Alþýðublaðið - 09.11.1966, Page 11

Alþýðublaðið - 09.11.1966, Page 11
t=Ritstióri Örn Eictsson Beztu frjálsíþróttaafrek Reykvíkinga 1966: Grindðhlaup og hindrunar hlaup eru lélegar greinar Grindahlanp og hindrunarhlaup eru vægast sagt lélegar greinar hérlendis. Valbjörn Þorláksson er Helgi Hólm, ÍR. Agnar Leví og Halldór. Jóhannesson Handknattleikur í kvöld í kvöld kl. 20,15 heldur Reykja- víkurmótið í handknattleik áfram í íþróttahöllinni. Þá fara fram sjö leikir í 2. flokki kvenna og 1. og 3. flokki karla. beztur í báðum grindahlaupunum, en tíminn er ekki sérstakur. Kjart an Guðjónsson og Þorvaldur Bene diktsson eru næstir Valbirni í stuttu grindinni og gætu báðir vafalaust náð lengra í greininni, en sá fyrrnefndi sem sigraði Val- björn á Meistaramótinu æfir fyrir tugþraut og verður því að ein- beita sér að mörgum greinum. Þorvaldur æfir aftur á móti of lítið, en hann hefur hæfileika til að verða góður grindahlaupari. Aðeins þrír menn hlupu hindr- unarhlaup á árinu, tveir lítt æfð- ir og einn ,,upp á grín“ og sá isíðastnefndi Halldór Guðbjörns- son náði beztum tíma. Hér koma afrekin: 110 m grindahlaup: Meðaltal 10 beztu 16,53. selc. Valbjörn Þorláksson. KR 15,1 Kjartan Guðjónsson. ÍR 15,5 Þorvaldur Benediktsson, KR 15,5' Sigurður Lárusson, Á 15,7 Ólafur Guðmundsson, KR 16,3 Sigurður Björnsson, KR 16,6 Jón Þ. Ólafsson, ÍR 17,1 Halldór Guðbjörnsson, KR 17,2 Einar Frímannsson, KR 17,8 Guðmundur Ólafsson ÍR, 18,3 Helgi Hólm ÍR, 18,4 Úifar Teitsson KR, 18,8 Páll Eiríksson KR, 18.8 Erlendur VaMimarsson ÍR 20,4 Þórarinn Ragnarsson KR, 21,1 Nefndir HSÍ Stjórn Handknattleikssambands íslands hefur skipað eftirtaldar nefndir þannig: Landsliðsnejnd kvenna. Pétur Bjarnason formaður. Sigurður Bjarnason. Birgir Björnsson. Landsliðsnefnd karla. Sigurður Jónsson. Landsliðsnefnd kvennaunglinga. Hilmar Ólafsson formaður, Þórarinn Eyþórsson. Viðar Símonarson. Landsliðsnefnd karlaunglinga. Jón Kristjánsson formaður. Hjörleifur Þórðarson. Karl Jóhannsson. Dómaranefnd H.S.Í. Hannes Þ. Sigurðsson formaður. Karl Jóhannsson. Valur Benediktsson. Tækninr’fnd H.S.Í. Karl Benediktsson formaður. Birgir Björnsson. Viðar Símonarson. Framhald á 15. síðu. 400 m. grindahlaup: Meðaltal: 10 beztu 60,5 sek. Valbjörn Þorláksson, KR Helgi Hólm, ÍR Ólafur Guðmundsson. KR Haildór Guðbjörnsson, KR Kristján Mikaelsson. Á Sigurður Lárusson, Á Þórarinn R'agnarsson, KR Hjörleifur Bergsteinsson. Á Páll Eiríksson, KR Guðmundur Ólafsson, ÍR Hróðmar Helgason. Á Þórarinn Sigurðsson. KR 3000 m. hindrunarhlaup: Halldór Guðbjörnsson, KR 9 Kristleifur Guðbjörnss., KR 9 Agnar Levý, KR 9 10000 m. hlaup: sek. 57,1 57,6 57.6 58.4 59.6 59.9 61,8 62.9 64.4 65.7 69.4 77.5 min. 40,6 52.0 55,0 min. Agnar Levý, KR 33:38,9 , Kristl. Guðbjörnsson, KR 33:50,2 ValUjörn Þorláksson er fjölhæfasturí auk þess að vera bezti stangauj— ! Þórarinn Ragnarss., KR 38:41,8 stökkvari okkar er hann einnig beztur í grindahlaupi. Viðtal við ungan og efni- legan hlaupara að norðan F RJÁLSAR íþróttir eru lítið iðkaðar á Akureyri. í sumar komu þar þó fram mjög efnilegir íþrótta menn, en mesta athygli vakti ung- ur hlavpari Ásgeir Guðmundsson. Blaðið Alþýðumaðurinn birti ný- lega viðtal við Ásgeir og hér birt um við hluta af því. Þú ert Akureyringur í húð og hár Ásgeir, en hvað gamall? Já, ég er Akureyringur og er 16 ára. Hvað er langt síðan að þú byrj- aðir að æfa? Ég held að það sé eitthvað um hálft annað ár. Hvernig stóð á því að þú byrj- aðir? Ég átti félaga sem sögðu mér að koma með sér á völlinn og taka þátt í æfingum eftir að ég kynntist þessu fékk ég áhuga. Hvert var fyrsta mótið er þú tókst þátt í? Það var Víðavangshlaup KA og var ég þá 3. Síðan tók ég þátt í næsta Víðavangshlaupi og var þá 1. Svo varstu landsþekktur fyrir góða frammistöðu þína í sumar? Það held ég nú varla. Jú, víst. Þú varst íslandsmeist- ari. Já, ég sigraði í 2 greinum á Sveinamóti íslands og unglinga- móti FRÍ í sumar. I hvaða greinum var það? Það var í 800 og 1500 metra lilaupi. Hvernig líkaði þér Laugardals- völlur og varstu ekki spenntur að vera keppandi á svo stóru móti? Laugardalsvöllur er alveg prýði legur og gott að keppa þar, jú, ég var voða spenntur, einkum fyrri daginn. Keppendur voru Geysimargir eða um 70 og ég er ánægður yfir hve vel gekk. Ég óska þér til hamingju með sigurinn Ásgeir, en þú hefur Asgeir Guðmundsson. keppt á fleiri mótum í sumar? Já, ég keppti á Norðurlands- mótinu í frjálsum íþróttum, í Fjögurrabandalagakeppninni, á Frjálsíþróttamóti ÍBA og svo á innanfélagsmótum hjá félagi mínu KA. Hverjir eru beztir tímar þín- ir í þeim greinum er þú leggur helzt stund á? Að mig minnir eru þeir þessir: í 1500 m hl. á 4.29,8, 300 m. á 10,33, 800 m. á 2,66 og 400 m. á 55,5. Og þú ætlar að halda æfingum og keppni áfram? Já, ég er ákveðinn í því að æfa vel í vetur, ef skilyrði verða til þess og hefi mikinn áhuga að fá félaga mina til þess að æfa með mér. Telur þú ekki að það sé gott fyrir unglinga að leggja stund á íþróttir? Jú, ég tel að íþróttir séu mjög þroskandi og vil hvetja æskufólk til þátttöku. Eitthvað er þá vildir koma á framfæri? Já, okkur er stunda frjálsar íþróttir vantar tilfinnanlega þjálf- ara og svo er nú litt fært að stunda þessa íþrótt innanhúss sök- um húsleysis. Hér þarf -að rísa j fullkomið íþróttahús hið fyrsta. . 9. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.