Alþýðublaðið - 28.10.1966, Page 10
Unnið að Norðurlandsáætlun
Framhald af 7. síðu.
Norðurlands fyrir sig, þar sem
lagðar eru fram tillögur um kerf-
isbundinn stuðning við atvinnu-
líf svæðanna. Ein skýrsla hefur
þegar verið lögð fram, um Húna-
flóasvæðið, og er Strandasýsla þó
þar með talin. Von er á skýrsl-
um um Skagafjörð, ásamt Siglu-
firði, og um austurhluta Norður-
lands innan skamms. Reiknað er
með, að Efnahagsstofnunin skili
ríkisstjórninni heildar-skýrslu um
Norðurland allt á þessum vetri.
í þessu starfi hefur einmitt ver-
ið lögð áherzla á að flýta eins og
kostur er fyrir þeim aðgerðum
og framkvæmdum, sem nauðsyn-
legastar eru taldar. Bein afleið-
ing þessa starfs er meðal ann-
ars sú, að á næstunni verður lagt
í sérstakan fiskileitar leiðangur
á Húnaflóa, Skagafirði og haf-
svæðunum þar út af. Einnig er
lögð áherzla á skjóta afgreiðslu á
umsóknum til Atvinnujöfnunar-
sjóðs frá Norðurlandi. Þá hefur
farið fram sérstök athugun á
rekstri frystihúsa og fiskvinnslu-
stöðvá við Húnaflóa, sem lögð
verður til grundvallar við úthlut-
un lánsfjár.
Af því, sem hér hefur verið
sagt, má ljóst vera, að gerðar
hafa verið ráðstafanir, sem
tryggja að unnið verði á mun
skipulegri hátt en áður að lausn
vandamála þeirra byggðarlaga,
sem á einhvern hátt hafa orðið
útundan í hinni öru hagþróun
undgnfarinna ára. .
Þótt mikið starf hafi þanriig
verið unnið að athugunum og á-
ætlanagerð til úrbóta’ á atvinnu-
ósfandi Norðurlands vestra, eru
það ekki einu aðgerðir stjórnar-
yalda til úrbóta á þessum málum
Svæðisins. Jafnframt hafa verið
gerðar beinar ráðstafanir til að
bæta úr atvinnuástandinu.
s ★ MARGÞÆTT
NEFNDARSTARF.
Þann 13. júlí 1965 skipaði
sjávarútvegsmálaráðherra fimm
manna nefnd til að hafa forustu
um ráðstafanir til að bæta úr ai-
varlegu atvinnuástandi á Norður-
landi. I nefndina voru skipaðir
þessir menn:
Vésteinn Guðmundsson, framkv.-
stjóri, Iljalteyri, formaður
nefndarinnar.
Björn Jónsson alþingismaður,
Akureyri.
Ósikar. Garibaldason, formaður
Þróttar, Siglufirði.
Jón Þorsteinsson, alþingismaður,
Reykjavík.
Stefán Friðbjarnarson, bæjar-
ritari, Siglufirði.
Um síðastliðin áramót tók Þor-
steinn Hjálmarsson, oddviti á
Hofsósi sæti Jóns Þorsteins-
sonar.
Nefnd þessi var skipuð sam-
kvæmt samkomulagi ríkisstjórn-
arinnar og verkalýðssamtakanna
á Norðurlandi frá 7. júní 1965
og voru Björn Jónsson og Óskar
Garibaldason tilnefndir í nefnd-
ina af Alþýðusambandi íslands
og Alþýðusambandi Norðurlands.
Svo sem segir í samkomulagi
ríkisstjórnarinnar og verkalýðs-
samtakanna frá 7. júní 1965 og
skipunarbréfum sjávarútvegs-
málaráðuneytisins 13. júlí 1965
og 10. desember 1965, er Atvinnu-
málanefnd Norðurlands ætlað að
hafa á hendi framkvæmd skyndi-
ráðstafana til úrbóta í atvinnu-
málum á Norðurlandi og í
Strandasýslu næstu tvö ár, frá
júrri 1965.
i
Skipta má starfsemi nefndar-
innar í þrjú tímabil:
1. Sumarsíldveiðar árið 1965.
2. Vetrarvertíð 1966, þ. e. 1.
janúar til 31. maí.
