Alþýðublaðið - 28.10.1966, Side 4

Alþýðublaðið - 28.10.1966, Side 4
Eitotjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og BenediSt Gröndal. — RitstjómarfuU- trúi: EiBur GuSnason. — Símar: 14800-14903 — Auglýsingasiml: 14906. ACsetur AlþýCuhúsiO vlð HverHsgötu, Heykjavik. — Pr*ntsml6ja AlþýOu blaðsins. — Askriftargjald kr. 95.00 — I lausásölu kr. 7.00 elntakKk Utgefandl Alþýðufiokkurlmi. OLÍA OG EÍNOKUN í flestum löndum er löggjöf um fyrirtækjasam- steypur og einokunarhringi og nákvæmt eftirlit er haft af hálfu hins opinbera með starfsemi slíkra fyr- irtækja. í Bandaríkjunum, sem oft eru nefnd í sömu andránni og frjáls samkeppni er þessi löggjöf mjög ströng og henni hiklaust beitt. Þóttu það til dæmis talsverð tíðindi fyrir nokkrum árum, þegar forstjórar nokkurra stærstu rafmagnsvörufyrirtækja heims voru dæmdir í þungar sektir og fangelsi fyrir brot á þess- ari löggjöf. Nú hefur það aftur skeð þar vestra, að forstjórar fyrirtækja, sem framleiða vörur til pípu- lagna, hafa hlotið þunga dóma fyrir að hafa gert með sér samkomulag um verð á framleiðslu fyrirtækja sinna og fleira þar að lútandi, sem talið var brot á löggjöfinni um samkeppni og einokun. Hér á íslandi er slík löggjöf enn ekki til, því mið- ur, en hennar er löngu orðin þörf, þótt viðskiptalíf okkar sé ekki jafnflókið og margbrotið og hjá milljóna þjóðum. í rauninni er ákaflega lítið um það vitað hér á landi, hve rnikil brögð eru að samkomulagi milli um verð fyrirtækja í sömu greinum og lítið er ennfremur vit- að um fyrirtækjasamsteypur, sem starfa hér þó.nokkr ar. Er löngu kominn tími til að sett verði löggjöf á þessu sviði til verndar hinum almenna neytenda. I fyrra var samþykkt á Alþingi tillaga frá Unnari Stefánssyni, einum af þingmönnum Alþýðuflokks- ins, um að athugun yrði framkvæmd á þessum málum hérlendis með það fyrir augum að semja löggjöf um eftirlit með fyrirtækjasamsteypum. Sú athugun mun thú í þann veginn að hefjast á vegum viðskiptámála- ráðuneytisins og er tvímælalaust ástæða til að fagna því, að skriður skuli nú vera að komast á betta mál. Ágætt dæmi um samstöðu fyrirtækja, sem áreið- anlega mundi falla undir slíka löggjöf er að finna þar sem er starfsemi olíufélaganna þriggja, sem starfa hér á landi, og ævinlega koma fram gagnvart •almenningi, sem eitt fyrirtæki, þótt þrjú séu að lög- um. Þessi þrjú fyrirtæki hafa hér einokun á lífsnauð synlegri vörutegund, sem menn geta ekki verið án hvort sem þeim líkar betur eða verr. Samræmdar in'nheimtuaðgerðir þessara félaga, sem vægast sagt eru furðulegar, hafa nú nýlega vakið almenna reiði og apdúðaröldu. Þess er skemmzt að minnazt, að nýtt tryggingar félaí riðlaði fyrir nokkru samstöðu íslenzku trygg- inga "félaganna um iðgjöld af bifreiðatryggingum og varð þannig til þess að lækka iðgjöld bifreiðaeigenda. •Þa 5 þarf því engum að koma á óvart, þótt tæpt háfi veriö á því opinberlega að stofna nýtt olíufélag, þjóð- nýta þau þrjú sem fyrir eru eða stofna almennings- hlutáfélag um olíudreifinguna í landinu. Það er á- reiðanlega ekki neytendum til góðs, að það ástand haldist, sem nú ríkir. 4 28. óktóber 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ HAFNAEFJÖRÐUR HAFNARFJÖRÐUR Fundarboð s r Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar heldur fund föstudaginn 28. þ.m. kl. 8,30 í Alþýðu- húsinu. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á flokksþing. 