Alþýðublaðið - 08.12.1966, Page 2
Jóliann Þorsteinsson, forstjóri Sólvangs, Ingvar Viktorsson, forinaöur FUJ í Hafnarfiröi, Margrét
Guömimdsdóttir og börn hennar, Ingveldur Gísla lóttir og Höröur Zhópaníassön.
Höggmynd af Guðmundi
Gissurarsyni afhjúpuð
r.augardaginn 3. desember sl. var
áfhjúpuö höggmynd af Guömundi
heitnum Gissurasyni, fyrrverandi
btejarfulltrúa í Hafnarfirði. Högg
tnynd þessa gerði Gestur Þor-
girímsson, myndhöggvari og hefur
henni veriö valinn staöur fyrir
fi-aman EIIi- og lijúkrunarheimilið
•Sólvang.
liigvar Viktorsson, formaður
uiigra jafnaðarmanna I Hafnar-
firði, bauð viöstadda velkomna,
en síðan afhjúpaöi frú Margrét
Guðmundsdóttir höggmyndiua af
föður sínum.
Aö athöfn þessari lokinni var
sezt aö kaffidrykkju í boði Sól-
vangs. Þar Ias Ingvar Viktorsson
UPP eftirfarandi bréf frá stjórn
ij'.U.J. til forstjóra Sólvangs:
{ .,í dag hefur Félag ungra jafn
úðarmanna í Hafnarfirði afhent
áólvangi styttu þá af Guömundi
lieitnum Gissurarsyni, sem gert
liefur Gestur Þorgrímsson, mynd-
líöggyari og frá var sagt á
aimælisfagnaði Sólvangs. Stytt-
unni hefur verið komið fyrir á
lóð Sólvangs í samráði við yður
qg þá Kjartan Jóhannsson verk-
[fæSing og Þorvald S. Þorvalds-
spn arkitekl, sem þeir hafa skipu
Iagt Sólvangssvæðið, svo sem
fyinnugt er.
Guðmundur Gissurarson var
fæddur í Gljúfurárholti í Ölfusi
12. maí 1902, en lézt 6. júlí 1958.
Hann kom mjög við sögu opin-
berra mála í Hafnarfirði um 30
Margrét Guðmundsdóttir af-
hjúpar myndina. Ljósm. Bl.)
ára skeið. Hann var bæjarfulltrúi
frá 1934 til dauðadags og forseti
bæjarstjórnar síðustu 8 árin, og
fulltrúi bæjarstjóra og skrifstofu
stjóra bæjarins 1930 — 1954 og
gegndi iðulega störfum bæjarfó-
geta í forföllum. Hann starfaði
jafnframt í mörgum þýðingarmikl
um nefndum eins og framfærslu
nefnd og húsnæðisnéfnd, svo að
eitthvað sé nefnt, auk þess sem
liann tók mikinn þátt í margvís
legum félagssamtökum.
Guðmundur var framkvæmda-
stjóri byggingar Sólvangs og hann
Framhald á 14. síðu.
Jólafargjöld Fl
fyrir skólafólk
Fyrir mörg undanfarin jól hefir
Flugfélag íslands auðveldað skóla
fólki ferðir heim um hátíðarnar
mcð því að veita því sérstakan af
slátt af fargjöldum.
Svo mun einnig verða fyrir þau
jól sem nú fara í liönd.
Allt skólafólk, sem óskar eftir
að ferðast með flugvélum félags
ins um hátíðarnar á kost á sér-
stökum lágum fargjöldum, sem
ganga í gildi 15. desember 1966
og gilda til 15. janúar 1967.
Þessi sérstöku fargjöld fyrir
skólafólk eru tuttugu. og fimm af
hundraði lægri en venjuleg far-
gjöld.
Til þess að njóta þessárar kjara
þarf að sýna vottorð frá skóla
stjóra, sem sýni að viðkomandi
stundi nám, og að keyptur sé tví
miði og liann notaður báðar leið
ir.
Hinn 1. desember gengu í gildi
sérstök jólafargjöld á flugleiðum
Flugfélagsins til íslands, sem
margt skólafólk sem stundar nám
erlendis svo og aðrir Islendingar
sem dveljast í útiöndum notfæra
sér til þess að halda jól og nýár
heima meðal vina og ættingja.
Skýrsla um gang
dómsmála:
Fyrir nokkru var lögð fram
á Alþingi ítarleg skýrsla frá Jó
hanni Hafstein dómsmálaráð-
herra um niðurstöður athug-
ana á meðferð dómsmála og
Framhald á 14. síðu.
Hannes Davíösson forseti
Bandalags ísl. listamanna
Aðalfundur Bandalags ísl. lista
manna var haldinn hinn 9. okt. sl.
Viðstaddir voru fulltrúar allra sjö
félaganna, sem aðilar eru að Banda
laginu, og fluttu þeir skýrslur um
starfsemi félaga sinna á árinu.
Ný stjórn var kosin, en liana
skipa: Hannes Davíðsson, forseti
Ingibjörg Björnsdóttir, Jón Sig
urbjörnsson, Magnús Á. Árnason
Skúli Halldórsson, Stefán Júlíus
son og Þorkell Sigurbjörnsson.
Fjöldi tillagna var borinn upp
og samþykktur. Þar á meðal var
samþykkt að fara þess á leit við
ríkisstjórnina, að hún tilnefnl
mann í Íslandshátíðarnefnd 1974
frá Bandalagi ísl. listamanna.
Einróma var samþykkt að skora
á menntamálaráðherra og ríkiá
stjórn að hlutast til um að frum
varp um fullgildingu sáttmála þess,
sem gerður var í Róm, 26. okt.
1964 um vernd listflytjenda verði
lagt fram til samþykktár á Alþingi
hið fyrsta. Enn fremur beindi fundl
urinn því til stjórnar Bandalagsing
að fylgjast dyggilega með laga
setningu um endurskipan lista-
mannalauna.
e 5
er í kvöld
■Alþýðuflokksfélag Reykjavíku
ur heldur félagsvist í kvöld
kl. 8,30 í Lídó. Góð verðlaun.
Gunnar Vagnsson stjórnar
félagsmstinni.
Ávarp flytur Óttar Ingvason,
lögfræðingur. Skemmtiatriði
eftir félagsvistina: Hin vinsæla
sænska Ulla Bella og dans til
kl. 1. Hljómsveit Ólafs Gauks,
söngvaramir Svanhildur Jak-
obsdóttir og Björn R. Einars
son leika og syngja. Mætið
stundvíslega til þess að sleppa
við rúllugjáÍdiO.
Óttar Ingvason
8. desember 1966 - ALÞYÐUBLAOIÐ