3. Sumarsíldveiðar árið 1966.
Verður hér á eftir getið starf-
semi nefndarinnar á hverju þess-
ara tímabila fyrir sig.
★ SUMARIÐ 1965.
I. — Sumarið 1965 var gert út
skip, bv. Þorsteinn þorskabítur,
á vegum nefndarinnar til tilrauna
með flutning á ísvarinni síld af
fjarlægum miðum til vinnslu-
stöðva á Norðurlandi. Enda þótt
lítið magn væri flutt, en það kom
til af því, að síldveiðar voru mjög
stopular meðan skipinu var hald-
ið úti, þá gaf tilraunin þann já-
kvæða árangur, að með henni
þótti sannað, að hægt er að geyma
síid ísvarða og flytja langleiðis
svo hún haldist liæf til söltunar.
í annan stað voru veiðiskip
styrkt til þess að sigla með eigin
afla af fjariægum veiðislóðum
til hafna á Norðurlandi. Voru
þannig fluttar rúmlega 31.000
tunnur og er fullvíst talið, að veru
legur hluti þessa magns hafi bor-
izt til Norðurlandshafna ein-
göngu fyrir tilkomu styrksins.
Alls voru saltaðar og frystar á
Norðurlándi þetta sumar um 41
þúsund tunnur, en 24 þúsund
tunnur árið áðúr. Til framkvæmd-
anna var varið um 3 milljónum
króna. '
★ VETRARVERTÍÐ.
II. — Þegar í ársbyrjun 1966
Voru ýmsar róðstafanir gerðar
til þess að auka hráefni
til fiskvinnslustöðva á Norður- j
landi og í Strandasýslu á kom-
andi vetrarvertíð, 1. janúar til j
31. maí. Heiztu ráðstafanir nefnd-
arinnar voru þessar :
!
1. — Ákveðið var að greiða
verðuppbætur á afla heimabáta,
sém ýmist stunduðu línu-, netja-
eða togveiðar. Voru verðuppbæt-
ur greiddar á samtals nær 7000
tonn. Aflamagn af heimabátum,
sem borizt hafði sömu stöðum á
þessu tímabili 1965 nam 4000
tonnum. Er ekki að efa að þess-
ar róðstafanir stuðluðu mjög að
því, að bátarnir stunduðu frem-
ur veiðar frá heimahöfnum í stað
þess að leita til annarra lands-
hluta í jafn ríkum mæli og áður.
Á þetta bæði við um minni bát-
ana, en eink.um þó um togbát-
ana. Einn togbátur var gerður út
frá hverjum stað, Siglufirði, Ól-
afsfirði og Dalvík. Útgerð slíkra
báta hafði • haft mikla þýðingu
fyrir atvinnulíf þessara staða fyr-
ir nokkrum árum, en lagzt niður
hin síðari ár.
Fyrir atbeina nefndarinnar var
ráðizt í þessa tilraun nú. Þrátt
fyrir ýmsar tafir vegna vanbún-
aðar skipanna í byrjun vertíðar
og óhagstæðs veðurfars, náðist
sá árangur, að ekki orkar tví-
mælis að halda beri þessari út-
gerð áfram.
2. — Styrkur var veittur til
greiðslu verðuppbóta á aðflutt
hráefni, hvort heldur væri afli
togara eða annar aðfluttur fiskur.
Það voru einkum Akureyri og
Siglufjörður sem hagnýttu sér
þennan styrk með auknum lönd-
unum togara. Námu landanir tog-
aranna á þessu tímabili um 2000
tonnum.
3. — Styrkur var veittur einum
bát frá hvorum stað, Skagaströnd
og Sauðárkrólci, til þess að hefja
rækjuveiðar í Húnaflóa og ef til
vill víðar. Nokkurt magn rækju
mun hafa borizt til beggja þess-
ara staða og stuðlaði nefndin að
ALÞÝÐUBLAÐIÐ vantar blaðaburðar-
fólk í eftirtalin hverfi:
Miðbæ, I. og II. Laugarteig Hringbraut
Hverfisgötu, efri og neðri, Kleppsholt Tjarnargötu
Laugarneshverfi Sörlaskjól Miklubraut
Laufásveg Laugaveg neðri Laugavegur efri
Laugarás Skjólin Seltjarnarnes I.
