Alþýðublaðið - 18.11.1966, Page 14
Nýjung Nýjung
Opnum í dag kjóSaverzlun að Lækjargötu 2 (áður Loftleiðir). Mjög stórt og fall-
egt úrval af kvenkjólum og drögtum. Verð mjög hagstætt. Sú nýbreytni veröur
höfð á, að kjólarnsr og dragtirnar seljast með afborgunum. Helmingur greið-
ist strax, en eftirstöðvarnar eftir samkomulagi.
Kjólabúúin Lækjargötu 2
Afhendingin
Pramhald af bl«. i-
lands í Kaupmannahöfn, sem birt
er hér í blaðinu í dag.
ÞaS var þröng á þingi í dóms
salnum, þegar dómurinn var kveð
inn upp á hádegi í gærmorgun, eft
ir dönskum tíma. Áhorfendapallar
voru allir fullir og fólk stóð þar
sem því var við komið. Þá var
þar fjöldi blaðamanna bæði frá
blöðum og útvarpi og sjónvarpi og
mun þetta hafa verið í fyrsta sinn
sem ljósmyndurum og sjónvarps
mönnum er hleypt inn í dómssal
ínn í Kristjánsborgarhöll. Meðal
viðstaddra, er dómurinn var kveð
inn upp var Gunnar Thoroddsen
sendiherra og lögmenn beggja
málsaðila, dönsku ríkisstjórnarinn
ar og Árnasafnsnefndar, auk
margra fleiri, sem við sögu máls
ins hafa komið.
Dómsniðurstaðan var sem fyrr
segir sú, að danska ríkisstjórnin
var sýknuð af þeirri ákæru Árna
safns að afhending handritanna til
íslands væri andstæð dönsku
stjórnarskránni. Lögmaður Árna-
safnsnefndar Christrup lét svo um
mælt, er dómurinn hafði verið
kveðinn upp, að liann vildi ekkert
um hann segja, fyrr en hann hefði
nánar kynnt sér dómsforsendur.
Um dómsniðurstöðuna sjálfa vís
ast íem fyrr segir til viðtals við
sendiherra íslands í Kaupmanna-
!höfn, Gunnar Thoroddsen, sem
Alþýðublaðið birtir í dag.
Þegar ríkisstjórnir íslands og
Danmerkur hafa skipzt á staðfest
ingarskilríkjum á samningnum,
sem gerður hefur verið um af-
hendingu handritanna, munu há
skólarnir í Kaupmannahöfn og í
Reykjavík tilnefna tvo menn hvor
til að ræða um það hvaða handrit
skuli afhenda og senda til íslands
eftir meginreglum laganna. Allt
getur þetta tekið nokkurn tíma, og
ekki er víst að fulltrúar háskól
anna verði ævinlega sammála um
hvaða handrit skuli láta af hendi
en forsætisráðherra Dana skal þá
skera úr ágreiningi eftir að hafa
ráðfært sig við menntamálaráð
herra íslands og Danmerkur.
Samkvæmt samningnum skal
afhending handritanna eiga sér
stað á 25 árum, en þau öll verða
ljósprentuð áður en þau verða
send til íslands.
Eins og kunnugt er af fyrri frétt
um hefur bygging Handritahúss
verið ákveðin og því valinn stað
ui' á lóð Háskóla íslands. Þau
handrit sem koma munu til ís-
lands áður en húsið verður til
búið verða geymd á fyrstu hæð
húss Landsbókasafnsins við Hverf
isgötu.
Vanmetym ekki
Framhald af 3. síðu.
hlyti að sigra. Menn liafa van
metið þýðingu þess, að við á-
kváðum á sínum tíma að sækja
málið alls ekki á réttargrund
velli, enda tel ég að slíkt hefði
verið alveg vonlaust. Þegar við
íéllumst á það 1961 að taka við
kæmi, viðurkenndum við að við
liandritunum sem gjöf, ef til
ættum ekki réttarkröfu til
þeirra. Og menn hafa einnig
vanmetið hvert tilfinningamál
afhendingin er fjölmörgum
Dönum.
En samt var orðið við ósk
um okkar. Þeir þrír mennta-
málaráðherrar sem voru aðal
viðsemjendur af hálfu Dana,
'þeir Jörgen Jörgensen, Helveg
Petersen og K.B. Andersen voru
allir ávallt ráðnir í því að ráða
málinu til lykta eins og gert
var og hið sama er að segja
um forsætis og utanríkisráðherr
ana, sem auk menntamálaráð-
herranna fyrst og fremst fjöll
uðu um málið, þá Viggo Kamp
man, Jens Ötto Krag og Peer
Hækkerup. Öllum þessum mönn
um eigum við mikið að þakka
sagði menntamálaráðherra.
að lokum.
H Ó T E L
Súlnasalurinn -
Jól atrésskemmtun
Leigjum út Súlnasalinn fyrir jólatrésskemmtanir
á tímabilinu 28. desember — 5. janúar. — Allar
nánari upplýsingar hjá hótelstjóra í síma 20600.
ANDRÉS auglýsir
Erlend karlmannaföt frá kr. 1.390.—til kr. 1.990.—
Stakir jakkar kr. 975.—
Stakar terylenebuxur frá kr.575.— til kr. 770.—
Föt úr enskum efnum, mjög hagstætt verð.
Drengja- og unglingaföt frá kr. 1.200.— til kr. 1.650.—
Stakir jakkar frá kr. 700.— til kr. 775.—
Stakar terylenebuxur frá kr. 450.— til kr. 565.—
Kvenkápur og dragtir í glæsilegu úrvali.
KLÆÐIST ÓDÝKT
Kaupið jélagjöfina tímanlega.
Styrkveitingar
Félagsmenn eða ekkjur þeirra, sem óska eftir
styrk úr Styrktarsjóði Meistarafélags húsa-
smiða í Reykjavík, sendi skriflegar umsóknir
til skrifstofu félagsins, Skipholti 70 fyrir 10.
des. nk.
í umsókn skal greina heimilisástæður.
STJÓRNIN.
Systir mín
Elísabet Jóhannsdóttir,
Rauðarárstíg 9
lést í landakotsspítala, 16. þ. m.
Fyrir hönd ættingja.
Gúðmundur Jóhannsson.
Eiginkona mín og móðir okkar
Guðríður Nikulásdóttir,
Skerscyrarvegi 3, Hafnarfirði,
andaðist 17. þ. m. í St. Jlósepsspítala, Ilafnarfirði.
Óskar Guðmundsson
og dætur.
Innilegar þakkir vottum við öllum þeim er sýndu samúð og
vináttu við fráfall og jarðarför
Benedikts *G. Waage,
heiðursforseta í. S_ í.
Sérstaldega þökkum við íþróttasambandi íslands fyrir þá
sæmd að sjá um útförina.
Börn, tengdabörn, barnabörn, bræður.
og mágkona.
Maðurinn minn
Henrik W. Ágústsson,
prentari,
verður jarðsettur í dag föstudaginn 18, nóvember kl. 13.3Ú
e.h. frá Neskirkju.
Gyða Þórðardóttir. *
2,4 18. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