2. Félags og bæjarmál. Framsögumaður er formaður félagsins, Þórður Þórðarson. Félagar mætið stundvíslega. Stjórnin. Kulturhisfor- isk leksikon Út er komið ellefta bindi a£ Kulturhistorisk leksikon for nor disk middelalder, og nær þetta j bindi yfir uppsláttarorð frá Luft til j Motstándsratt. Er þetta verk gef j ið út í samvínnu allra Norðurlanda j og er Bókaverzlun ísafoldar út gefandi þess á íslandi. Ritstjórar af íslands hálfu eru þeir dr. Jak ob Benediktsson og Magnús Már Lárusson, prófessor, en í útgáfu nefnd fyrir ísland auk ritstjór anna prófessorarnir Einar !Ólj Sveinsson og Ármann Snævarr og dr. Kristján Eldjárn Þjóð- minjavörður. Lesið Álþýðublaðið Kjör fulltrúa á flokksfying- Alþýðuflokksfélag Reykjavík fer fram á skrifstofu Alþýðuflokksins laugar- daginn 29. og sunnudaginn 30. október 1966 kl. 13.-21. báða dagana. KJÖRNEFND. á krossgötum ★ VERÐLAG A ISLANDI. Verðlagið á íslandi er alltaf mikið til um- ræðu, enda snertir það hvern einstakling í land- inu og er þýðingarmikið fyrlr þjóðina í heild. Stöðugt verðlag höfum við ekki þekkt í hálfa öld, þótt verðbólgan hafi kannski ekki sett upp sjö- mílnaskóna fyrr en á árum síðari heimsstyrjaldar- innar. Það getur verið dálítið fróðlegt að líta á verðlagið eius og það var um eða fyrir síðustu aldamót og bera það saman við verðlagið í dag. Sömuleiðis að skyggnast lítið eitt fram á veginn. Hérna á borðinu fyrir framan mig llggja nokkrir viðskiptareikningar frá árunum kringum aldamótin síðustu, þar sem lesa má verðlag á ýmsum vörum á þeim tíma. Vöruúrval var þá mjög fáskrúðugt í landinu og að nokkru aðrar vöru- tegundir á boðstólum heldur en síðar varð, m. a. vegna breyttra atvinnu- og þjóðfélagshátta. Ég skal nú nefna nokkur dæmi af handahófi um vöru- verð frá þessum árum, lesendur geta svo borið það saman við núverandi verðlag, ef þá lystir. ★ BRENNIVÍNSPOTTURINN Á 90 AURA. Þá kostaði 1 kg. af kaffi kr. 2,20, kandís kr. 0,70, rúgmjöl kr. 0,15, hveiti kr. 0,17, græn- sápa kr. 0,60. Þá var brennivínspotturinn seldur á 90 aura, sem mundi mega teljast hagstætt verð, en kílóið af rjólinu kostaði kr. 3.00. Reykjarpípa fékkst fyrir 50 aura, en 1 kg. af reyktóbaki kost- aði kr. 3,60. Spil var hægt að fá fyrir 40 aura, handklæði á 15 aura, tvinnakefli fyrir 18 aura. Þeir, sem lögðu í þá fjárfestingu að fá sér liatt, urðu að snara út hvorki meira né minna en kr. 2,50. Smjörverð til framleiðenda var þá aðeins kr. 1.20, en smjörfjall óþekkt hugtak á íslandi. Rjúpnaskyttum til fróðleiks, skal þess að lokum getið, að 18 aurar fengust þá fyrir rjúpuna, og hefur enginn orðið feitur af fugladrápi í þá daga. Þetta verðlag mun hafa haldizt svo til óbreytt allt fram undir upphaf fyrri heimsstyrj- aldarinnar eða fram á annan áratug þessarar ald- ar. En þá hækkaði allt vöruverð mikið. Eftir 1920 lækkaði svo vöruverðið aftur, einkum varð mikið verðfall á íslenzkum afurðum og komst lægst á kreppuárunum upp úr .1932, fór síðan smáhækk- andi aftur, og með síðari heimsstyrjöldinni komst verðbólgan í algleyrriing, sem kunnugt er, og allir þekkja verðlagsþróun síðustu ára og áratuga. ★ MEÐALÍBÚÐ Á 100 MILLJÓNIR. Við sjáum af framansögðu, að ýmsar vör- ur hafa hundraðfaldazt í verði á þessum tíma, sumar minna, aðrar meira. Brennivínið hefur t. d. meira en þrjúhundruðfaldazt. Ef við hins vegar litum til verðlagsþróunar síðustu áratuga, þá sýnist engan veginn óhugsandi, að verðlag eigi eftir að hundraðfaldast næstu 30—40 árin eða fram til næstu aldamóta. Mundi þá verða dýr dropinn fyrir þá, sem vildu gera sér dagamun á aldamótahátíðinni, þegar brennivinsflaskan væri farin að nálgast þrjátíu þúsundin. Sígarettupakk- inn yrði þá kominn á þrjú þúsund krónur og ann- að eftir því. Meðalíbúð fengist t. d. varla undir 100 milljónum. Guð hjálpi aumingja afgreiðslu- fólkinu í bönkum og verzlunum að telja alla þessa peninga. — S t e i n n .

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.