Lönguhlíð Bræðraborgarstíg.
Alþýðublaðið sími 14900.
flutningi hráeínisins til þeirra.
4. — Síðari hluta maímánaðar
var skipi haldið úti til tilrauna
til loðnuveiða fyrir Norðurlandi.
Engin loðna fannst og gaf því til-
raunin engan árangur.
Fjárútlát á vegum nefndarinn-
ar á vetrarvertíðinni l./l. — 31/5
voru sem hér segir:
1. Ver'ðuppbætur á heimaafla
kr. 3.760 þús.
2. Verðuppbætur á aðfluttan
afla kr. 982 þús.
3. Til rækjuveiða
kr. 85 þús.
4. Til loðnuveiða
kr. 225 þús.
Áhöld og annar kostnaður
áætlað kr. 248 þús.
Þetta er samtals kr. 5.300,000.
★ SUMARIÐ 1966.
III. — Þá er að víkja að sum-
arsíldarvertíð í ár. Tilmæli bár-
ust nefndinni um að halda úti
skipi til flutninga á síld til söit-
unar á Norðurlandshöfnum. Ekki
þótti tiltækiiegt að ráðast í slíka
útgerð. Taldi nefndin eðliiegt að
frumkvæði til siíkra fram-
kvæmda kæmi frá framleiðendum |
sjáli'um, en henni var ljóst, að
nokkurs styrks myndi þurfa við,
ef í slíka fl-amkvæmd yrði ráðizt
Eftir nokkrar athuganir af hálfu
saltenda var frá því horfið að
í-óðast í framkvæmdir.
Hvað viðvíkur styrk til veiði-
skipa, er íluttu eigin afla lang-
leiðis, var haft óbreytt fyrirkomu-
lag frá fyrra ári. Úthlutað var á-
kveðnu styrkhæfu hráefnismagni
til hinna ýmsu söltunarstöðva og
frystihúsa á Norðurlandi. Þó var
sú rýmkun gerð gagnvart frysti-
húsunum í Siglufirði og á Akur-
eyri, að þeim var heimilað að
verja framlagi því, er þeim bar,
til þess að verðbæta síld eða ann-
að hráefni. Endanlegar skýrslur
um starfsemi sumársins liggja
ekki fyrir ennþá, en sýnt þykir að
styrkur verði greiddur á 42.000
tunnur og að auki á 11.000 tunn-
ur eða annað aðflutt hráefni. —
Kostnaður af framkvæmdum á
sumrinu mun verða um 2,5 millj.
króna, og er þar með talinn styrk-
ur til tilrauna með reknetaveiði
f.vrir Norðurlandi á sl. sumri. —
Endanleg skýrsla um þessa til-
raun liggur ekki fyrir, en árang-
ur mun hafa orðið mjög lítill.
Kostnaður af framkvæmdum
þeim, sem nefndin hefur til
þessa haft með höndum er sem
hér segir :
Sumarsíldarvertíð 1965
kr. 3,0 millj.
Vctrarvertíð 1966
kr. 5,3 millj.
Sumarsíldarvertíð 1966,
áætlað, kr. 2,5 millj.
Þetta et samtals kr. 10.8 millj.
Atvinnumálanefnd hefur nú
nýiega lagt fram tillögur um
starfið á komandi vetri. Óskir hafa
borizt víða að þess efnis, að starf-
seminni verði hagað á líkan hátt
og síðastliðinn vetur, en til við-
bótar verði greiddar verðuppbæt-
ur á afla heimabáta að haustinu,
þ. e. 15. október til áramóta. —
Nefndin hefur í tillögum sínum
tekið tillit til þessara óska og lagt
til að fé verði ófram veitt til vetr-
arstarfseminnar.
Þessar tillögur eru nú í athug-
un hjá rikisstjórninni.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐSTOFAN
Vestnrgötu 25.
Sími 16012.
Opið trá kl. 8—28.36.
Lesið áiþýðublaðið
*0
28. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