni og sóðaskapnum,
sem fylgir reykingum, þá er það ekki nóg, og
hneyksli fannst mér að sýna ógeðfellda tóbaks-
auglýsingu strax á eftir þessum æskulýðsþætti.
Kenna þarf æskufólkinu að unigangast áfengi; —
áfenginu verður ekki útrýmt úr heiminum hvort
sem er; þess vegna þarf að skýra frá hættunum,
sem neyzla þess hefur í för með sér í óhófi, og
kenna unga fólkinu að umgangast vín.
Þetta eru sem sé mínar skoðanir á málinu,
sagði þessi maður, sem til okkar hringdi, og ítrek-
aði að lokum, að gagnrýni á æskuna hefur alltaf
verið cinkenni þeirra, sem gamlir eru í anda, og
sjá ekki nema svörtu hliðarnar á hlutunum.
<1
UA ððSi' ;• döJ/io